Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 29
Klaustrin í Göreme voru stofnuð og byggð á níundu öld þótt elsta kirkjan þar sé frá sjöttu öld. Inni í litlum kirkjunum eru fagurgerðir bogar og stundum allir veggir mál- aðir myndum úr lífi Jesús. Engin leið er að lýsa verunni í Göreme – eina leiðin er að drífa sig á staðinn. Dalur álfastrompanna Eftir heimsókn í þjóðgarðinn héldum við til Pasabag í Kapp- adókíu og undruðumst enn yfir landslaginu. Nú sáum við ekta álfa- borgir sem stóðu uppá háum klett- um og líktust helst afrískum strákofum. Svæðið er kallað Dalur álfastrompanna. Þessir dagar með ferðahóp Frið- riks G. Friðrikssonar voru afar góð- ir. Við gistum á hóteli og fórum á ekta tyrkneskt kvöld. Einnig er hægt að leigja sér herbergi í inn- gröfnu berghóteli sem er jafnframt safn sem innréttað hefur verið í eina klettaborgina. Í Kappadókíu ferðað- ist ég neðanjarðar um stund, skoð- aði listaverk ristuð og máluð í berg- kirkjur og skaut kolli út um álfastromp og fylgdist með tyrk- nesku tungli líða yfir himin. Byggð Munkaklaustur í Göreme Talið er að u.þ.b. 15 þús- und manns hafi búið neðanjarðar í borginni Kaymakli þegar mest var. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 29 Þar var veðrið stórkost- legt og um tugur ann- arra jeppa þar á ferð. Það er virkilega skemmtilegt að aka á traustu ökutæki upp Hamragarðsheiðina og þaðan upp að Goða- steini. Þegar bílunum er lagt neðan við stein- inn taka ferðalangar hver annan tali og þarna myndast góð stemmning. Dregnir eru fram kaffibrúsar og brauðbiti, kveikt í síg- arettum og spjallað svo- lítið. Síðan eru teknar einhverjar myndir, brauðskorpum og sígarettustubbum hent á hvítan jökulinn og brunað í burtu. Mikið hrikalega er þetta leið- inlegt. Er virkilega ekki hægt að ganga betur um náttúruna? Og þarna voru börn með í för. Aldeilis gaman að láta þau horfa upp á svona lagað. x x x Í borgarumferðinni sér Víkverjihvað eftir annað fólk henda log- andi sígarettustubbum út um bíl- gluggann sem nánast springa út í glóðarregni á götunni, þeim sem á eftir kemur til mikils ama. Hvað ef bensíntankur á bíl er lekur? Víkverji veltir þessu svona fyrir sér á síð- kvöldum. Víkverji verður aðviðurkenna að hjólreiðar hans í vetur voru allt of litlar. Of oft valdi hann bílinn og lagði sitt af mörkum til mengunar í borginni. Þetta skýrist af því að Víkverji tók sér ekki þær 20 mínútur sem þarf til að undirbúa sex mílna hjólreiðaferð. Það þarf að klæða sig aðeins betur og setja upp endurskinsborða á buxnaskálmarnar að ógleymdum hjálm- inum. Síðan var ýmist of hvasst eða of mikið svifryk. Nú eða þá að það var allt of vott – taldi Víkverji. Og hann átti eft- ir að fá sér betra afturbretti. Þannig mætti telja upp afsakanir sem dugðu heilan vetur. En því má ekki gleyma að Víkverji fór allnokkrum sinnum á hjólinu og fannst það óviðjafnanlegt. Ekki þarf að kvarta yfir hjólaleiðum frá miðbænum upp í Hádegismóa, þannig að sökin liggur alfarið hjá Víkverja. Hann á nú tvo kosti, að snúa við blaðinu og hætta vælinu eða snúa því ekki við en hætta vælinu eft- ir sem áður, það er svo leiðinlegt að hlusta á svoleiðis. x x x Víkverji ók á jeppa upp á Eyja-fjallajökul á föstudaginn langa.         víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Miklar yrkingar spunnust umLorem ipsum á Leirnum í framhaldi af limru Ara Eldjárns sem birtist hér fyrir nokkru. Stefán Vilhjálmsson velti fyrir sér „rími við haps og við blasti snafs (með b framburði)“, en hann ákvað að prófa annað: Oft mig hendir árans laps- us ef brag skal vanda, í hverri línu hipsum haps hortittirnir standa. „Ja, hvurugur andskotinn,“ komst einn leirverja að orði. Jón Arnljótsson greip árann á lofti: Fjöldinn hefur verið vandi, þó vissu hafi margir skólar, en andskotinn er óteljandi, eins og bæði vötn og hólar. Hálfdan Ármann Björnsson: Í Húnaþingum hann má sjá í hópum meður úrval tóla. Þykir minna einkum á Arnarvatnsheiði og Vatnsdalshóla. Loks Jóhannes Sigmundsson í Syðra-Langholti: Fúl og ill er fjandans art sem finnst í byggðum þessa lands. En Húnaþingið held ég vart sé höfuðvígi andskotans. Haps og andskotinn VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is HIÐ margfræga Tívolí í Kaupmannahöfn opnar á morg- un á ný eftir vetrarfrí og í ár mega gestir eiga von á áður óþekktum ævintýrum. Má þar nefna nýtt skemmtitæki fyrir börn, ballett sem settur er upp í leikmynd eftir Margréti Danadrottningu, haldið verður upp á tíu ára af- mæli föstudagsrokksins og heimsfrægir tónlistarmenn troða upp á tónleikaröð í konsertsalnum. Bókin Sæfarinn eftir Jules Vernes var innblástur fyrir nýja hringekju í Kátínuhorni tívolísins (Tivolis Muntre Hjørne). Hún er í laginu eins og kolkrabbi en umhverfis hann sigla tólf litlir kafbátar í anda Nautilus, fleys Ne- mós kapteins. Litlu skipstjórarnir munu geta stýrt hæð kafbátanna sem fara hring eftir hring í kring um kol- krabbann en leikurinn gengur út á að forðast að lenda í vatni sem gusast undir bátunum. Þriðja sýningin með leikmynd hennar hátignar Mar- grétar Danadrottningar verður frumsýnd 14. júlí í sumar og nefnist Eldfærin (Fyrtøjet). Nú sem áður er um sam- vinnuverkefni drottningarinnar, danshöfundarins Dinna Bjørn og tónsmiðsins James Price að ræða. Von Otter og Macy Gray Allt frá árinu 1997 hafa gestir Tívolísins átt kost á að sækja tónleika á föstudögum með dönskum og erlendum rokkstjörnum á stóra sviðinu í tívolígarðinum. Föstu- dagsrokkið, eins og þessar uppákomur eru kallaðar, heldur upp á tíu ára afmæli sitt með því að fá m.a. Pet Shop Boys á senuna í sumar en aðaluppákoman verður þann 22. júní þegar afmælisins verður minnst með stór- tónleikum. Meðal tónlistarfólks í Konsertsalnum verða sænski mezzo-sópraninn Anne Sofie von Otter sem syngur fyrir Tívolígesti 10. júní og Sköpun Haydns verður flutt 24. Tívolí opnað á morgun Gaman saman Tívolíið í Kaupmannahöfn er vinsæll viðkomustaður fyrir fjölskyldur í sumarfríi. www.tivoli.dk júní með hinum lágvaxna bassasöngvara Thomas Quast- hoff, sópransöngkonunni Klöru Ek og tenórnum Marcel Reijans. Af dægurstjörnum má nefna þær Rickie Lee Jones sem heldur tónleika í salnum þann 27. apríl og Macy Gray sem treður upp 30. maí. Nánari dagskrá er að finna á heimasíðu tívolísins. MARGIR hótelgestir yfirgefa hótel sem þeir gista á með mun meira í farangrinum en þeir komu með. Ástæðan er sú að margir freistast til að taka með sér heim hótelhand- klæði og hverskonar vörur sem til- heyra hótelum. Handklæðin á góð- um hótelum eru nefnilega stundum svo undursamlega mjúk og sama er að segja um baðsloppana. En nú er hægt að fá slíkar vörur, án þess að taka þær frjálsri hendi og án alls samviskubits, því Rad- isson Hótel hafa sett á stofn eigin netverslun með hótelvörum sínum: The Radisson Guest Room Bouti- que. Þar er hægt að kaupa sængurföt, sturtuhengi, útvarpsvekjaraklukk- ur með geislaspilara, handklæði, hárblásara, sjampó og líkamskrem, svo eitthvað sé nefnt. Og allt er þetta vel merkt Radisson hótelun- um. Talsmenn Radisson hótelanna segjast upp með sér af því að gestir þeirra séu svo hæstánægðir með hóteldvöl hjá þeim að þeir vilji taka með sér heim alls kyns minjagripi. Eins segjast þeir komast í betra samband við gesti sína með því að bjóða þeim að kaupa hótelvörurnar. Verslun fyrir fingralanga hótelgesti Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Freistandi Margir hótelgestir taka eitthvað með sér heim. www.radissonguestboutique.com Vika á Florida kr. - ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar. Huyndai Accent eða sambærilegur 522 44 00 • www.hertz.is 17.200frá ÍS L E N S K A /S IA .I S /H E R 36 91 9 04 /0 7 Bókaðu bílinn heima fyrir 1.maí - og fáðu 1.000 Vildarpunkta            
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.