Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Algeirsborg. AFP, AP. | Hryðjuverka- samtökin al-Qaeda segjast hafa staðið fyrir tveimur sjálfsvígs- sprengjuárásum í Algeirsborg, höf- uðborg Alsír, í gærmorgun. Minnst 23 létu lífið og yfir 160 særðust en þrír bílar, lestaðir sprengiefni, sprungu utan við skrifstofur for- sætisráðuneytisins, skrifstofu al- þjóðalögreglunnar Interpol og als- írska lögreglustöð. Birtar voru myndir af tilræð- ismönnunum á vefsíðum íslamista og sögðu að 800 kíló af sprengiefni hefðu verið í öðrum bílnum, 700 í hinum. Miklar skemmdir urðu á framhlið ráðuneytisins. Sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sagði að hringt hefði verið í hana og tals- maður al-Qaeda er nefndi sig Salah hafi sagt að ekki yrði látið staðar numið fyrr en öll landsvæði íslams hefðu verið frelsuð undan oki er- lendra herja. Einnig krafðist hann frelsis fyrir „kúgaða fanga í Alsír, Marokkó og Máritaníu“. Al-Qaeda á bak við mannskæð tilræði í Algeirsborg Reuters Skelfing Hugað að fórnarlömbum tilræðanna í Algeirsborg í gær. KÆFANDI sumarhitar gætu orðið miklu algengari í Evrópu vegna loftslagsbreytinga í heiminum að sögn sérfræðinga á þessu sviði í gær. „Svo gæti farið að annað hvert sumar yrði jafnheitt eða heitara en sumarið 2003,“ sagði Andreas Fischlin, loftslagssérfræðingur við rann- sóknarstofnun í Sviss og aðalhöfundur kafla um vist- kerfi í nýlegri skýrslu vísindanefndar Sameinuðu þjóð- anna um loftslagsbreytingar í heiminum. Um 70.000 manns létu lífið í hitabylgju í Evrópu sum- arið 2003, flestir þeirra aldrað fólk sem dó af völdum vessaþurrðar. „Líklegt er að sumrin verði stundum miklu heitari en árið 2003 fyrir lok aldarinnar,“ sagði Martin Beniston, sérfræðingur við Genfarháskóla, og einn af höfundum skýrslunnar. Hann bætti þó við að hægt yrði að fækka dauðsföllunum um 80% ef yfirvöld og einstaklingar gerðu nægar varúðarráðstafanir. Í skýrslunni kemur einnig fram að um 60% plantna í Ölpunum geti verið í útrýmingarhættu vegna loftslagsbreytinganna. Varað við tíðum og skæðum hitabylgjum í Evrópu Piltur kælir sig í hitasvækju í París. NÝJAR reglur um akstur flutn- ingabifreiða tóku gildi innan Evr- ópusambandsins í gær en sam- kvæmt þeim verða bílstjórar að fá að minnsta kosti 45 klukkustunda samfellda hvíld á hverjum hálfum mánuði og vinnuvikan má ekki vera meira en 60 klukkustundir. Jacques Barrot, sem fer með samgöngumál í framkvæmda- stjórn ESB, sagði, að nýju regl- urnar væru merkur áfangi og stuðluðu að auknu umferðarör- yggi. Nýju reglurnar koma í stað annarra frá árinu 1985 en sam- kvæmt þeim máttu atvinnubíl- stjórar vera við akstur í 74 klukkustundir á viku. Nú er kveð- ið á um 11 klukkustunda hvíld á sólarhring. Ný lög Vinnuvika bílstjóra verður hér eftir 60 klst. á viku hverri. Vinnutími bíl- stjóra skertur TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, skoraði í gær á samfélag svartra manna í landinu að rísa upp og berj- ast gegn vaxandi glæpum svartra ungmenna. Hvatti hann um leið til, að lög um glæpagengi yrðu hert en gengin eru sökuð um mörg morð að undanförnu. Blair sagði þetta í Cardiff eftir að 14 ára gamall drengur var stunginn til bana en frá því í janúar hafa sjö unglingar undir 16 ára aldri verið drepnir. „Blökkufólk í landinu, heiðarlegt fólk upp til hópa, verður að taka af skarið í baráttunni gegn glæpagengj- unum og morðunum á svörtum unglingum. Það þýðir ekkert að loka augunum og láta sem það séu ekki svartir unglingar, sem eigi sök á þeim,“ sagði Blair. „Sökudólgurinn er ákveðnir hópar, sem ekki fara eftir þeim reglum, sem gilda í siðuðu samfélagi.“ Fordæmir svört gengi Tony Blair KÚBUSTJÓRN fordæmdi í gær úr- skurð dómara í Nýju Mexíkó sem hyggst láta lausan Kúbverjann Luis Posada Carriles. Kúbustjórn sakar Posada um aðild að hryðjuverki gegn farþegavél árið 1976. Gagnrýna úrskurð MAROKKÓ kynnti í gær fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna tillögur sem ríkið segir miða að sjálfstjórn Vestur-Sahara. Marokkó hernam landið fyrir 30 árum. Boða sjálfstjórn MANNRÉTTINDASAMTÖKIN Amnesty Internatioal segja í nýrri skýrslu að Egyptaland sé orðið al- þjóðleg miðstöð yfirheyrslna og pyntinga í tengslum við svonefnt stríð gegn hryðjuverkum. Pyntingamiðstöð? BANDARÍSKIR vísindamenn hafa fundið vísbendingar um að vatn sé í andrúmslofti plánetu sem er utan sólkerfis okkar. Vatn er talið vera meginforsenda þess að líf geti kviknað í náttúrunni. Merki um vatn TÚLÍPANAAKRAR í Hollandi eru nú víða í blóma eins og þessi við þorpið Kaag skammt frá Amsterdam. Teg- undirnar eru um 100 og litbrigðin og lögun blómanna mjög margvísleg. Einkenni eins eftirsóttasta afbrigð- isins áður fyrr, „fjaðraði túlípaninn“, stöfuðu raunar af veirusýkingu, sem nú er búið að uppræta að mestu. Á 17. öld var sannkallað túlípanaæði í Hollandi og laukar af eftirsóttum afbrigðum seldust fyrir of fjár. Alexandre Dumas skrifaði síðar söguna Svarta túlípanann en í henni hétu yfirvöld í Haarlem þeim, sem fyrstur gæti ræktað svartan túlípana, miklum verðlaunum. Það mun þó vera líffræðilega ómögulegt. AP Túlípanaakrar í blóma „ÁSTANDIÐ í Írak er skelfilegt og þjáningar almennings, karla, kvenna og barna, aukast stöðugt og eru næstum því ólýsanlegar.“ Kemur þetta fram í nýrri skýrslu frá Al- þjóða Rauða krossinum en Pierre Krähenbühl, einn af æðstu embætt- ismönnum hans, segir, að mörgum Írökum finnist sem þeir hafi verið sviptir allri mannlegri reisn og hver dagur geti orðið þeirra síðasti. Á blaðamannafundi í Genf sagði Krähenbühl, að ástandið í Írak versnaði stöðugt og snerti með ein- um eða öðrum hætti alla íbúa lands- ins. Sagði hann, að sú ákvörðun George W. Bush Bandaríkjaforseta að fjölga í herliði Bandaríkjanna í því skyni að auka öryggi almenn- ings, einkum í Bagdad, væri ekki enn farin að skila áþreifanlegum ár- angri og hann skoraði á bandaríska hermenn og hermenn annarra ríkja í Írak að virða mannréttindi al- mennra borgara. Helmingur lækna hefur flúið landið Krähenbühl sagði, að heilbrigðis- kerfið í Írak væri að miklu leyti í rúst með alvarlegum afleiðingum fyrir fólkið í landinu. Íraska innan- ríkisráðuneytið áætlar, að helming- ur lækna í landinu hafi flúið landið en síðan bætist við, að fólk þorir ekki að fara út úr húsi til að leita læknis af ótta við, að því verði rænt á leiðinni. Í skýrslu Rauða krossins, „Ber- skjaldaðir borgarar – Mannleg neyð í Írak“, eru allir, sem hlut eiga að máli, hvattir til að hlífa óbreyttum borgurum og gera skýran greinar- mun á þeim og vopnuðum mönnum í þeim átökum, sem eiga sér stað í landinu. Fjögur ár eru liðin frá innrás Bandaríkjamanna í Írak og ástandið allt annað og skelfilegra en nokkurn óraði fyrir. Tugir eða jafnvel hundr- uð þúsunda manna hafa fallið og nokkuð á þriðju milljón manna hefur flúið landið, einkanlega til nágranna- ríkjanna, Sýrlands og Jórdaníu. Skelfilegt ástand í Írak Flestir innviðir samfélagsins mega heita rústir einar www.hi.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 3 70 84 0 4/ 07 Spennandi kostir í framhaldsnámi Gott nám og rétt val þess er farsæl leið til lífsgæða og aukinna möguleika í starfi. Við félagsvísindadeild Háskóla Íslands bjóðast margir spennandi kostir í námi hjá hæfum og reyndum kennurum. Góðar aðstæður til náms • Fjölbreytni og sveigjanleiki • Starfstengt rannsóknarnám Nám með starfi • Nám stutt rannsóknum kennara Félagsvísindadeild Háskóla Íslands Odda v/Sturlugötu, 101 Reykjavík Sími 525-4502, felvisd@hi.is FÉLAGSVÍSINDI – Í ÞÁGU FRAMFARA FÉLAGSVÍSINDADEILD Doktorsnám í öllum greinum. Allar upplýsingar á www.felags.hi.is Umsóknarfrestur um meistara- og doktorsnám er til 16. apríl • MLIS-nám í bókasafns- og upplýsingafræði • Cand. psych.-nám í sálfræði • MA-nám og diplómanám í uppeldis- og menntunarfræði • MA-nám og diplómanám í kennslufræði til kennsluréttinda • MA-nám og diplómanám í fötlunarfræði • MA-nám og diplómanám í félagsfræði • MA-nám í blaða- og fréttamennsku • MA-nám og diplómanám í náms- og starfsráðgjöf • MA-nám og diplómanám í kynjafræði • MSW-nám í félagsráðgjöf • MA-nám og diplómanám í félagsráðgjöf • MA-nám í öldrunarfræðum • MA-nám í mannfræði • MA-nám og diplómanám í þróunarfræðum • MA-nám í þjóðfræði • MA-nám í hagnýtri þjóðfræði • MPA-nám og diplómanám í opinberri stjórnsýslu • MA-nám og diplómanám í alþjóðasamskiptum • MA-nám í stjórnmálafræði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.