Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nafn Kristján Þór Júlíusson. Starf Forseti bæjarstjórnar á Ak- ureyri og fyrrverandi bæjarstjóri. Fjölskylduhagir Kvæntur Guð- björgu Ringsted og þau eiga fjögur börn. Kjördæmi Norðaustur, 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokks. Áhugamál Pólitík, stangveiði og bóklestur. Hvers vegna pólitík? Þetta er lifandi og gefandi starf, sem felur í sér samskipti við fólk, og er í það heila tekið skemmtilegt. Er Alþingi áhugaverður vinnustaður? Alveg örugglega. Það verður gaman að prófa að taka þátt í landsmál- unum og breyta til eftir tuttugu ár í sveitarstjórnarpólitík. Mér líst vel á að skipta um vettvang, takast á við ný verkefni og fá reynslu í öðru póli- tísku starfi en ég hef verið í sl. tvo áratugi. Fyrsta mál sem þú vilt koma á dagskrá? Meginatriðið í mínum huga er að við einbeitum okkur að því að byggja landið sem heild og auka skilning á milli byggðarlaga og landshluta. Ég tel þróun byggðar í landinu mótast fyrst og fremst af efnahags- og at- vinnumálum. Þetta eru í mínum huga ákveðin grundvallarmál. Þarf breytingar? Það er alltaf nauðsynlegt að gera ákveðnar breytingar en það er aftur spurning um hvort verið er að tala um pólitískar breytingar eða breyt- ingar á íslensku samfélagi almennt. Það er mikill hraði og breytingar á íslensku samfélagi alla daga. En ég held að breytingar geti oft verið af hinu góða. Listi sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi ber í sér mikla endurnýjun á fólki og viðhorfum þannig að við erum sannarlega að bjóða okkar kjósendum upp á breyttar áherslur. Nýir frambjóðendur | Kristján Þór Júlíusson Pólitík, stangveiði og bækur Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fínt að breyta Breytingar geta oft verið af hinu góða, segir Kristján. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is EFLA þarf umhverfisráðuneytið umtalsvert og flytja þangað mála- flokka frá sjávarútvegs- og iðn- aðarráðuneyti að mati frambjóð- enda VG sem í gær kynntu rit sitt Græn framtíð þar sem fjallað er um sjálfbæra þróun. VG telur að umhverfisráðuneytið þurfi að fá hliðstæða stöðu í Stjórnarráði Ís- lands og fjármálaráðuneytið. Í Grænni framtíð segir að rann- sóknir á náttúruauðlindum lands og sjávar, verndun þeirra og áætl- anir um nýtingu eigi að vera á for- ræði umhverfisráðuneytisins sem vel færi á að kenna við umhverfi og auðlindir. Sama á við um skipu- lagsmál sem snerta landið allt, há- lendi og byggðir, í samvinnu við sveitarfélögin, segir þar. Að sögn Katrínar Jakobsdóttur varaformanns VG snúast hug- myndir flokksins um að færa auð- lindastjórnun að einhverju leyti frá iðnaðarráðuneytinu til um- hverfisráðuneytisins. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður VG tel- ur að athuga þurfi hvort grunn- rannsóknir Hafró á lífríki hafsins eigi ekki að heyra undir umhverf- isráðuneytið í stað sjávarútvegs- ráðuneytisins. „Með þessum hug- myndum er ekki verið að boða það að nú eigi að skera upp ótal stofn- anir sem við höfum yfir að ráða, heldur fyrst og fremst að vera hvati til umræðu,“ sagði hún. Í Grænni framtíð segir að „úrelt skipan mála innan Stjórnarráðs- ins“ megi ekki lengur standa í vegi fyrir nauðsynlegum áherslu- breytingum hvað snertir fjármagn og tilfærslu verkefna milli ráðu- neyta. Í ritinu er gerð grein fyrir því langtímamarkmiði að orkuþörf þjóðarinnar verði fullnægt með sjálfbærum orkugjöfum þannig að náttúra og umhverfi bíði ekki óaft- urkræfan skaða. Varðandi fersk- vatnsauðlindina telur VG að tryggja beri verndun og sjálfbæra nýtingu ferskvatns og festa slíka stefnu í skipulagi. Einnig að fersk- vatnsvistkerfi verði rannsökuð og flokkuð og þau felld að heildar- stefnu um verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Þá verði sérstaða Ís- lands greind og lagt mat á sjálf- bæra nýtingu ferskvatns sem auð- lindar. VG telur að ferskvatn eigi að vera sameign landsmanna og binda eigi slík ákvæði í stjórn- arskrá. Þá vill VG stefna að því að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda fyrir miðja 21. öld um a.m.k. 60% að lágmarki miðað við árið 1990. Þá vill VG tryggja að stór hluti íslenskrar náttúru, lífríki, jarðmyndanir og landslag, fái að þróast eftir eigin lögmálum. Flokkurinn vill þá að sjálfbær og siðferðilega ábyrg nýting lífrænna auðlinda hafsins verði ætíð höfð að leiðarljósi og vill jafnframt auknar rannsóknir á sjávarvistkerfum, nytjastofnum og áhrifum veiða og veiðiaðferða. Endurheimt landsvæða Þá vill flokkurinn að gróðurlendi sem tapast hefur af manna völdum verði endurheimt með vistfræði- legum nálgunum og að fjölþætt landnotkun fylgi skipulagi sem taki mið af sjálfbærri þróun. Einn- ig þurfi að taka frá samfelld ósnortin og lítt snortin landsvæði fyrir komandi kynslóðir og Ísland eigi að verða til fyrirmyndar í verndun náttúru og umhverfis, m.a. í tengslum við ferðaþjónustu og útivist. Þá þurfi að treysta vitund þjóð- arinnar um mikilvægi umhverfis- ins og efla skilning á náttúrunni og hugmyndafræði sjálfbærrar þró- unar. Þá þarf að auka stig af stigi endurnýjanlega orkugjafa í sam- göngum og flutningum. Einnig þarf að draga úr hvers kyns skað- legri mengun innan íslensku efna- hagslögsögunnar og beita, ásamt fræðslu og lagafyrirmælum, meng- unargreiðslureglunni í því skyni. Vilja efla ráðuneytið Morgunblaðið/G. Rúnar Umhverfið Kolbrún Halldórsdóttir, Álfheiður Ingadóttir og Katrín Jak- obsdóttir, frambjóðendur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Í HNOTSKURN »Á næstu fimm árum þarfað fara yfir lög um holl- ustuhætti og mengunarvarnir að mati VG. Sama gildir um lög um náttúruvernd, skipu- lags- og byggingarlög, lög um mat á umhverfisáhrifum og aðra þá löggjöf og réttarheim- ildir sem snerta mengun. »VG vill að í vaxandi mæliverði horft til menningar- tengdrar ferðaþjónustu við uppbyggingu atvinnugrein- arinnar. LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu fær enn sem endranær tilkynn- ingar um veggjakrot og virðist sem ungmenni fari æ oftar um með úða- brúsa í hönd. Á þriðjudag urðu t.a.m. allmargir húseigendur í Kópavogi fyrir barðinu á ungum „listamönnum“ og samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu er tjónið all- mikið. Í nokkrum tilvikum er ekki hægt að þrífa veggjakrotið af, s.s. þar sem húsnæð er klætt með sér- stakri klæðningu. Þá greinir lög- reglan einnig frá því að fimm ungir piltar hafi verið staðnir að verki í miðborg Reykjavíkur. Þeir voru komnir upp á þak þegar að var komið og voru sakleysið uppmálað þegar spurt var út í gjörðir þeirra. Að sögn lögreglu voru piltarnir, sem eru á aldrinum 12–14 ára, vel búnir úðabrúsum og pennum, auk þess sem af útgangi þeirra mátti ráða hvað þeir höfðu fyrir stafni. Lögregla stóð fimm „krotara“ að verki LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu handtók sextán ára pilt í vest- urhluta Reykjavíkur á þriðjudags- kvöld en hann ók um á stolinni bifreið, auk þess sem hann hafði, eðli málsins samkvæmt, aldrei öðlast ökuréttindi. Þá bættist enn á brota- lista piltsins þegar leitað var í bif- reiðinni en þar fann lögregla þýfi úr tveimur nýlegum innbrotum. Pilturinn var færður til yfir- heyrslu og í kjölfar hennar voru tveir fimmtán ára piltar handteknir til við- bótar en þeir eru grunaðir um aðild að innbrotunum. Að sögn lögreglu hafa allir piltarnir komið við sögu lögreglunnar áður. Lögregla hafði hendur í hári fleiri afbrotaunglinga á þriðjudag því fimmtán ára piltur var tekinn hönd- um í Kópavogi fyrir verkfæraþjófn- að. Með í för voru þrjú önnur ung- menni og voru öll flutt á svæðisstöð lögreglunnar á Dalvegi. Hringt var í forráðamenn ungmennanna og þeir beðnir að sækja börn sín. Réðust að mannlausum bíl Nokkuð var um skemmdarverk á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag og t.a.m. bifreið skemmd sem hafði ver- ið skilin eftir í Mosfellsbæ eftir um- ferðaróhapp. Að sögn lögreglu eru skemmdirnar mun meiri eftir aðfarir skemmdarvarganna og tjón eigand- ans því töluvert. Þá var einnig nokkuð um rúðu- brot, s.s. í fyrirtæki í austurborginni. Afbrotaung- lingar á ferð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.