Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is ANNA M.Þ. Ólafsdóttir, fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, er nýkomin frá Pakistan þar sem hún kynnti sér neyð- ar- og uppbygg- ingarstarf á veg- um Alþjóða- neyðarhjálpar kirkna (ACT) vegna jarð- skjálfta sem kost- aði 80.000 manns lífið og olli mikilli eyðileggingu í október 2005. Anna segir að hjálp- arstarfið hafi haft gríðarmikla þýð- ingu fyrir íbúa hamfarasvæðisins og fólk sé almennt ánægt með hvernig staðið var að hjálpinni. Enn sé þörf á aðstoð vegna fátæktar og vannær- ingar meðal íbúanna. Um 16,7 milljónir króna söfnuðust hér á landi í Pakistan-söfnun Hjálp- arstarfs kirkjunnar vegna jarð- skjálftans. Fjármálaráðuneytið hef- ur endurgreitt virðisaukaskatt, sem heimtur var af sölu disksins „Hjálp- um þeim“, og allur ágóðinn, um tíu milljónir króna, hefur því skilað sér til fórnarlamba skjálftans. Allir sem komu að sölu og gerð disksins gáfu vinnu sína. Fénu hefur verið varið til hjálpar- og uppbyggingarstarfs á vegum Alþjóðaneyðarhjálpar kirkna sem veitti 30.000 fjölskyldum ýmiss konar neyðaraðstoð frá því að skjálftinn varð og þar til henni lauk formlega í lok mars á síðasta ári. Flóttamannabúðum var þá lokað að beiðni pakistanskra stjórnvalda sem vildu ekki að fólkið yrði háð að- stoðinni og einnig vegna þess að apr- íl er sáningarmánuður. Margir íbúar fjallaþorpa komu þó aftur í búðirnar í vetur og stefnt er að því að gera þeim kleift að snúa aftur til heim- kynna sinna fyrir 30. júní. Mjög fjölbreytt aðstoð Eftir að neyðaraðstoðinni lauk formlega hófst uppbyggingarstarf sem gert er ráð fyrir að standi til ársins 2009 og nái til hundraða þús- unda manna. „Vatns- og frárennslismál hafa vegið þungt í hjálparstarfinu, bæði í tjaldbúðum og svo í þorpunum eftir að fólk sneri aftur heim,“ segir Anna M. Þ. Ólafsdóttir. „Eftir að fólkið fór heim færðist starfsemin í héruðin. Þar hafa verið haldin ýmiskonar námskeið, til dæmis í húsasmíði, raf- virkjun, múrverki og húsgagnagerð, og þau hafa gert körlunum kleift að byggja upp heimili sín aftur og líka að stofna eigin fyrirtæki eða aðstoða aðra. Síðan hafa verið haldin ýmiss konar námskeið fyrir konur og íbú- arnir hafa líka fengið tækifæri til að hittast, en það er mjög mikilvægt, sérstaklega fyrir konurnar sem hafa verið svo einangraðar. Þær eiga bara að vera heima og eftir að þær verða kynþroska eru þær oftast inni á heimilunum, fara til dæmis ekki á markað til að kaupa inn, karlarnir gera það.“ Anna segir að konur hafi einnig fengið húsdýr „til að styrkja fram- færsluna og bæta næringuna í fjöl- skyldunni“. Fræðsla um handþvott, salernisnotkun, meðhöndlun mat- væla, umönnun ungra barna og fleira hafi borið þann árangur að smitsjúkdómatilfellum hafi fækkað um helming. Tekist hafi að afstýra farsóttum, sem hætt er við að blossi upp eftir náttúruhamfarir, til að mynda kólerufaraldri. „Í tjaldbúðunum gafst mörgum konum í fyrsta skipti tækifæri til að leita læknis því þeim var boðið upp á kvenlækni, en þær hafa ekki mátt eða átt erfitt með að leita til karl- lækna. Í búðunum var því hægt að taka á fjölmörgum vandamálum sem ekki var hægt áður.“ Anna nefnir ungbarnadauða í þessu sambandi og segir að m.a. hafi konur í þorpunum fengið þjálfun í að veita fæðingarhjálp og það hafi skipt sköpum vegna þess hversu erfitt konurnar hafa átt með að leita til karlkyns lækna. Hjálpin hefur skipt sköpum fyrir marga Ljósmynd/Anna M.Þ. Ólafsdóttir Læknishjálp Blóðþrýstingur konu mældur í miðstöð sem Alþjóðaneyðarhjálp kirkna rekur í Pakistan, aðallega fyrir konur og börn. Þar hefur mörgum konum gefist fyrsta tækifærið til að fá læknisþjónustu. Í HNOTSKURN » Um 80.000 manns létulífið og 160.000 slösuðust í jarðskjálftanum sem reið yf- ir Pakistan 8. október 2005. Hann mældist 7,6 stig á Richters-kvarða. » 3,5 milljónir manna urðuheimilislausar. 10.000 börn urðu munaðarlaus. » 6.000 skólar og þúsundsjúkrahús og heilsugæslu- stöðvar hrundu í hamför- unum. Í sumum þorpum hvarf heil kynslóð með skóla- börnum sem grófust undir rústunum. Anna M.Þ. Ólafsdóttir NICOLAS Sarkozy, forsetaefni hægrimanna í Frakklandi, er sagður hafa samþykkt að ómerkja spill- ingarákærur á Jacques Chirac, nú- verandi forseta, gegn því, að Chirac styddi hann opinberlega. Það var vikuritið Le Canard En- chaine, sem skýrði frá þessu í gær en talsmaður Chirac vísaði fréttinni á bug sem staðlausum stöfum. Engin viðbrögð urðu hins vegar við henni í herbúðum Sarkozys. Vikuritið segist hafa fréttina eftir einum „stuðningsmanna Chirac“ en að hans sögn var um það samið, að Chirac lýsti yfir stuðningi við Sarkozy, sem hann hafði dregið furðu lengi, gegn því, að Sarkozy forðaði honum frá málaferlum. Það ætti hann ekki að gera með sérstakri sakaruppgjöf, heldur með því að breyta refsilögum þannig, að dóm- arar yrðu skyld- aðir til að ljúka málum innan tíu ára. Grunur leikur á, að Chirac hafi tengst nokkrum málum, sem snúa að ólöglegri fjár- mögnun stjórn- málaflokka, þeg- ar hann var borgarstjóri í París frá 1977 til 1995 en hann naut friðhelgi sem forseti. Henni lýkur aftur á móti þegar hann lætur af embætti 16. maí næstkomandi. Dómarar sögðu í síðasta mánuði, að þeir hygðust spyrja Chirac spjör- unum úr eftir að hann léti af embætti en nokkrir samherja hans, t.d. Alain Juppe, hafa nú þegar verið dæmdir fyrir sinn hlut. Verða spillingarmál Jacques Chirac ógilt? Nicolas Sarkozy ÍSLAND 2050 TVE IR Á MÓTI E INUM A Ð A L F U N D U R S A M T A K A A T V I N N U L Í F S I N S 1 7 . a p r í l 2 0 0 7 á H ó t e l N o r d i c a OPIN DAGSKRÁ Skráning á vef SA – w w w . s a . i s 14:00 „ÍSLAND 2050 – TVEIR Á MÓTI EINUM” Framtíðarleiftur Ræða Ingimundar Sigurpálssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins Ræða Geirs H. Haarde, forsætisráðherra 15:00 Kaffiveitingar – framtíðarmyndir 15:30 Hvert stefnum við? Niðurstöður könnunar Capacent Gallup á framtíðarviðhorfum Íslendinga Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknarstjóri Capacent Gallup Umræður: Guðfinna S. Bjarnadóttir, fv. rektor HR Karl Wernersson, Milestone Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvá Þóra Helgadóttir, hagfræðingur í greiningardeild Kaupþings Þórður Friðjónsson, forstjóri Nordic Exchange á Íslandi Stjórnandi: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA 16:30 Fundarlok Fundarstjóri: Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums Fundarmenn fá ritið: Ísland 2050 - Hvert stefnum við? English translation SK A P A R IN N A U G LÝ SI N G A ST O FA Frá Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis Framboðsfrestur vegna alþingiskosninga 12. maí 2007, rennur út föstudaginn 27. apríl 2007, kl. 12.00 á hádegi. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðum á Hótel Borgarnesi, Egilsgötu 14-16, 310 Borgarnesi, milli kl. 10.00 og 12.00 árdegis, föstudaginn 27. apríl 2007. Á framboðslista í Norðvesturkjördæmi skulu vera 18 nöfn. Fjöldi meðmælenda er að lágmarki 270 og eigi fleiri en 360. Fylgja skal tilkynning um hverjir séu umboðsmenn framboðslistanna. Framboðslistar verða úrskurðaðir á fundi yfirkjörstjórnar sem haldinn verður á Hótel Borgarnesi, laugardaginn 28. apríl 2007, kl. 10.00. Meðan kosning fer fram laugardaginn 12. maí 2007, verður aðsetur yfirkjörstjórnar á Hótel Borgarnesi. Talning atkvæða að kjörfundi loknum, mun fara fram í Íþróttamiðstöðinni, Þorsteinsgötu 1, Borgarnesi. Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis Borgarnesi 10. apríl 2007. Sigurjón Rúnar Rafnsson form. Ólafur K. Ólafsson Ríkharður Másson Guðný Ársælsdóttir Jens Kristmannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.