Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 49 DAGBÓK Sérhæð við Ægisíðu óskast - staðgreiðsla Sérhæð við Ægisíðu óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 120-150 fm hæð við Ægisíðu, stað- greiðsla í boði. Íbúðin þarf ekki losna fyrr en á seinni hluta ársins. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Raunvísindaþing verður haldið í Öskju,náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands,dagana 3. og 4. mars. Raunvísinda-þingið er ætlað sem vettvangur rann- sóknarnámsnemenda, kennara og sérfræðinga við raunvísindadeild og þær stofnanir sem henni tengjast: Raunvísindastofnun og Líffræðistofnun, til að kynna störf sín. Bæði er þinginu þannig ætlað að auka upplýs- ingaflæði innan deildarinnar og stofnananna, sem og að gefa fræðimönnum tækifæri á að kynna sér störf kollega sina. Um leið er þingið vettvangur til að kynna almenningi viðfangsefni raunvísinda- manna hér á landi. Raunvísindaþing var síðast haldið hér á landi fyrir tveimur árum en þá lögðu um 250 manns fram efni til kynningar á þinginu. Meðal þeirra sem flytja erindi á Raunvísinda- þinginu að þessu sinni er Þóra Ellen Þórhallsdóttir plöntuvistfræðingur sem mun fjalla um nánari greiningu á niðurstöðum fyrsta áfanga ramma- áætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma: „Rammaáætluninni var hleypt af stokkunum fyrri hluta árs 1999 og er markmið hennar að meta alla helstu orkukosti landsins, bæði í vatnsafli og jarð- varma, þannig að litið sé til sem flestra þátta; bæði orkugetu og arðsemi, sem og áhrifa á umhverfi, efnahag og samfélag,“ segir Þóra. „Fyrsta áfanga lauk í árslok 2003 með mati og röðun á 41 virkjunarkosti. Unnið var í fjórum fag- hópum sem hver um sig átti að meta og raða virkj- unarkostunum út frá ólíkum forsendum sem gefn- ar voru,“ útskýrir Þóra sem var formaður faghóps 1 sem meta átti virkjunarkosti út frá áhrifum á náttúru- og menningarminjar. „Íslenska rammaáætlunin á sér líklega aðeins eina hliðstæðu, í Noregi. Niðurstöðurnar veita ein- stakt tækifæri til að kryfja nánar í hverju um- hverfisáhrif mögulegra virkjanaframkvæmda kunna að felast, og munar þar ekki síst um að beitt var heildstæðri og samræmdri aðferðafræði við at- hugun allra orkukosta. Niðurstöðurnar leyfa þann- ig t.d. að könnuð sé fylgni milli ýmissa þátta nátt- úrufars, s.s. hvort svæði sem eru verðmæt vegna jarðminja séu líka líkleg til að verða verðmæt vegna landslags eða lífríkis. Einnig hvort líklegt er að virkjanir hafi meiri áhrif á suma þætti nátt- úrufars en aðra, hvaða munur sé á náttúru- verndargildi svæða sem henta til virkjunar vatns- afls annar vegar og jarðhitasvæða hins vegar. Að lokum má svo bera saman líkleg umhverfisáhrif virkjunar vatnsorku og jarðvarma og hvort, og hversu sterk, fylgni sé á milli umhverfisáhrifa og orkugetu virkjunar. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Vísindi | Raunvísindaþing verður haldið í Háskóla Íslands 3. og 4. mars Rannsóknir í raunvísindum  Þóra Ellen Þórhalls- dóttir fæddist í Reykja- vík 1954. Hún lauk stúdentsprófi frá MH 1974, BS í grasafræði frá Háskólanum í Wales og doktorsgráðu í plöntuvistfræði frá sama skóla 1984. Þóra starfaði við rann- sóknir á áhrifum miðl- unarlóns í Þjórsár- verum 1982–1994 og sat í náttúruverndarráði 1987–1990. Hún sat í verkefnisstjórn ramma- áætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma 1999–2003. Þóra Ellen er nú prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands. Þóra er gift Helga Björnssyni jöklafræðingi og eiga þau tvö börn. Baráttuspil. Norður ♠9 ♥KD103 S/AV ♦Á10983 ♣ÁK7 Vestur Austur ♠G7654 ♠ÁK2 ♥97 ♥ÁG9 ♦-- ♦D542 ♣DG10842 ♣965 Suður ♠D1083 ♥8642 ♦KG76 ♣3 Spil dagsins er frá tvímenningi Bridshátíðar. Svo sem sjá má eru fjög- ur hjörtu freistandi samningur í NS, en legan er slæm – austur er með ÁGx í hjarta og vestur tíguleyðu. Í reynd fóru fjögur hjörtu því 1-2 niður. Sigurvegararnir tvímenningsins, þeir Jón Baldursson og Þorlákur Jóns- son, lentu í harðri sagnbaráttu gegn Svíunum Johan Sylvan og Maarten Gustawsson. Allt fór þó rólega af stað: Vestur Norður Austur Suður Sylvan Jón Gustawsson Þorlákur -- -- -- Pass Pass 1 lauf * Pass 1 tígull * Pass Pass ! Dobl 3 tíglar 3 spaðar 4 tíglar Dobl Allir pass Þorlákur og Sylvan passa í byrjun og Jón vekur á sterku laufi (Precison). Þorlákur afmeldar og Jón ákveður að passa tígulsvarið með góðan tígul og einungis 16 punkta. Gustawsson vakn- ar þá til lífsins með dobli og Þorlákur stekkur í þrjá tígla, enda með góðan tígulstuðning og hámark fyrir afmeld- ingunni. Sylvan berst í þrjá spaða og Jón í fjóra tígla, sem Gustawsson dobl- ar. Laufdrottning kom út, sem Þorlákur drap og spilaði spaða. Gustawsson tók með kóng og spilaði laufi áfram. Þor- lákur drap í borði og spilaði trompi á sjöuna. Þegar hún hélt var eftirleikur- inn auðveldur: tíu slagir, 510 í NS og 96% skor. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 g6 5. Rf3 Bg7 6. Ra3 cxd4 7. Rxd4 Rh6 8. Bb5+ Bd7 9. O-O O-O 10. Bxd7 Rxd7 11. He1 e6 12. Bxh6 Bxh6 13. c4 Dc5 14. Rb3 De7 15. Df3 Rc5 16. Rxc5 Dxc5 17. Had1 Bg7 18. Db3 Had8 19. Rc2 b6 20. h3 Hxd1 21. Hxd1 Hc8 22. Ra3 De5 23. Rb5 Df4 24. g3 Dxc4 25. Hd8+ Bf8 26. Dxc4 Hxc4 27. Rxa7 Hc2 28. b4 Hxa2 29. Rc6 Hc2 30. Re5 Kg7 31. Hd7 Bxb4 32. Hxf7+ Kg8 33. Hb7 Bc5 34. Hb8+ Kg7 35. Hb7+ Kf6 36. Rd7+ Kf5 37. Rxc5 bxc5 38. Hxh7 c4 39. h4 c3 40. Kg2 Ke4 41. He7 e5 42. He6 Kd5 43. Hxg6 Staðan kom upp á Meistaramóti Taflfélagsins Hellis sem lauk fyrir skömmu. Stigahæsti keppandi móts- ins, Sigurbjörn Björnsson (2337), hafði svart og sneri nú laglega á andstæðing- inn sinn, Tómas Björnsson (2213). 43... Hxf2+! 44. Kxf2 c2 nú vekur svartur upp nýja drottningu og þarf þá ekki að spyrja að leikslokum. 45. Ha6 c1=D 46. Ha5+ Ke4 47. Ha4+ Kd3 48. Ha8 De3+ og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Hagnaður Orkuveitunnar ÉG er einn af þjóðfélagsþegnum þessa lands og hef nú verið að velta því fyrir mér, eftir að þær fréttir bárust að hagnaður Orkuveitunnar væri upp á nokkra milljarða, hvort Orkuveitan og önnur vatns- og raf- orkufyrirtæki séu ekki þjóðareign. Ef svo er þá get ég ekki séð annað í stöðunni en að þegar hagnaður er umtalsverður eigi landinn að njóta góðs af. Einhver starfsmaður hjá Orkuveitunni hélt því fram þegar þetta var borið upp um daginn að orkuverð hefði ekki hækkað um nokkurt skeið, en ég spyr til hvers ef hagnaðurinn er svo mikill? Þið, yfir- menn þessara fyrirtækja, eigið þetta ekki einir og komið þessum aurum út í formi lægri vatns- og raforku- gjalda. Það má geta þess að á sínum tíma hafði Orkuveitan mikla peninga til ráðstöfunar og þá, viti menn, byggðu þeir Perluna (alveg fyrir- myndarhöll) en ég man ekki betur en svo að kostnaðurinn þá hafi farið langt fram úr fjárhagsáætlun og halli komið á reksturinn. Hvar gerð- ist þá, jú, við sem búum á þessu skeri þurftum að borga brúsann með hærri gjöldum. Svei ykkur. Sá sem borgar brúsann. Hemmi Gunn samur við sig MIG langar bara til að þakka sjón- vapsmanninum Hermanni Gunnars- syni fyrir fyrir að létta okkur lands- mönnum lífið með glaðværð sinni og jákvæðni. Við munum eftir honum frá því í þáttunum „Á tali hjá Hemma Gunn“, hérna um árið, þar sem hann hreif alla með sér, jafnt þáttakendur sem áhorfendur. Undanfarin misseri hefur hann hald- ið úti bráðskemmtilegum sjónvarps- þætti á Stöð 2, „Það var lagið,“ og þar er sama sagan. Það er alltaf létt yfir Hemma og hafi hann þökk fyrir að stytta okkur stundir við sjón- varpsskjáinn. Þakklátur sjónvarpsáhorfandi. Bíllyklar töpuðust BÍLLYKLAR með fjarstýringu töp- uðust við Sigtún á fimmtudag í síð- ustu viku. Finnandi vinsamlegast hafið samband í síma 568-8165. Fundarlaun í boði. Friðrik og Laufey. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Hemmi Gunn ásamt tónlistar- stjórum þáttarins „Það var lagið“, Pálma Sigurhjartarsyni og Karli Olgeirssyni. 90 ÁRA afmæli. Í dag, 2. mars, erníræður Indriði Guðjónsson, Vogatungu 3, Kópavogi. Eiginkona hans er Selma Friðgeirsdóttir og eru þau að heiman í dag Árnaðheilla dagbók@mbl.is 60 ÁRA afmæli. Í dag, 2. mars, ersextug Júlía Baldursdóttir. Í tilefni þess býður hún þeim sem vilja gleðjast með henni í léttar veitingar laugardaginn 4. mars kl. 17 í húsi Frí- múrara að Stillholti 14 á Akranesi. HLYNUR Hallsson opnar sýn- inguna MYNDIR – BIDER – PICTURES í Jónas Viðar Gallery á Akureyri laugardaginn 4. mars klukkan 14. Hlynur sýnir hér 14 textaljósmyndir sem eru nokkurs konar dagbók eða myndaalbúm. Myndirnar eru af hversdagslegum hlutum sem eru ef til vill ekki hvers- dagslegir og textarnir eru hugleið- ingar um hlutina eins og þeir eru ef til vill þá stundina. Hlynur byrjaði á þessari myndröð með sýningu í Ný- listasafninu 2003 og hefur haldið henni áfram síðan og sýnt úr henni í Sojo gallery í Kumamoto í Japan, Galleri 21 í Malmö í Svíþjóð, Galerie Robert Drees í Hannover í Þýska- landi og ash gallerí í Varmahlíð svo einhverjir staðir séu nefndir. Þetta er þó í fyrsta skipti sem flestar þess- ara mynda eru sýndar á Íslandi. Hlynur Hallsson var bæjarlista- maður Akureyrar 2005 og sýningin í Jónas Viðar Gallery er fjórða og síðasta sýningin í röð sýninga á Akureyri sem Hlynur setur upp af þessu tilefni. Sýningin AFTUR – WIEDER – AGAIN stendur yfir í Gallerí + en henni lýkur á sunnu- dag. Hinar voru í Populus Tremula og á Háskólabókasafninu. Sýningin í Jónas Viðar Gallery stendur til 26. mars 2006. Dagbók í myndum TENGLAR .............................................. www.hallsson.de LAUGARDAGINN 4. mars kl. 16 opnar Jónas Viðar Sveinsson sýningu sína, Óskabrunn, í Populus tremula í Listagili á Ak- ureyri. Jónas er einn af þekktustu listamönnum Akureyringa og er umfram allt þekktur af mál- verkum sínum. Að þessu sinni sýnir Jónas á sér nýja hlið og sýnir innsetn- ingu, þrívítt verk sem hann vinn- ur í sýningarrýminu. Sýningin verður einnig opin sunnudaginn 5. mars frá klukkan 14–17. Aðeins þessa einu helgi. Jónas Viðar sýnir innsetningu í Listagili
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.