Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BUSH Í AFGANISTAN George W. Bush Bandaríkja- forseti hafði óvænta viðkomu í Afg- anistan í gær á leið sinni til Indlands í opinbera heimsókn. Á fundi með forseta Afganistans fór Bush fögr- um orðum um sókn Afgana til lýð- ræðis eftir að Bandaríkjamenn réð- ust inn í landið síðla árs 2001. Þýskir kettir lokaðir inni Heilbrigðisyfirvöld í fimm sam- bandslöndum Þýskalands hafa skip- að svo fyrir að fólk skuli halda heim- ilisköttum sínum innandyra. Þetta var ákveðið eftir að rannsókn á dauðum ketti á eyjunni Rügen leiddi í ljós að hann hafði drepist úr fugla- flensu. Stefna að álveri við Bakka Alcoa hefur ákveðið að hefja könnun á því hversu hagkvæmt sé að reisa nýtt 250 þúsund tonna álver á Bakka við Húsavík. Mótmælaað- gerðir voru við skrifstofur Alcoa í Reykjavík í gær þegar á annan tug ungmenna kom þar saman til að mótmæla ákvörðun fyrirtækisins. Rannsókn á viðskiptum í SPH Rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á meintum ólög- legum viðskiptum með stofnfjárhluti í Sparisjóði Hafnarfjarðar beinist meðal annars að því hvort fimm fé- lög hafi fjármagnað kaup fjölmargra einstaklinga á stofnfjárbréfum í sjóðnum. Sjálfstæðisflokkur með átta fulltrúa Sjálfstæðisflokkurinn fengi átta borgarfulltrúa af 15, Samfylkingin sex og VG einn ef kosið yrði nú í borgarstjórnarkosningunum, sam- kvæmt nýrri könnun Gallup á fylgi flokkanna. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Fréttaskýring 8 Umræðan 32/39 Úr verinu 16 Bréf 39 Erlent 18/19 Minningar 40/43 Minn staður 20 Hestar 47 Höfuðborgin 22 Myndasögur 48 Akureyri 23 Dagbók 48/50 Suðurnes 21 Staður og stund 49 Landið 22 Leikhús 52 Daglegt líf 24/27 Bíó 54/57 Neytendur 26/27 Ljósvakamiðlar 58 Menning 28/29 Veður 59 Forystugrein 30 Staksteinar 59 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %      &         '() * +,,,                       DORRIT Moussaieff forsetafrú hóf söfnun ABC barnahjálpar í gær þegar hún tók á móti börnum á Bessastöðum og gaf pening í söfnunarbauka þeirra. Börnin sem heimsóttu Bessastaði voru klædd grímubúningum í tilefni öskudagsins og eins og sjá má vildu flestir líkjast Silvíu Nótt. Söfnunin Börn hjálpa börnum, sem hófst í gær, er árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar. Peningarnir sem safnast verða notaðir til að byggja skóla og heimavistir fyrir fátæk börn í Pakistan sem annars hefðu ekki möguleika á að mennta sig. „Silvía Nótt“ hóf söfnunina á Bessastöðum Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞOKAST hefur í samkomulagsátt á milli Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar ríkisins að sögn Guðlaugar Einarsdóttur, formanns ljósmæðrafélagsins, en sáttafundi deiluaðila lauk síðdegis í gær eftir rúmlega einnar og hálfrar klukku- stundar fundarsetu. Guðlaug sagði að á fundinum hefði samist um það að ljósmæður sem hófu heimaþjónustu fyrir miðnætti aðfaranótt 1. mars fengju greitt fyrir þau verkefni. Samningur Tryggingastofnunar við ljósmæðrafélagið um heimaþjónustu rann þá út en ekki hefði náðst að leysa hnútinn um greiðslur Trygginga- stofnunar til ljósmæðra sem sinna heimaþjónustu. Guðlaug sagði að enginn samninga- fundur hefði verið boðaður á næst- unni, en ljósmæður myndu funda í kvöld þar sem borið yrði undir þær það sem Tryggingastofnun hefur boðið. Ásta Hlín Ólafsdóttir, ljósmóðir á Hreiðrinu á kvennadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss, sagði að deildin væri í þann mund að fyllast þegar Morgunblaðið hafði samband við hana í gærkvöldi. Þær hefðu yfir að ráða sex stofum sem notaðar væru fyrir sængurkonur auk einnar sem notuð væri í neyð, en deildin gæti einnig samnýtt stofu með fæðingar- deildinni þótt það væri ennþá óljóst. Aðspurð hvort konum yrði vísað frá deildinni ef hún fylltist sagði Ásta að hún teldi svo ekki vera en mögulegt væri að fá aðgang að þremur stofum annars staðar á kvennadeildinni. Að öðru leyti hefði ekki neitt verið ákveð- ið um framhaldið. Hún taldi þó ljóst að deildin gæti ekki annað þessari fjölgun sængurkvenna. Þokast í sam- komulagsátt FJÓRIR sérfræðilæknar á Barna- og unglingageðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss, BUGL, lýsa yfir miklum áhyggjum af þróun þjónustu við börn og unglinga með geðrask- anir. Þetta kemur fram í opnu bréfi þeirra til Jóns Krisjánssonar heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra. Bréfið var sent ráðherra í gær. „Ljóst er að ástandið í geðheilbrigð- ismálum barna og unglinga hefur sjaldan verið erfiðara og grípa þarf til róttækra ráðstafana án tafar.“ Gísli Baldursson barna- og unglinga- geðlæknir, einn þeirra sem skrifa undir bréfið, segir í samtali við Morgunblaðið að þau hafi með bréf- inu viljað vekja athygli á erfiðu ástandi. Í lok bréfsins segir: „Ekki er lengur þörf á að skipa nefndir heldur þarf að auka úrræði í nær- umhverfi þessara barna.“ Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlækn- ir á BUGL, segir að álagið á BUGL hafi aukist jafnt og þétt. Þeim sem koma á göngudeild BUGL hafi fjölg- að um 30% á milli ára, frá sama tíma í fyrra. Yfir 100 börn bíði eftir fyrstu komu á göngudeild, en auk þess bíði tugir barna eftir innlögn. Ólafur nefnir einkum þrjá þætti þegar hann er spurður hvernig bæta megi þjónustuna. Í fyrsta lagi þurfi að bæta grunngeðheilbrigðisþjón- ustu við börn og unglinga í öllum landsfjórðungum, í öðru lagi þurfi að bæta og stækka húsakynni BUGL í Reykjavík og í þriðja lagi þurfi að endurskipuleggja stjórnskipulag deildarinnar. Ólafur segir enga einfalda skýr- ingu á aukinni þörf fyrir umrædda þjónustu. „En þetta er ekkert sér- íslenskt fyrirbæri,“ segir hann. Hann nefnir þó m.a. meiri þekkingu á eðli geð- og þroskaraskana og segir jafnframt að foreldrar séu upplýst- ari nú en áður um þarfir barna sinna. Fjórir sérfræðilæknar á BUGL Hafa áhyggjur af þróun þjónustunnar Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ÍBÚÐARHÚS í Sælingsdal í Dala- byggð eyðilagðist í bruna í gær en engin slys urðu á fólki. Húsið var mannlaust þegar eldurinn kom upp. Svo háttaði til að bróðir ábúandans, sem átti leið hjá, varð reyksins var og hraðaði hann sér niður að Laug- um í Sælingsdal, þaðan sem hægt var að hringja á lögregluna, en GSM-samband er ekkert á svæðinu. Eftir tilkynninguna, sem kom kl. 13.50, voru liðsmenn Brunavarna Dalabyggðar kallaðir á vettvang og höfðu þeir náð tökum á eldinum klukkan 15.45. Í húsinu, sem er tvílyft steinhús, byggt árið 1946, bjuggu hjón með tvö börn. Upptök eldsins verða tekin til rannsóknar hjá lögreglunni á Búð- ardal og fær hún aðstoð tæknideild- ar lögreglunnar í Reykjavík í dag. Lögreglan segir símasambands- leysið mikið vandamál á þessu land- svæði, því hvorki náist samband við NNT-síma né GSM-síma. Hús í Sælingsdal ónýtt eftir bruna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.