Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Tove RigmorGuðmundsson hjúkrunarkona, fædd Gliese, fæddist í Lellinge á Sjálandi 16. júní 1924. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík sunnu- daginn 19. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin August og Dagmar Gliese. August Gliese var féhirðir, f. 28.8. 1881 í Taars hjá Sakskøbing á Lálandi, d. 4.12. 1948 í Faksinge á Sjálandi en er grafinn í Køge. Dagmar Amalie Sofie Hansen, fædd Bagge, var húsmóðir og bakari, f. 3.10. 1886 í Holeby, Fuglelse á Lálandi, d. 4.8. 1967 í Herfølge á Sjálandi. Systkin Tove eru: Ellen Kristine Jensigne Gliese húsmóðir, f. 6.3. 1906, d. 20.1. 1979, Carl Bernhard Gliese, f. 22.8. 1908, d. 6.6. 1973, Kaj Erik Gliese garðyrkjumaður, f. 24.9. 1910, d. 23.5. 1981, Anker Emil Gliese, f. 28.8. 1911, d. 9.8. 1967, Verner Richard Gliese, f. 6.11. 1913, d. 14.9.1994, Hans Gustav Gliese þjónn, f. 19.9. 1915, d. 5.5. 1969, Poul Børge Ingemann Gliese bakari, f. 14.2. 1918, d. 13.7. 1981, Ove Christian Gliese málari, f. 1.1. 1920, d. 1.12. 1986, og eftirlifandi Guðmundsson, f. 17.1. 1958, d. 6.3. 1960. 5) Ágúst Gliese Guðmunds- son rafeindavirki, f. 14.6. 1966, maki Kristín Arnardóttir, f. 16.7. 1966. Synir þeirra eru Örn, f. 1991, Eyþór, f. 1992, og Logi, f. 1997. Tove stundaði undirbúningsnám fyrir verðandi hjúkrunarnema í Rødkilde højskole á Møn vor og sumar 1943. Hjúkrunarnám hóf hún við Køge Sygehus haustið 1943 og lauk því í september 1946. Framhaldsnám í geðhjúkrun stundaði Tove við Sindsygehospit- al Oringe í Vordingborg veturinn 1946–1947. Tove giftist Guðmundi Guðmundssyni í Nakskov á Lá- landi 6. apríl 1947. Hann var við nám og störf í mjólkurfræðum á Sjálandi. Tove hóf svo hjúkrunar- störf á sjúkrahúsinu í Nakskov og starfaði þar í tvö ár, til ársins 1949. Árið 1949 fluttist Tove ásamt manni sínum og tveimur ungum börnum til Íslands og settust þau að á Selfossi. Við Sjúkrahús Selfoss starfaði Tove í eitt og hálft ár, 1960–1961. Í desember 1961 hóf hún störf við St. Jósefsspítalann í Reykjavík (Landakot) en fjölskyldan hafði þá nýlega flust til Reykjavíkur. Á Landakotsspítala starfaði Tove með nokkrum hléum til 1975, lengst af á barnadeild. Í janúar 1977 réðst Tove til starfa á öldrunardeild Borgarspít- alans við Barónsstíg og þar vann hún til starfsloka í desembermán- uði 1993. Útför Tove verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. systir Bodil Birgitte Gliese, f.v. ritari, f. 13.4. 1932. Eiginmaður Tove var Guðmundur Guð- mundsson mjólkur- fræðingur, f. 22.6. 1916 í Símonarhúsi á Stokkseyri, d. 21.5. 1974 í Reykjavík. Foreldrar Guðmund- ar voru Guðmundur Guðmundsson, bók- sali á Stokkseyri, og Þorbjörg Þorbergs- dóttir frá Arnarstöð- um í Hraungerðishreppi. Tove eignaðist fimm börn með manni sínum. Þau eru: 1) Helen Gliese Guðmundsdóttir, f. 2.7. 1947, f.v. maki Sigurjón Ríkharðsson, f. 25.1. 1946. Börn þeirra eru Rík- harður, f. 1965, Guðmundur Þór, f. 1968, og Helena, f. 1976. 2) Jón Gliese Guðmundsson mjólkur- fræðingur, f. 27.1. 1949, maki Dóra Bjarnadóttir, f. 17.1. 1948. Börn þeirra eru Bjarni Róbert, f. 1966, Sigrún Gliese, f. 1971, Birg- itta Gliese, f. 1972, og Jón Ingi, f. 1983. 3) Eiríkur Gliese Guðmunds- son sagnfræðingur,, f. 1.5. 1953, f.v. maki Jensína Waage Jóhanns- dóttir, f. 15.7. 1954. Börn þeirra eru Hrefna María, f. 1978, Lilja Björg, f. 1980, og Heiðrún Dag- mar, f. 1990. 4) Guðmundur Ágúst Tove tengdamóðir mín er látin. Ég kveð hana með miklum söknuði. Ég kom ung inn á heimili hennar þegar ég kynntist yngsta syni henn- ar á menntaskólaárum mínum. Heimili Tove var mér alltaf opið á þessum árum. Síðar þegar við eignuðumst drengina okkar var Tove alltaf boð- in og búin að hjálpa okkur á allan hátt. Ég get þakkað tengdamóður minni fyrir að ég lauk kennaranámi mínu á sínum tíma búin að eignast tvo eldri drengina en hún hvatti mig óspart áfram að ljúka námi. Tove kom ung til Íslands með eig- inmanni sínum og þá tveimur börn- um. Ég gat sett mig svolítið í spor hennar þegar við fjölskyldan fórum saman til Álaborgar og dvöldum þar við nám og störf og strákarnir okk- ar þrír stunduðu leik- og grunnskóla í dönsku samfélagi í þrjú ár. Það var ómetanleg reynsla fyrir okkur öll að kynnast föðurlandi tengdamóður minnar og okkur fannst við vera nánar tengd henni fyrir vikið. Síðustu mánuði fræddi hún okkur um æskuslóðir sínar og tíðarandann og margar skemmtilegar sögur komu fram í dagsljósið. Við þessi þáttaskil er efst í huga þakklæti fyr- ir þann tíma sem við fengum að njóta nærveru hennar. Kristín Arnardóttir. Það er erfitt að kveðja ástvin, og nú er komið að því að kveðja Tove ömmu. Lífsins vegur sem liggur fyr- ir hverjum manni og gleymir eng- um. Eirir engum. Þó svo maður leiti huggunar í að konan átti sín rúm áttatíu ár með fjölskyldu sinni læð- ast tárin að manni. Sorgin, eins og hún er. En í dag fylgjum við ástkærri móður, ömmu og langömmu okkar til grafar, þar sem hún verður jarð- sett við hlið afa heitins, og hyllum ævi hennar og arfleifð. Fyrir átján árum, aðfaranótt jóla- dags, gisti amma hjá okkur og fékk hún rúmið mitt en ég fékk gólfið. Tólf ára gömul stúlka horfir ekki á ömmu sína og sér fortíð, sögu eða að hún hafi nokkurn tímann verið stúlka eins og hún sjálf. Amma hef- ur alltaf verið amma. En þessa nótt, eftir allan matinn og yndislegu pakkana, gat ég engan veginn sofn- að og lá þarna á harða gólfinu. Þá byrjaði amma allt í einu að tala. Ekki eins og vananlega, heldur heyrði ég að þarna voru sögur að koma. Hálfhissa á ömmu hlustaði ég, og þegar ég virkilega fór að hlusta þá uppgötvaði ég að amma hafði upplifað allt annan tíma en ég. Verandi ein af tíu systkinum hefur amma þurft að vera sjálfstæð og ákveðinn einstaklingur, á meðan ég var langyngst af þremur og hálfgert einbirni, dekruð fram úr hófi. Hver hefur ekki heyrt ömmur segja „þegar ég var á þínum aldri …“ En amma var ekki þannig þessa nótt. Yfir þessum sögum lá ævintýrablær. Amma upplifði hersetu Þjóðverja í seinni heimsstyrjöldinni og talaði hún um útgöngubann eftir myrkur, andspyrnuhreyfingar og fólk sem upplifði hatur og eyðingu. Ég gat ekki hætt að spyrja hana. Af hverju þetta amma? Af hverju hitt? Allt sem mér datt í hug að spyrja hana um. Til að verða fimm um morguninn svaraði hún mér og gaf mér innsýn í líf sitt. Hjúkrunarnámið sitt, þegar hún vann á herrasetrum, þegar hún hitti afa sem var þá í Danmörku að læra til mjólkurfræði. Hjólreiðatúr- ar meðfram ökrum sem uxu það hátt að aðeins var hægt að sjá bláan himininn yfir heiðgulum breiðunum. Búferlaflutningarnir heim til Ís- lands með tvö ung börn, sjálf fár- veik, velkjast um á millilandaskipi. Um missinn þegar Guðmundur Ágúst lést og einnig þegar Guð- mundur afi lést. Ekkja rétt rúmlega fertug, þá með fjögur börn. Eflaust hef ég á endanum sofnað af þreytu, en ég man þetta vel. Til- finningin sem ólgaði í maganum á mér á meðan hún sagði frá. Seint gleymi ég þessari nótt. Margar góðar minningar á ég um ömmu mína sem eru mér dýrmætar. Hún kenndi mér að prjóna, leggja kapal, lesa Andrésar andar blöð á dönsku og hún kenndi mér að búa til sósu. Seinna meir fékk ég að eyða með henni heilu ári þegar ég flutti til hennar þegar ég byrjaði í fram- TOVE R. GUÐMUNDSSON Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS JÓNSSON, Flétturima 27, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi föstu- daginn 24. febrúar, verður jarðsunginn frá Garða- kirkju mánudaginn 6. mars kl. 11.00. Ágústa Magnúsdóttir, Kristján Sigfússon, Evert Sveinbjörn Magnússon, Hugrún Stefánsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir, Hildur Kolbrún Magnúsdóttir, Berglind Agnes Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær konan mín og móðir okkar, ÞORBJÖRG SVEINBJARNARDÓTTIR, Huppahlíð, Miðfirði, verður jarðsungin frá Staðarbakkakirkju, Miðfirði, laugardaginn 4. mars kl. 14.00. Helgi Björnsson, Ólöf Guðrún Helgadóttir, Björn Helgason, Jóhanna Hólmfríður Helgadóttir, Elínbjörg Helgadóttir, Hjalti Sigursveinn Helgason. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GRÓA BJARNEY HELGADÓTTIR, Skúlagötu 20, Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstudaginn 3. mars kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Sigrún Þorláksdóttir, María Þorláksdóttir, Þór Jóhannsson, Sigurjón Þorláksson, Svanfríður Magnúsdóttir, Gunnar Þorláksson, Kristín Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, fósturfaðir, afi, sonur og bróðir, ÞORVALDUR ÓSKARSSON frá Kaldárhöfða, Mánagötu 3, Grindavík, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugar- daginn 4. mars og hefst athöfnin kl. 13.00. Þórunn Sigurðardóttir. Sigríður Ragna Haraldsdóttir, Piotr S. Latkowski, Berglind Anna Haraldsdóttir, Kjartan Kristjánsson, Pálína Þorsteinsdóttir, barnabörn og systkini. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ÁSDÍSAR ÓLAFSDÓTTUR hjúkrunarkonu, Bólstaðarhlíð 15, Reykjavík. Þorvaldur Lúðvíksson, Hervör Lilja Þorvaldsdóttir, Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir, Lúðvík Þorvaldsson, Jóhanna Gunnarsdóttir, Ólafur Börkur Þorvaldsson, Ragnheiður Einarsdóttir, Þórhallur Haukur Þorvaldsson, Kristín Rut Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástríkur sonur okkar og bróðir, SIGURÐUR TRAUSTI KJARTANSSON iðntæknifræðingur, til heimilis í Kaupmannahöfn, áður Hjarðarhaga 44, Reykjavík, sem lést í vinnuslysi í Kaupmannahöfn miðviku- daginn 22. febrúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 3. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á LAUF (Landssam- band áhugafólks um flogaveiki) í síma 551 4570. Unnur Jensdóttir, Kjartan Trausti Sigurðsson, Kristín Maymann Kjartansdóttir og fjölskylda. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLVEIG HJÁLMARSDÓTTIR, Þúfubarði 13, Hafnarfirði, sem lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 23. febrúar, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 3. mars og hefst athöfnin kl. 13:00. Matthildur Kristensdóttir, Sæberg Guðlaugsson, Hilmar Kristensson, Sigrún Halldórsdóttir, Erlingur Kristensson, Gyða Úlfarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.