Tíminn - 05.11.1983, Blaðsíða 20
\
I
Opiö virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Shemmuveg' 20 Kopavogi
Simar (91)775-51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
5AMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA.
ARMULA3 SIMI 81411
',»at>g£.
abriel
HÖGGDEYFAR
^GSvarahlutir síTsesTÓ!
Hamarshöfða 1
CttBÍttll Ritstjom 86300 - Augfysingar 18300 - Afgreiðsla og askríft 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
Rafmagnsskortur á Vestf jördum:
VESTURLÍNA SLITN-
ADI VEGNA ÍSINGAR
■ „Ef það kólnar mikið í veðri
og viðgerðin dregsl gxti þurft að
grípa til skömmtunar en ég á
ekki von á því. Við höfum keyrt
á díselvélum og þeim vatns-
aflstöðvum sem við höfum yfir
að ráða og það hefur dugað í
dag“ sagði Kristján Haraldsson
orkubússtjóri Vestfjarða í sam-
tali við Tímann í gxr en vestur-
línan slitnaði í gxrmorgun á
Dynjandisheiði, um 15 kíló-
metra frá Mjólká.
Talið er að ísing hafi valdið
því að línan slitnaði. Samkvæmt
upplýsingum frá Landsvirkjun í
gærkvöldi fór viðgerðarflokkur
frá Bíldudal á staðinn með jarð-
ýtu um hádegisbilið í gær en
viðgerð var ekki lokið í gær-
kvöldi. Aðstæður munu vera
erfiðar á'staðnum þar sem línan
slitnaði, enda langt frá alfara-
leið, og einnig var veðrið mjög
slæmt á þessum slóðum.
-GSH
IHH
„EKKI LÍKLEGT AÐ
NÝR FORMAÐUR
VERÐI RAÐHERRA STRAX”
— segir Geir Hallgrímsson
■ „Það er algjörlega á valdi
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
hverjir eru ráðherrar fyrir
flokksirfs hönd,“ sagði Geir
Hailgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins m.a. í svari
sínu á landsfundi flokksins i
fyrrakvöld. en hann var spurð-
ur hvort nýr formaður Sjálf-
stæðisflokksins yrði tekinn inn
í ríkisstjórnina.
Geir sagði jafnframt: „Það
verður að bíða þesaíma að
þingflokkurinn taki afstöðu til
þess, en ég hlyt þó að bæta við
að þeir sem eru ráðherrar núna
eru kosnir mcðan þessi ríkis-
stjórn starfar og því tel ég ekki
Itkur á, að þar verði breyting á,
strax í kjölfar formannsbreyt-
ingar“.
■ Mannlaus vöru-
flutningabíll rann af stað
þar sem honum hafði verið
lagt fyrir ofan Sjónvarps-
húsið við Laugaveg. Á leið-
inni rakst vörubillinn á
mannlausa jeppabifreið og
tók hana með sér niður
brekku þar til ökuferðinni
lauk á steinvegg. Að sögn
lögreglu er jeppabifreiðin
ónýt á eftir. Ekki er Ijóst
hvað olli þvi að vörubítlinn
rann af stað.
Tímamynd Sverrir/GSH
Neitadi SIS ad selja
hrútakjöt erlendis?
„Vildum ekki
skapa óróa á
Færeyjamarkaði”
■ „Máliö er það að viökom-
andi kjöt erekki útflutningsverk-
að kjöt Iteldur verkað samkvæmt
reglum um innanlandsmarkað og
þótt til væri í dæminu að fá
undanþágu fyrir það þá er mark-
aðurinn sem það átti að fara á
Færeyjar og það er góður mark-
aður sem hefur þjónað okkur vel
um árabil og vildum við því ekki
skapa óróa á þeim markaði“,
sagði Magnús Friðgeirsson fram-
kvæmdastjóri Búvörudeildar
Sambandsins í samtali við Tim-
ann en í fréttum í gxrdag var
sagt að Sambandið hafi neitað
Guðmundi Halldórssyni á Húsa-
v(k um hrúta- og geldfjárkjöt
scm hann var búinn að ná samn-
ingum um sölu á crlendum mark-
aðí af þeim ástæðum að það væri
„prinsipp“ mál hjá Sambandinu
að sjá um sín sölumál sjálft.
Hjá Magnúsi kom fram að
vegna þess hve sala á Færeyja-
markað hefði verið góð undan-
farin ár vildu þeir tryggja að kjöt
færi ekki á þann markað nema
undir réttum formerkjum og
hefðu þeir boðið Guðmundi að
greiða honum umboðslaun ef
hann kæmi á frekari viðskiptum
þar og að Sambandið myndi
meta þau viðskipti sem þess eðlis
að það gæti sætt sig við þau á
sínum forsendum.
Aðspurður um hvort
samningaviðræður þar að lútandi
Kosningar á Verkamannasambandsþinginu:
Bjarnfrídur íhugar kæru
til félagsmálarádherra
— „tek ákvörðun um það um helgina” segir hún
■ Bjarnfríöur Leósdóttir á
Akrancsi íhugar nú að kæra
hinar umdeildu kosningar á
Verkamannasambandsþinginu
áfram til félagsmálaráðherra en
sem kunnugt er vísaði miðstjórn
kxru hennar vegna kosninganna
frá, en í kosningunum féll hún úr
stjórn sambandsins er atkvæði
fundust löngu eftir talningu.
„Ég hef verið að átta mig á
þessu máli og hef íhugað að kæra
þessa kosningar áfram til félags-
málaráðherra en væntanlega tek
ég ákvörðun um það nú um
helgina" sagði Bjarnfríður Leós-
dóttir í samtali við Tímann.
Hún sagði að afgreiðsla mið-
stjórnar ASÍ á þessu máli hefði
verið afskaplega undarleg,
þeirra sterkustu rök hefðu verið
að kosningunum sjálfum hefði
ekki verið mótmælt á þinginu
sem vissulega væri rétt en jafn-
framt sagði hún að hún hefði
ekki staðið að slíkri kæru vegna
þess að mörg mikilvæg mál og
tilllögur hefðu beðið afgreiðslu
en tíminn naumur og hefði hún
talið mikilvægara að hægt hefði
verið að ganga frá þeiin áður.
„Þessar kosningar eru blettur
á verkalýðshreyfingunni eins og
þær þróuðust, þarna komu allt í
einu fram atkvæði sem enginn
vissi um og ég tel að samkvæmt
kosningalögunum sé þetta vafa-
samt“, sagði Bjarnfríður.
-FRI
hefðu orðið við Guðmund sagði
Magnús: „Hann hafði ekki sam-
band við okkur um það heldur
tók á það ráð að ræða við
Morgunblaðið og Dagblaðið í
okkar stað“.
Muninn á útflutnings- og innan-
landsverkun sagði Magnús vera
aðallega fólginn í skoðun á kjöt-
inu... „úttlutningsverkunin hef-
ur verið eftir kröfum EBE eða
annarra markaða og kallað á
sérráðstafanir fyrir hvern mark-
að í samræmi við kröfur hvers
markaðar", sagði Magnús að
lokum. -FRI
dropar
Vilja sjálfstæðis-
menn ekki spyrja
Sverri og Davíð?
■ Nokkuð kom það óbreyttum
fréttamönnum spánskt fyrir sjónir
á landsfundi Sjátfstæðisflokksins í
fyrrakvöld, þar sem ráðherrar
flokksins og borgarstjóri sátu fyrir
svörum, að fáir virtust hafa nokk-
urn áhuga á að spyrja tðnaðarráð-
herra Sverri Hermannsson og
borgarstjóra Davíð Oddsson
spjörunum úr. Fór það svo, eftir
u.þ.b. þriggja tima fund, að þeir
Sverrir og Davíð höfðu tekið tvisv-
ar til máls hvor. Vakti það þó
einna mesta kátinu viðstaddra að
eitt sinn, er einn fyrirspyrjandinn
bar fram spumingu til sjálfstsði-
sráðherranna í heild, þá sagði
hann: „Mér er sama hver ráðherr-
anna svarar þessari spurningu, að
Sverri undanskildum."
„Bandaríkjamenn
afvopnuðu blóð-
þyrsta villimenn"
■ Dropar heyra að það hafi ekki
verið laust við að færi um blaða-
mann Tímans og fleiri fréttamenn,
sem sitja nn landsfund Sjálfstæðis-
flokksins, þegar sá hinn alræmdi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
beindi þeirri fyrinpum tii Geirs
Hailgrímssonar utanríkisráðherra
í fyrrakvöid, hvemig stæði á því að
aulltrúi íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum hefði tekið þátt í því
„að fordæma það að Bandaríkja-
menn afvopnuðu nokkra blóð-
þyrsta vUiimenn á Grenada?“ Og
þegar Hanncs Hólmsteinn var þar
kominn í fyrirspurn sinni þá
bmtust út fagnaðarlæti mildl í
salnum, þar sem um þúsund kjöm-
ir landsfundarfuUtrúarsátu. Hlógu
þeir vei og lengi og klöppuðu
Hannesi Hólmsteini óspart lof í
lófa, hvað hvatti hann tU frekari
dáða, sem vora á þessa leið. „Ég
ætla að bæta við einni athugasemd
og hún er sú að stundum er talað
um að við íslendingar eigum að
fylgja sjálfstæðri utanríkisstefnu,
en sú utanríkisstefna á að vera svo
sjálfstæð, að við þomm þegar það
á við, að vera vinsamlegir Banda-
ríkjunum , því valdi sem hefur
tekið að sér í samvinnu við okkur
gð vcrjá Giiur 9g heldur uppi f
sjálfsögðum björgunaraðgerðum |
þar sem það á við í heiminum.“
Enn gall lófatakið við, en eitthvað
vom fagnaðarlætin minni en við
fyrri bombu Hanncsar Hólm-
steins...
Geir setur ofan í
við Hannes
Hólmstein
■ Geir HaUgrímsson utanríkis-
ráðherra var ekki aiveg sáttur við
þessa framsetningu Hannesar
Hólmsteins, því hann byrsti sig
örlitið í svari sinu og sagði: „ísland
grciddi ekki atkvæði með fordæm-
ingu. ísland greiddi atkvæði með
tiUögu um að harma atburðina í
Grenada. Ég ræddi þessi mál á
Alþingi, af gefnu tUefni og neitaði
að fordæma þessa atburði, en
hinsvcgar sagði ég að það yrði að
Uta á þessa atburði sem flókna
atburðarás, og það bæri að harma
hana í heUd. I tiUögunni sem
ísland greiddi atkvæði á þingi
Sameinuöu þjóðanna var lýst yfir
að hörmuð væri atburðarrásin frá
upphafi til enda, og ég taldi eðli-
legt og sjálfsagt að ísland greiddi
atkvæði með þeirri tiUögu. Við
erum vinir Bandaríkjanna. Banda-
ríkjamenn em vinir okkar, en við
greiðum ekki aUtaf atkvæði eins
og þeir ítrast vUja, og við hljótum
þess vegna að gefa upp skoðun
okkar í þessu efni. Hér orkar
margt tvimælis og margt er óupp-
lýst, en hins vegar er það á mína
ábyrgð að svona féU atkvæðið."
Krummi . . .
er sammála Hannesi Hólmsteini,
að okkur ber að gæta litlu brúnu
bræðra okkar suður í heimi.
M. i*íi