Réttur - 01.08.1964, Page 11
R É T T U R
139
Smásteinum var raðað kringum þessar skepnur, og voru það
réttir og nátthagar og fyrir kom að huldukindur komu saman við,
og þá komu huldubörn að leika við okkur. Þau sáust ekki, en voru
samt þarna. Og þau litu aldrei niður á okkur, þó þau væru svona
vel klædd, heldur léku sér við okkur eins og jafningja.
Aldrei vorum við hrædd þó það væri kannske þoka eða rigning,
því móðir okkar var alltaf einhvers staðar nálæg.
Náttúrlega varð hún að hugsa um matinn og fara með hádegis-
mat, og stundum líka kvöldmat þangað sem faðir okkar var að vinna,
en þá var ýmist að hún hafði minnstu krakkana með sér eða við
vorum öll í bænum og biðum þar. Þá reyndi hún að vera fljót, því
nóg var að gera. Það varð að halda við fötunum og skónum og hún
kunni mörg ráð við fátæktinni. Þegar búið var að bæta skóna, sást
varla saumurinn og sokkarnir sýndust næstum óbættir eftir margar
umferðir með nál og spotta og eins var með fötin að bæturnar féllu
inn í efnið.
Móðir mín fór alltaf snemma á fætur, svo ekki drægi undan að
ná í soðningu, og stóð á bryggjunni á Torfunefinu eða niður á
Tanga þegar sjómennirnir komu að á árabátum sínum. Svo þegar
liún kom til baka, voru börnin stundum komin út, að sjá þegar hún
kæmi. Oft var hún þá með fisk í báðum höndum, svo þegar heim
kom slægði hún fiskinn og spyrti. Hann varð betri við að hanga á
sporðinum um stund.
Mjólkurdropann varð að sækja daglega.
í Hamarkoti náði fátæktin aldrei alveg inn að hjartanu. For-
eldrar mínir voru bæði glaðlynd og þrekmikil, svo voru þau ljóð-
elsk og söngvin, og þó skuggarnir væru nokkuð ágengir, þá fengu
þeir aldrei að teygja sig svo langt, að þeir yrðu að myrkri.
Þau reyndu að greiða hverjum sitt, og það stóð hvergi beint upp
á þau, svo yfirvöldin á Akureyri voru enn í dálítilli fjarlægð og á
meðan áttu þau sjálf rétt á að gleðjast yfir litlu.
Það var komið haust 1906. Faðir minn vann við grútarkatlana á
Oddeyrartanganum. Hann fór á fætur kl. 4 á morgnana að glæða
cldinn undir kötlunum og kom ekki heim fyrr en á kvöldin. Oft var
hann þá þreyttur og hrakinn ef illa viðraði og holdvotur, því engin
voru hlífðarfötin, en þetta var rétt eins og hjá öðru verkafólki og
ekkert við því að segja. Sumarið hafði verið frekar hagstætt og
heyin voru með meira móti. Þau stóðu tyrfð og varin með hellum
og hnullungum og faðir minn gekk í kring um þau á kvöldin að sjá