Tíminn - 05.11.1983, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1983
13
Alyktanir og áskoranir
■ Landsfundur Landssambands fram-
sóknarkvenna haldinn að Húsavík dag-
ana 28.-30. okt. 1983, lýsir yfir stuðn-
ingi við ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar og ánægju með þann árang-
ur, sem þegar hefur náðst í baráttu við
óðaverðbólguna. Við teljum nauðsyn að
þeirri baráttu verði haldið áfram, en þó
verði þess gætt að framsóknarmenn gæti
hugsjóna sinna og hyggi fyrst og fremst
að velferð einstaklingsins, fjölskyldunn-
ar og heimilanna, sem eru hornsteinar
þjóðfélagsins.
Atvinnuöryggi
og launamál
Öllum verði tryggð atvinna. Barátta
við verðbólgu má aldrei kosta íslendinga
það, að böl atvinnuleysis fylgi í kjölfarið.
Þing Landssambands framsóknar-
kvenna haldið á Húsavfk 28.-30. október
1983 skorar á þingmenn flokksins að
knýja á um að lög um launajöfnuð karla
og kvenna verði framfylgt - og gera allt
sem hægt er til að ná árangri í að uppræta
launamisréttið.
Þingið telur rétt að athugun fari fram
á því hvort launamisréttið sé falið í
stöðuheitum eða öðrum dulbúnum fríð-
indum.
Ennfremur verði unnið að því að
vernda kaupmátt lægstu launa og lífskjör
þeirra sem þyngst framfæri hafa.
Við bendum sérstaklega á það að
húsmóðurstafið verði metið að verð-
leikum til jafns við aðra starfsreynslu í
atvinnulífinu.
Þingið fagnar frumvarpi til laga um
endurmat á störfum kvenna, sem lagt
hefur verið fram á Alþingi í haust.
Þarna er um að ræða einn þátt í
fjölskyldupólitík Framsóknarflokksins
og er mikið réttlætismál.
Þingið fagnar því að skipuð hefur
verið frmkvæmdanefnd um launamál
kvenna með fulltrúum stjórnmála-
flokka, kvennasamtaka og verkalýðs-
hreyfingar til að finna leiðir sem uppræti
launamisréttið í þjóðfélaginu og bindur
miklar vonir við störf hennar.
Fjölskyldupólitík
Framsóknarflokkurinn mótaði fyrstur
flokka á íslandi stefnu í fjölskyldu-
pólitík. Árið 1979 var stofnaður innan
flokksins starfshópur um fjölskyldumál
og skilaði hann áliti á aðalfundi mið-
stjórnar 3.-5. apríl 1981. 21. nóvember
1980 lögðu þingmennirnir Haraldur
Ólafsson og Alexander Stefánsson fram
á Alþingi þingsályktunartillögu um
stefnumörkun í fjölskylduvernd, en
henni var vísað til Allsherjarnefndar og
svæfð þar.
Landsfundur framsóknarkvenna á
Húsavík dagana 28.-30. okt. fagnar því
að Framsóknarflokkurinn skyldi fyrstu
flokka flytja þingsályktunartillögu um
fjölskylduvernd. við beinum þeim til-
mælum til félagsmálaráðherra að hann
skipi hið fyrsta nefnd er undirbýr löggjöf
um samræmda stefnu í málum er varða
eflingu og vernd fjölskyldunnar með
tilliti til mikilvægis hennar í þjóðfélaginu
og gera henni kleift að sinna vel uppeld-
is- og umönnunarhlutverkum sínum.
Landsfundurinn leggur áherslu á eftir-
farandi atriði:
Vinnumarkaðurinn viðurkenni for-
eldrahlutverkið
Vinnutími verði sveigjanlegri, eftir
því sem við verður komið til þess að
samræma þarfir vinnumarkaðarins
einkahögum fólks.
Dregið verði úr vinnuálagi með því að
bæta dagvinnukjör, en minnka eftir-
vinnu.
Stefna þannig að því að stytta vinnu-
tíma foreldra barna utan heimilis.
Unnið verði markvisst gegn hefðbund-
inni verkaskiptingu kynjanna á vinnu-
markaðinum og stuðla með því að
eðlilegri verkaskiptingu karla og kvenna
utan og innan heimilis. Jafnframt er
brýnt að endurmeta til launa hefðbundin
kvennastörf.
Þjónustustofnanir verði færðar í það
horf sem henti fjölskyldulífi nútímans.
Kennsla í uppeldis-, og fjölskyldu- og
heimilisfræðum verði aukin. Fari hún
fram í skólum, námsflokkum og í tengsl-
um við heilsugæslustöðvar. Námsefni
verði í samræmi við þörfina á ólíkum
aldursskeiðum.
Hraðað verði afgrciðslu á breytingu á
lögum um fæðingarorlof, sem þingmenn
Framsóknarflokksins hafa lagt fram á
Alþingi. Það felur í sér að öllum foreldr-
um verði tryggðar sömu greiðslur frá
Tryggingarstofnun ríkisins, án tillits til
atvinnuþátttöku.
Aukin verði fjöldi nema sem teknir
eru inn í Fóstruskóla íslands frá því sem
nú er.
Stefnt skal að því að öll börn á
aldrinum eins árs til sex ára eigi kost á
dvöl á dagvistarheimili, óski foreldarar
þess, dvalartími barna verði sviegjan-
legri.
Stefnt verði að því að skólar verði
einsetnir og skólatími barna samfelldur
þ.e.a.s. ein ferð til og frá skóla.
Skólatími eldri og yngri barna verði
sem líkastur og samræmdur vinnutíma
foreldra þ.e.a.s. frá nálægt 9 að morgni
til 15 e.h.
Með þessu móti gæfist kostur á að
bæta innra starf skólans - hann gæti sinnt
uppeldishlutverkinu betur og samhliða
komið á móts við hæfileika hvers og
eins. Með samræmdum vinnutíma allr-
ar fjölskyldunnar er einnig kominn
grundvöllur fyrir því að foreldrar geti átt
fleiri samverustundir með börnum
sínum. Tengsl skóla og heimilis þarf að
auka til muna og áherslu þarf að leggja
á hinn mikilvæga þátt foreldris í öllu
fræðslu - uppeldis - og handleiðslustarfi.
í því skyni þyrfti m.a.a að gefa út
handbækur til ráðgjafar og leiðbeininga
fyrir foreldra barna og unglinga.
Með samræmingu vinnutíma foreldra
og skólatíma barna væri nánast ekki þörf
á skóladagheimilum og jafnframt gæti
skólahúsnæði verið nýtt til félags- og
æskulýðsstarfssemi og ýmiskonar tóm-
stundarstarfsemi í samvinnu við foreld-
arfélögin.
Þá má benda á að með þessu má
einnig auka umferðaröryggi barna með
sérstöku eftirliti við upphaf og lok skóla-
daga.
Fylgt verði eftir samþykktum flokks-
þingsins um málefni aldraðra, m.a. verði
tekið tillit til mismunandi fjölskyldu-
gerða við hönnun húsnæðis, t.d. stór-
fjölskyldurnar þar sem þrír ættliðir búa
saman. Með því væri fjölskyldunum
auðveldað að sjá um aldraða og fatlaða
í heimahúsum, enda taki þjóðfélagið
tillit til þess með auknum skattaívilnun-
um og opinberum styrkjum.
Framkvæmdasjóður aldraðra verði
efldur og sérstök áhersla lögð á uppbygg-
ingu langlegudeilda fyrir öldrunarsjúkl-
inga og dagvista fyrir þá er þær geta nýtt
sér.
Þá ber einnig að hafa að leiðarljósi þau
grundvallarmannréttindi aldraðra, sem
og annarra einstaklinga í lýðræðisþjóð-
félagi, réttinn til sjálfsákvörðunar, áhrifa
og þátttöku.
Friðarmál
Þing Landssambands framsóknar-
kvenna haldið á Húsavík 29. okt. 1983
skorar á þingmenn flokksins að vinna
ötullega að þeim ályktunum sem sam-
þykktar voru á síðasta flokksþingi um
friðarmál.
„Að lögð sé mikil áhersla á að samn-
ingar náist um bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn og framleiðsla þeirra
stöðvuð.
Að jafnhliða banni við framleiðslu og
notkun kjarnorkuvopna og annarra ger-
eyðingarvopna verði unnið að samning-
um um alhliða gagnkvæma afvopnun.
Að íslendingar noti hvert tækifæri
sem gefst til að vara við auknum kjarn-
orkuvopnabúnaði og vaxandi hernaðar-
umsvifum á Norður-Atlantshafi. Stefnt
verði að því að kölluð verði saman
ráðstefna um þessi mál eins og þingmenn
Framsóknarflokksins á Alþingi hafa lagt
til.“
Þingið fagnar þeim mikla áhuga og
umræðu um friðarmál sem verið hafa að
undanförnu. Sérstaklega er ánægjulegt
hve Friðarhreyfing íslenskra kvenna hef-
ur náð samstöðu á breiðum grundvelli.
Þingið skorar á íslenskar konur um
allt land að taka virkan þátt í þessu
brýna hagsmunamáli mannkyns með
því að gerast aðilar að hreyfingunni.
Staða kvenna innan
Framsóknarflokksins.
Þing landssambands framsóknar-
kvenna haldið á Húsavík dagana 28.-30.
október 1983 vill vekja athygli á slæmri
stöðu kvenna innan flokksins.
Skorar þingið því á forystu flokksins
að eftirtaldar breytingar verði gerðar:
1. Stjórnir blandaðra flokksfélaga, full-
trúaráða og kjördæmissambanda
verði að helmingi skipaðar konum.
2. Allar nefndir innan flokksins séu að
helmingi skipaðar konum.
3. Á næsta flokksþingi Framsóknar-
flokksins verði lagðar fram tillögur til
lagabreytinga, sem kveði á um:
a) að af 25 fulltrúum , sem flokksþing
kýs í miðstjórn séu a.m.k. 12 konur.
b) að af 8 fulltrúum hvers kjördæmis-
sambands í miðstjórn séu a.m.k. 4
konur.
c) að af 9 mönnum, sem aðalfundur
miðstjórnar kýs í framkvæmdastjórn
séu a.m.k. 4 konur.
d) að formaður L.F.K. hafi sömu
stöðu innan flokksins og formaður
S.U.F.
4. Formaður L.F.K. fái nú þegar setu-
rétt á fundum framkvæmdastjórnar
og þingflokks með málfrelsi og til-
lögurétt.
Nauðsynlegt er að forysta flokksins
geri sér ljóst að stefnuskrá og vinnu-
brögð flokksins þurfi að höfða til kvenna
og ungs fólks.
Verði hlutur kvenna innan flokksins
óbreyttur þegar líður að næstu kosning-
um hljóta framsóknarkonur að íhuga að
bjóða fram kvennalista innan flokksins
við næstu kosningar.
Landsþingið skorar á allar framsókn-
arkonur að taka stóraukinn þátt í starf-
semi flokksins, m.a. með því að ganga í
flokksfélögin og öðlast þannig þau rétt-
indi í flokknum, sem því fylgja.
Stefnuskrá
Framsóknarflokksins
Landsþing Landssambands framsókn-
arkvenna beinir þeim tilmælum til
stefnuskrárnefndar að tekið verði tillit
til álits starfshóps um stefnuskrá flokks-
ins við endurskoðun stefnurskrárinnar.
1. Við viljum að við uppröðum mála-
flokka á stefnuskrá flokksins verði
þannig að fyrst sé fjallað um hina
mannlegu þætti og fjölskyldupólitík-
ina og þeim gefið meira rúm en
tíðkast hefur. Aðrir þættir verði
metnir í ljósi þess hvaða áhrif þeir
hafa á lífshamingju fólks.
2. Við viljum að gerður verði upplýs-
ingabæklingur um stefnuskrá flokks-
ins í aðgengilegu formi, sem liggi
frammi á flokksskrifstofunni.
Lagabreyting
um stjórnarkjör
Fyrir þinginu lá og var lagabreyting
um stjórnarkjör og var hún samþykkt
með lítilsháttar breytingum. í stað fimm
manna stjórnar, skipa nú ellefu konur
stjóm, þar af fimm í framkvæmdastjórn
og skulu þær konur búa á höfuðborgar-
svæðinu eða nágrenni þess. Sex konur
eru úröðrum kjördæmum. Frmkvæmda-
stjórnin á að koma saman að jafnaði
einu sinni í mánuði en öll stjórnin eigi
sjaldnar en tvisvar á ári.
1 stað fjögurra kvenna í varastjórn
áður eru núna þrjár.
Breyting þessi ætti að verða ailri
v starfsemi LFK mikil lyftistöng.
íi' I I 2 H A
Ferða stereotæki á kostaverði
með kostakjörum
RT-150S
Stereo kasettuferðaútvarp
Með: FM-, mið-, stutt- ocj langbylgju.
Hringspólun á kasettu (Auto reverse)
Verð kr. 8.775.-
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI81411
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar
sem skemmst hafa í umferðaróhöpp-
um.
VUIVU I Ul UU fcHH
Subaru 1800
árg.’82
Galant 1600 árg. '79
Volvo 244 árg. 77
Volvo 343 árg. 77
Honda Accord árg. 79
Lada sport ' árg. 78
Mazda 626 árg. ’80
Datsun100A árg. 76
Mini árg. 74
Toyota Cresita D. árg. '83
Bifreiðarnar veðra til sýnis að Skemmuvegi 26, Kópavogi, mánudag-
inn 7. nóvember 1983 kl. 12-17. Tilboðum sé skilað til Samvinnu-
trygginga fyrir kl. 17, þriöjudaginn 8. nóvember 1983.
Styrktarsjóður
ísleifs Jakobssonar
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóönum. Tilgangur
sjóösins er aö styrkja iðnaðarmenn til aö fullnema sig
erlendis í iön sinni.
Umsóknir ber að leggja inn til Iðnaðarmannafélagsins í
Reykjavík, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, fyrir 25. nóvem-
ber n.k. ásamt sveinsbréfi í löggiltri iöngrein og upplýs-
ingum um fyrirhugað framhaldsnám.
Sjóðsstjórnin.
Fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar
1984
Nú stendur yfir gerö fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborg-
ar fyrir áriö 1984. Athygli borgarbúa, svo og hagsmuna-
samtaka (t.d. íbúasamtaka), er vakin á að óskir, tillögur
og ábendingar varöandi gerð fjárhagsáætlunarinnar
þurfa aö hafa borist borgarráði fyrir 18. nóvember n.k.
Borgarstjórinn í Reykjavík
3. nóvember 1983