Tíminn - 05.11.1983, Qupperneq 10
f
eða veldu eina góða úr
safninu og við sjáurnum að gera úr henni kort 1
sem stendur upp úr jólakortaflóðinu I ár.
Allt sem við þurfum er filman þín.
HfíNS PETERSEN HF
* Kort með umslagi. Minnsta pöntun er 10 stk. eftlr sömu mynd
Umboósmenn um land allt
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983
FYRIRLIÐANS
7
-----_-Tv..
GAT ÍBK EKKERT
■ Keflvíkingar voru auðvcld bráð
grimmum og stigþyrslum Völsurum er
liðin léku í úrvalsdcildarkeppninni í
körfubolta í Keflavík í kvöldi gær-
dagsins (bara breyta til). Ekki bætti
það úr skák að fyrirliði Keflvíkinga,
hinn baráttuglaði og citilharði, Björn
Víkingur Skúlason var veikur og gat ei
leikið með sínum mönnum. Hefur
sjálfsagt bara horft á Skonrokk og
slappað af. Er upp var staðið höfðu
Valsmenn sigrast á 100 stiga múrnum
og Kcflvíkingum vitaskuld um leið.
Lokatölur urðu 104-78 fyrir Valinn.
Liðin voru áþekk í fyrri hálfleik, en
þó hittu Valsmenn mun betur. Aldrei
varð munurinn þó virkilega mikill,
Þorbergurí
þrumustuði
■ Þórarar í Vestmannaeyjum, hinir
lipru, skemmtilegu og skondnu hand-
knattleiksstrákar, unnu góðan, mikil-
vægan og jafnframt gleðilegan sigur
yfir Fram í 2. deildarkeppninni í
handknattleik í gærkveldi er liðin léku
í Vestmannaeyjum. Lokatölur urðu
17-16 eftir hörkuspennandi leik og þeir
brostu gleitt Eyjapeyjar að leikslokum
en skeifa var á Frömurum, sem von er.
Staðan í hálfleik var 10-7 fyrir gest-
ina, þ.e. Fram (af því að Þór var á
heimavelli sko) og það sem einkenndi
leikinn mest var frábær markvarsla
liðanna tveggja.
í síðari hálfleik tók Þorbergur Aðal-
steinsson, matsveinn og bombari, sig
til og negldi þrumuskotum hvað eftir
annað í möskvana á bak við Fram-
markvörðinn áhorfendum til mikillar
gleði. Áður en yfir lauk höfðu Eyja-
menn sigrað með einsmarks mun 17-
16.
f Sandgerði léku Reynismenn gegn
Fylkismönnum og töpuðu svo maður
komi sér að efninu, 19-22. Á Seltjarn-
arnesi unnu Gróttumenn svo góðan
sigur á ÍR-21-17.
-Jól.
leikurinn þróaðist eitthvað á þessa
leið: 6-6, 18-8, 26-12, 35-20, 43-32 og
49-36. Valsmenn taldir á undan. Já 13
stiga munur í hálfleik fyrir gestina.
í síðari hálfleik hélt bilið áfram að
breikka og keflvískir áhorfendur voru
ekki hressir, sumir æjuðu, aðrir óuðu
og enn aðrir fóru bara á ball. Nokkrir
fóru í sjoppuna og fengu sér nammi og
sumir héldu tryggð við liðið og hvöttu
til dáða. En allt kom fyrir ekki.
Valsmenn höfðu tögl og hagldir í
leiknum, þeir voru kóngarnir að þessu
sinni. Þeir komust fljótlega í 57-38,
síðan 83-62, og loks 104-72, en það var
mesti munurinn á liðunum, tölulega
séð. Síðustu 3 körfurnar gerðu svo
Keflvíkingar og lokatölur sem fyrr
segir 104-78 fyrir rauðu búningsber-
ana.
Kristján Ágústsson átti frábæran
leik að þessu sinni og gerði 30 stig auk
þess sem hann átti ótölulegan fjölda
frákasta, sóknar- sem varna. Mjög
góður leikmaður. Torfi stendur alltaf
fyrir sínu þó hann hafi ekki skorað
neitt ofboðslega í gær. Tómas var
sleipur en datt þó ekkert meira fyrir
það (grín).
Jón Kr. Gíslason var skástur Kefl-
víkinga og átti margar frábærar rispur
í leiknum, þó rispaði hann ekkert
andlit andstæðinganna að ráði.
Stigaskorun var sem hér segir:
ÍBK: Jón 27, Þorsteinn Bjarnason
20, Guðjón Skúlason 12, Pétur 7,
Hrannar 4, Óskar 2, Hafþór 2, Sigurð-
ur 2, Guðbrandur 2.
Valur: Kristján 30, Tómas 17, Jón
Stgr., 16, Torfi 14, Jóhannes 14 og
Valdimar 5, Lcifur 5, Björn 1.
Guðjón Skúlason 16 ára nýliði í
Keflavíkurliðinu vakti athygli fyrir
góðan leik, mikið efni þar á ferð.
-TÓP/-JÓL
Hörður Harðarson átti ágætan leik gegn KA í gærkveldi og gerði sex mörk með
Tímamynd: Róbert
bravúr
Þ0UÐ BRAST HJÁ KA
og VÍKINGAR UNNU
■ Svíarnir góðiri
| rúliuðuFinnumogNorð-1
| mönnum upp á NM í
Iborðtennis...
■ í gærkveldi hófst Norður- ■
I landamót karla og kvenna í borð- ■
® tennis í Laugardalshöllinni. í ■
| karlaflokki fóru leikar þannig: ■
ISvíþjóð-Finnland 5-0 ■
Danir-íslendingar 5-01
ISvíþjóð-Noregur 5-0 5
Staðan hjá íslendingum og |
I Finnum var 3-0 fyrir Finna er m
_ blaðið fór í prentun. í kvenna- ■
| flokki: ■
— Fjögurra marka sigur Víkings
ISvíþjóð-Noregur
Finnland-ísland 3-01
_ Færeyingar veðurtepptust og _
| eru því ekki mcð um helgina. |
■ - Jól ■
■ Það var hrcint ótrúlegt að sjá hve
gersamlega úthaldið brast hjá KA
liðinu í handknattleik í gærkveldi er
liðið lék gegn íslandsmeisturum Vík-
ings í Seljaskóla að viðstöddu gífurlegu
fjölmenni eða hitt þó heldur. U.þ.bþ
40 manns sáu leikinn og fæstir sjálfsagt
hafa borgað sig inn.
Þegar 15 mínútur lifðu af leiktíman-
um voru norðanmenn yfir, leiddu 15-
13, og Víkingar virtust ekki líklegir til
að bæta ráð sitt né leika miðað við
frammistöðuna þangað til í leiknum.
En þá brast þolið og Víkingar áttu ekki
í erfiðleikum með sprungið KA-liðið.
Víkingar jöfnuðu 15-15, komust síðan
í 18-16, 19-17 og loks 22-17, en KA
menn áttu síðasta orðið og skoruðu er
leiktíminn var liðinn, úr vítakasti.
Lokatölur urðu því 22-18 fyrir Vík-
inga.
Fyrri hálfleikur var tíðindalítill.
Víkingar leiddu framan af en um
miðjan hálfleikinn komust KA menn
yfir og þeir voru síðan með yfirhöndina
er blásið var til leikhlés, höfðu sett 10
mörk gegn 9 Víkinga.
Viggó Sigurðsson hvíldi 45 mínútur
af leiktímanum og kom aðeins inn á er
15 mínútur voru eftir og lagaðist þá
leikur Víkings til muna um leið og
hann lak niður í ekki neitt hjá KA.
Þetta var fyrsti leikurinn sem hinn nýi
þjálfari Víkings, Karl Benediktsson
stjórnaði. Og ef satt skal segja voru
Víkingar rosalega slakir sem og leikur-
inn sem komst aldrei á hið háa plan.
Annars munaði mestu um að Sigurður
Gunnarsson komst á skrið í síðari
hálfleik og gerði samtals 9 mörk í
leiknum.
Mörkin gerðu: Víkingur: Sigurður
Gunnarsson 9, Hörður Harðarson 6,
Viggó Sigurðsson 2, Hilmar Sigurgísla-
son 2, Steinar Birgisson 1, Karl 1,
Guðmundur B. Guðmundsson 1 (áður
KA).
KA: Erlingur Kristjánsson 5, Magn-
ús Birgisson 3, Kristján Óskarsson 3,
Sigurður Sigurðsson 3, Þorleifur
Ananíasson 1, Logi Einarsson 1, Jó-
hann 1 og Jón Kristjánsson 1.
Áhorfendafæðin á leiknum er eftir-
tektarverð. Varla er þó við öðru að
búast er leikið er á föstudagskvöldi og
stigin í forkeppninni ekki tekin með í
úrslitakeppnina... —jól
LAUGARDAGUR S. NÓVEMBER 1983
11
Opnunarhátíð
íþróttahússins
við Skálaheiði
■ í dag verður haldin opnunarhátið tþrótta-
hússins við Skálaheiði í Kópavogi. Kópavogs-
búar munu þar fagna þeim áfanga, að eignast
sitt fyrsta alvöruíþróttahús, þar sem keppni
getur farið fram samkvæmt lögum og reglum.
Hátíðin í dag hefst klukkan 14.00, með leik
Homaflokks Kópavogs. Ávörp verða flutt, og
íþróttafélög bæjarins munu síðan sýna íþróttir
þær, sem stundaðar eru í Kópavogi. Öllum
bæjarbúum er boðið á hátíðina.
Ákvörðun um hönnun íþróttahússins var
tekin í bæjarráði Kópavogs árið 1972. Bygging-
arframkvæmdir hófust árið 1977, og uppsteypu
var að mestu lokið árið 1978, en þá varð tveggja
ára hlé á byggingu hússins. Húsið var gert
fokhelt árið 1981, og hefur vcrið unnið í húsinu
óslitið síðan. Nú eru 3/5 hlutar hússins teknir í
notkun, salurinn ásamt fjórum búningsklefum,
en að auki er gert ráð fyrir í framtíðinni alls kyns
félagsaðstöðu í húsinu, og annarri íþróttaað-
stöðu s.s. þrekherbergjum og borðtennissölum.
Arkitektar íþróttahússins eru Þorvaldur
Kristmundsson og Magnús Guðmundsson.
- SÖE
Einar mætir
gamla félaginu
- fullt af körfuleikjum
um helgina
■ Einar Bollason, þjálfari Haukanna í körfu-
boltanum, mætir í dag stnu gamla félagi í
úrvalsdeildinni. Þetta er enn merkilegra fyrir þá
sök, að „sá gamli" er nú búinn að taka frant
skóna að nýju og hefur sýnt að hann hefur engu
gleymt, þó citthvað vanti kannski á kraftinn og
léttleikann. Leikur Hauka og KR erí Hagaskóla
í dag, og hefst klukkan 14.00. Þriðji leikur
fimmtu umferðar er svo á morgun í úrvalsdeild-
inni. Þá mæta ÍR-ingar Njarðvíkingum í íþrótta-
húsi Seljaskóla, klukkan 14.00. Mætir þar
botnliðið toppliðinu, og nú er að sjá hvort
Kolbeinn Kristinsson þjálfari leiðir menn sína
til sigurs í fyrsta leiknum í vetur.
( neðri deildum körfuboltans er fullt af
leikjum. Fram og Grindavík í 1. deild karla í
Hagaskóla klukkan 15.30, og á Akureyri hefja
Þórsarar leik við Skallagrím klukkan 14.00,
endurtekið á sama tíma á morgun. í annarri
deild keppa Esja og KFÍ klukkan 17 í Hagaskóla
og Drangur og Reynir klukkan 18.00 í Kársnes-
skóla. -Á morgun keppa Drangur og KFÍ í
Kársnesskóla klukkan 10. og tveir leikir í fýrstu
deild kvenna. (R og KR í Seljaskóla klukkan
15.30, og Njarðvík og ÍS í Njarðvík klukkan
14.00.
- SÖE
KA fer í
handbottmn í fullum gangi
■ í dag er einn leikur í fyrstu deild karla
í handknattleik. FH fær KA í heimsókn og
hefst leikurinn klukkan 15.15. í fyrstudeild
kvenna eru heilir fjórir leikir á dag, næstum
heil umferð. FH og Valur í Firðinum
klukkan 14.00, lA-Fylkir á Skaganum á
sama tíma, KR-Víkingur í Seljaskóla
klukkan 15.15 og Fram-ÍR, toppuppgjörið
sjálft, klukkan 16.30.
Á morgun er einn leikur í handboltan-
um, Breiðablik og HK mætast f Kópavogs-
skóla, og er það opnunarleikur nýja hússins
í Kópavogi í handbolta. Hætt er við að
Kópavogsbúar fjölmenni, til að sjá húsið
nýja, liðin sín og aðra. -SÖE
Reykja-
víkurmót
fatlaðra
hefst í dag
Reykjavíkurmót fatlaðra í sundi hefst í
dag. Verður það háð í Hátúni 12, og hefst
klukkan 14.00. Reykjavíkurmóti fatlaðra
í borðtennis hefst klukkan 19.00 á mánudag
í íþróttahúsi Hlfðaskóla. -SÖE
Bændur - Sveitarfélög - Verktakar
Getum útvegað fyrir áramót á sérstaklega
hagstæðu verði:
DEUTZ-tNTRAC
FJÖLHÆFASTA DRÁTTARVÉLIN
AMARKAÐNUM
Sérhönnuð fyrir vinnslutæki bæði að aftan og framan.
Aflúrtak og þrítengibeisli að aftan og framan.
Frambyggð, loftkæld, með miðstöð og útvarpi.
Öryggishús, sem hægt er að lyfta - Mjög gott útsýni úr
ökumannssæti - 8-12 gírar áfram, 4 gírar afturábak.
Hraðastig frá 0,05 km allt að 40 km á klst.
☆ AFL ☆ AFKÖST lirARÐSEMI
ATH • Söluskattur J
hefur verið felldur niður af öllum \
landbúnaðartækjum.
HAMAR HF
Véladeild
KHD
Sími 22123. Pósthólf 1444 Tryggvagötu, Reykjavík.