Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Fáskrúðsfjörður | Lokið er bygg- ingu 770 fermetra húss fyrir starf- semi leikskóla og tónskóla á Fá- skrúðsfirði og vígsla þess áformuð um næstu mánaðamót. Húsið er teiknað af Orra Árnasyni hjá teiknistofunni Zeppilín í Reykja- vík og byggingameistari hússins var Þorsteinn Bjarnason hjá Tré og steypu á Fáskrúðsfirði. Verkið hófst 1. desember 2005 og lauk 30. mars 2007 eða á þeim tíma sem áætlaður var. Byggingin er tengd grunnskóla- húsinu á Fáskrúðsfirði og er fyrri áfangi af viðbyggingu við húsið og hefur seinni áfangi verið boðinn út og útboð væntanlega opnuð seinni hluta aprílmánaðar. Sá áfangi sem búinn er kostaði 170 milljónir og er þá hönnunarkostnaður ekki innifal- inn. Gert er ráð fyrir að starfsemi hefjist í skólanum 30. apríl n.k. Morgunblaðið/Albert Kemp Tilbúið Fyrri áfangi viðbyggingar við grunnskóla Fáskrúðsfjarðar mun hýsa leikskóla og tónlistarskóla. Nýtt húsnæði fyrir leik- og tónskóla tilbúið Djúpivogur | Annan í páskum lögðu nokkrir Djúpa- vogsbúar ásamt fréttaritara Morgunblaðsins á fjöll á þremur vel útbúnum jeppum og óku sem leið lá frá Öxi vestur eftir snæviklæddum melum, með það að mark- miði að keyra upp tind Hofsjökuls eystri sem liggur á mörkum Djúpavogshrepps inn af Álftafirði. Það markmið náðist en þegar á topp jökulsins var komið helltist yfir svarta þoka þannig að útsýnið brást í það skiptið og myndavélin var lögð til hliðar. Í upphafi ferðar var hins vegar heiðskírt og fjallasýn stórbrotin og útsýn niður í hina ægifögru dali Djúpa- vogshrepps mikil og stórfengleg. Þegar komið var inn fyrir Líkárvötn blasti m.a. við hið mikla Snæfell sem skartaði sínu fegursta í sólinni. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Fögur eru fjöllin AUSTURLAND KRÓATÍSKI kappinn Ivica Kost- elic, sem hér er í brautinni í gær, sigraði í svigi á alþjóðlega Ice- landair-mótinu á skíðum Hlíð- arfjalli, eins og í Bláfjöllum í fyrra- dag. Engan skal undra að Kostelic hafi unnið enda handhafi silfur- verðlauna frá síðustu Ólympíu- leikum. Magnus Andersson frá Sví- þjóð varð annar í svigkeppni karlanna og Björgvin Björgvinsson, landsliðsmaður frá Dalvík, varð þriðji. Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri, besta skíðakona landsins síðustu misseri, sigraði örugglega í svigi kvenna. Salóme Tómasdóttir, ung stúlka frá Akureyri, varð í öðru sæti og önnur ung Akureyr- armær, Tinna Dagbjartsdóttir, varð þriðja, Rataj Mojca frá Bosníu Herzegóvínu lenti í fjórða sæti og Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir, Breiðabliki, varð fimmta. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Króatinn sýndi listir sínar BJÖRGVIN Björgvinsson frá Dal- vík og Akureyringurinn Dagný Linda Kristjánsdóttir eru óneitan- lega lang-sigurstranglegust í alpa- greinum á Landsmótinu á skíðum sem hefst í dag á Akureyri. Mótið verður sett í dag kl. 17.30 í Brekkuskóla en keppni í alpagrein- um hefst á morgun. Í dag kl. 17.30 fer fram fyrsta keppnisgrein; sprettganga karla og kvenna. Á morgun, föstudag, hefst keppni í stórsvigi karla og kvenna kl. 10.00 og seinni ferðin hefst kl. 13.30. Ganga með frjálsri aðferð hefst á morgun kl. 13.00 þar sem konur ganga 5 km, piltar 17–19 ára ganga 10 km og karlar 15 km. Svig karla og kvenna verður á laugardaginn; fyrri ferðin hefst kl. 9.00 og sú seinni 13.00. Ganga með hefðbundinni aðferð hefst kl. 11.00. Konur ganga þá 5 km, piltar 17–19 ára 10 km og karl- ar 10 km. Á sunnudaginn verður boðganga kl. 12.00; konur fara 3x2,5 km og karlarnir ganga 3x7,5 km. Landsmót- ið á skíðum hefst í dag Björgvin og Dagný sigurstranglegust SMÁRATORG ehf. hefur á ný auglýst eftir tilboðum í stækkun verslunarmiðstöðvarinnar Glerártorgs. Verkið var boðið út fyrir skömmu en þá barst ekkert tilboð og ljóst er að sögn við- mælenda Morgunblaðsins að helsta ástæða þess er einfaldlega sú að allir verktakar á svæðinu hafa mikið að gera um þessar mundir. Sömu sögu er reyndar að segja af öðrum slíkum fyrirtækjum á landinu. Samkvæmt fyrra útboðinu var gert fyrir því að hefja framkvæmdir við uppbygginguna á næstunni og að húsið yrði tekið í notkun hinn 1. nóvember í haust þar sem 30 verslanir bætast við þær sem fyrir eru. Samkvæmt nýja útboðinu skal verkinu að fullu lokið 30. apríl á næsta ári, þannig að það er ljóst að ef þessar breyttu forsendur eigenda miðstöðvar- innar ganga eftir verður nýi hlutinn tekinn í notkun um það bil hálfu ári síðar en fyrirhugað var í fyrstu. Það sem útboðið nýja snýst um er viðbygging og breytingar á eldra húsnæði. Viðbyggingin er á tveimur hæðum að hluta. Heildarflatarmál hennar er um 10.000 m², grunnflötur er um 8.200 m² og 2. hæð er um 1.800 m². Tilboðið nær til uppsteypu, frá- gangs á sameiginlegum rýmum og frágangs að ut- an. Samkvæmt útboði skal verktaki ganga frá um 17.000 m² lóð sem fylgir þessum hluta. Verslunar- rýmum skal skila tilbúnum til innréttinga. Enn- fremur er verkið fólgið í breytingum á tveimur stórum verslunarrýmum í núverandi verslunarmið- stöð, alls um 3.700 m². Annað útboð vegna Glerártorgs Ekkert tilboð barst í stækkun miðstöðvarinnar er verkið var boðið út um daginn Í HNOTSKURN » Heimildir Morgunblaðins herma aðÁfengis- og tóbaksverslun ríksins, ÁTVR, sé ein þeirra nýju verslana sem flytjast í Glerártorg eftir breytingar. »Verslunarmiðstöðin tvöfaldast um þaðbil að stærð þegar nýi hlutinn verður opnaður. SÍÐASTA vetrardag, 18. apríl verð- ur söngvaleikurinn Ævintýri á gönguför eftir Hostrup leiklesinn hjá LA í tilefni afmælisárs. Hinn 19. apríl verður Leikfélag Akureyrar 90 ára og fyrr í vetur var 100 ára afmæli Samkomuhússins fagnað. Ævintýri á gönguför var einmitt það verk sem fyrst var flutt í leik- húsinu, fyrir 100 árum. Miðaverð nú er það sama og árið 1907; ein króna! Leikstjóri er Þráinn Karls- son. Ævintýri á gönguför var fyrst flutt á íslensku árið 1882 í Gilda- skálanum í Reykjavík en áður hafði það verið leikið hérlendis á dönsku. Séra Jónas Jónasson frá Hrafnagili þýddi verkið. Gönguför á eina krónu NÝTT ómþeyt- ingartæki til að- gerða á augum var tekið í notk- un á FSA í gær. Umrædd aðgerð er vegna skýs á augasteini; skýj- aður augasteinn er fjarlægður og í staðinn er settur gerviaug- asteinn, svokölluð linsa. Þetta tæki er mun fullkomnara en eldra tækið. Á síðastliðnu ári voru gerðar 165 slíkar aðgerðir og í ár er heimild fyrir 105 að- gerðum. Umrætt ómþeyting- artæki er fjármagnað af fé úr gjafasjóði FSA. Tæki til að fjar- lægja augastein KVIKMYNDAKLÚBBI Akureyrar, KvikYndi, verður hleypt af stokk- unum í kvöld með sýningu ítölsku myndarinnar Non ti muovere í Nýja bíói. Sýningin hefst kl. 18. Aðgangur er ókeypis en gestum er boðið að skrá sig í klúbbinn. Dagana 16., 18. og 20. apríl verða sýndar í Borgarbíói nokkrar mynd- ir frá kínverska menningarsvæð- inu. KvikYndi af stað á Akureyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.