Tíminn - 05.11.1983, Qupperneq 4
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983
4___________________________________________©ftnhm
f réttir ' y; -^y <á:'
■ Séð yfír sýninguna í Listasafni íslands.
Sýning á verkum Amgríms Gíslasonar
málara í Listasafni ísiands:
Hann nam list sfna
með bréfaskriftum
vid Sigurd Guð-
mundsson málara
■ „Kristur birtist Maríu Magdalenu“, altaristafla í Stykkishólmskirkju. í bréfl
til Benedikts á Auðnum segist Arngrímur aö mestu hafa hugsaö hana sjálfur, „þótti
mér það skemmtilegra en að copiera". Myndin er frá árinu 1881.
■ „Kristur með kaleik hins nýja sáttmála í hægri hendi með upplyftri blcssandi vinstri
hendi. Altaristafla í Einarsstaðakirkju í Reykjadal. Talin fyrsta tilraun Amgríms til
að mála altaristöflu og að þessi tafla brúi bilið inilli mannamynda hans og altaristaflna.
Tímamynd Arni Sæberg.
■ Sérstæð listsýning verður opnuð í
Listasafni íslands kl. 14.00 í dag. Þar
verða sýnd verk íslensks alþýðumanns,
Arngríms Gíslasonar sem ýmist var
kallaður Arngrímur málari, eða Arn-
grímur bókbindari, en hann var fæddur
1829 og lést 1887. Dr. Kristján heitinn
Eldjárn fyrrum forseti Islands hafði
lengi unnið að bók um Arngrím og var
því verki nærfellt lokið er dr. Kristján
lést fyrir rúmu ári síðan. Sonur hans,
Þórarinn tók þá við og bjó bókina til
prentunar og er hún væntanleg á
markaðinn á næstunni. Listasafnið kynn-
ir almenningi þennan lítt þekkta lista-
mann með sýningunni og heiðrar um
leið minningu dr. Kristjáns, segir dr.
Selma Jónsdóttir í sýningarskrá.
Arngrímur Gíslason var fæddur á
Skörðum í Reykjahverfi og ólst þar upp.
Hann var frábitinn búskap en frábær
hagleiksmaður. Skólagöngu naut hann
engrar utan hins venjulega barnalær-
dóms þess tíma, auk þess sem hann nam
rcnnismíði og bókband. En hann hóf
ungur að teikna mannamyndir og þótti.
ná frábærum árangri á því sviði. Einnig
hneigðist hugur hans að tónlist
Upphaflega vann Arngrímur myndir
sínar í svarthvítu, en upp úr 1865 byrjaði
hann að mála með olíulitum á striga. Þá
hafði hann vart átt þess kost að skoða
aðra myndlist en altaristöflur, en kunn-
áttu háði hann sér með bréfaskriftum við
Sigurð Guðmundsson málara, sem leið-
beindi honum bréflega og reyndist hon-
um hið besta. Eru bréf Arngríms til
Sigurðar varðveitt en svarbréf Sigurðar
hafa orðið glatkistunni að bráð. Segja
má því að Afngrímur hafi numið það
sem hann nam í list sinni við bréfaskóla.
Sýningin í Listasafninu sýnir einkum
mannamyndir Sigurðar bæði í svart hvítu
og málaðar, nokkrar útsýnismyndir og
altaristöflur. Hann mun hafa gert 10
altaristöflur og eru 8 þeirra enn varð-
veittar. Sumar mun hann hafa „kopier-
að“ upp eftir verkum annarra, en einnig
hefur hann gert töflur sem eru algerlega
hans eigin verk og bera þær vitni um
ótrúlegan hagleik þessa sjálfmenntaða
listamanns.
Á efri árum ævi sinnar bjó Arngrímur
í Svarfaðardal, fyrst á Völlum þar sem
tengdafaðir hans var prestur og síðar í
Gullbringu sem var hjáleiga frá Tjörn.
Þar byggði hann sér litla vinnustofu, sem
enn stendur og er varðveitt með tilsjón
Þjóðminjasafnsins. Það er fyrsta vinnu-
stofa listmálara sem byggð var á íslandi.
-JGK
■ Brenna Möðruvallakirju 1865.
Bandarísk listsýning opnar á morg
un á Kjarvalsstöðum:
Sú stærsta sinnar
tegundar utan
Bandaríkjanna
■ Klukkan 14.00 á morgun verður
opnuð á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á
verkum yfir 80 núlifandi bandarískra
handverkslistamanna. Þetta er stærsta
sýning sinnar tegundar sem hefur verið
haldin utan Bandaríkjanna og verða þar
sýndir munir úr gleri, tré, leðri, textíl og
ennfremur er þar sýnd keramík. „Þessi
sýning hefur upp á að bjóða vandað
yfirlit yfir það besta á þessu sviði í
■ Þrír bandarísku listamannanna, sem staddir eru hér á landi vegna sýningarinnar
ásamt frú Pamelu S. Brement sendiherrafrú formanni stjómamefndar sýningarinnar.
F.v. Cynthia Boyer, Solveig Cox, frú Brement og O’Brien. Tímamynd GE
Bandaríkjunum í dag“, segir í fréttatil-
kynningu um sýninguna. meðan á henni
stendur mun Lloyd Herman, helsti sér-
fræðingur í handverkslist í Bandaríkjun-
um og forstjóri Renwick safnsins í
Smithsonian Institution í Washington
D.C. flytja fyrirlestra í Reykjavík og sjö
af þeim listamönnum sem verk eiga á
henni munu verða til staðar og halda
sýnikennslu og efna til kynna við ís-
lenska kollega sína.
Eigendur verkanna munu gefa 10%
andvirðis af seldum verkum til að koma
á fót sérstökum námssjóði til styrktar
íslenskum listamönnum sem vilja nema
og starfa erlendis og auka samskipti ís-
lenskra og bandarískra listamanna. Sýn-
ingin verður opin daglega kl. 14.00-
22.00 til 27. nóvember.
-JGK