Morgunblaðið - 16.05.2007, Qupperneq 44
„Þessi ljósmynd er
eins og málverk eftir
Louisu,“ sagði ein röddin;
„… listaverk!“ sagði önn-
ur …49
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG sit hér sveittur við að klára sin-
fóníu upp úr Ávaxtakörfunni sem
verður flutt 2. júní,“ segir Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson tónlistarmaður,
sem hefur í nógu að snúast þessa
dagana.
Um er að ræða hljómsveitarsvítu
upp úr söngleiknum Ávaxtakörfunni
sem hann samdi ásamt Kristlaugu
Maríu Sigurðardóttur. Sinfón-
íuhljómsveit Íslands mun flytja
verkið en söngvarar eru þau Örn
Árnason, Andrea Gylfadóttir, Selma
Björnsdóttir, Valgerður Guðnadótt-
ir og Jón Jósep Snæbjörnsson. Að-
spurður segir Þorvaldur að verkið
verði einnig tekið upp og því séu
töluverðar líkur á að það verði gefið
út áður en langt um líður. „Æfingar
eru að fara að hefjast þannig að það
er eins gott að síðustu nóturnar fari
að detta út úr prentaranum,“ segir
hann í léttum dúr.
Söngleikur um spýtustrák
Þorvaldur fær ekki mikið frí þeg-
ar sinfónían er tilbúin því þá byrjar
hann að semja tónlist af allt öðrum
toga.
„Ég að fara að semja lög og tónlist
við söngleikinn Gosa fyrir Borg-
arleikhúsið,“ segir hann, en um er að
ræða söngleik eftir þekktri sögu
Ítalans Carlo Collodi um spýt-
ustrákinn neflanga. Verkið verður
sett upp í Borgarleikhúsinu næsta
haust.
Eins og margir eflaust vita er
Þorvaldur meðlimur í hljómsveitinni
Todmobile. Þá starfar hann sem
upptökustjóri, en þessa dagana er
hann að leggja lokahönd á hljóð-
blöndun fyrstu plötu Jógvans X-
Factor stjörnu, en platan kemur út
eftir um það bil tvær vikur.
Sinfónía úr Ávaxtakörfunni
Morgunblaðið/Þorkell
Upptekinn Þorvaldur Bjarni hefur nóg að gera þessa dagana.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson semur sinfóníu og tónlist við
söngleik og leggur lokahönd á fyrstu plötu Jógvans
Siv Friðleifs-
dóttir er einn
duglegasti
bloggari þing-
heims og skrá-
setur svo að
segja allt sem á
hennar daga drífur sem heilbrigð-
isráðherra, móðir, eiginkona og
Snigill. Steingrímur Sævarr of-
urbloggari og ritstjóri Íslands í dag
er einn þeirra sem fylgjast vel með
bloggi Sivjar og vekur hann athygli
á nokkuð skemmtilegri mynd sem
finna má á heimasíðu ráðherrans,
en þar tekur ráðherrann sann-
kallað gleðistökk í skemmti-
myndbandi hjarta- og lungnadeild-
ar LSH sem tekið var upp fyrir
nokkru. Sjón er sögu ríkari eins og
svo oft áður. www.siv.is
Siv tekur gleðistökk í
skemmtimyndbandi
Hafdís Huld Þrastardóttir tón-
listarmaður frumflutti ásamt
hljómsveit sinni nokkur sunnu-
dagaskólalög í fjölmennri fjöl-
skylduguðsþjónustu hjá Íslenska
söfnuðinum í Lundúnum hinn 13.
maí sl. Áætlað er að gefa lögin út á
geisladiski í haust.
Hafdís Huld hefur verið starfs-
maður sunnudagaskóla safnaðarins
í nokkur ár og fannst kominn tími
til að auka fjölbreytni sunnudaga-
skólatónlistarinnar og samdi því ný
lög ásamt Alisdair Wright. Íslenski
kórinn í Lundúnum söng svo nokk-
ur laganna undir stjórn Þóru Hall-
grímsdóttur ásamt Hafdísi og
hljómsveit.
Á myndinni má sjá Hafdísi Huld,
Sigurð Arnarson prest íslenska
sendiráðsins í Lundúnum og með-
limi hljómsveitar Hafdísar.
Hafdís Huld semur
sunnudagaskólalög
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞESSI sýning inniheldur málverk sem eru gerð
útfrá lágmenningarflökkusögum sem heyrast
oftast á kaffihúsum þar sem hópar af ungu fólki
koma saman og tala þá um kynlíf, eiturlyf og
vandræðaleg samskipti,“ segir listamaðurinn
Frosti Gnarr um viðfangsefni verka sem hann
sýnir nú í Gallery Gel á Hverfisgötu.
Sýningin kallast Profusely Obscure: Stories
from boredom og er aðalverkið bók eftir Frosta
sem málverkin ýta undir skilning á.
„Bókin er unnin ofan í gamla bók, því hugs-
unin er líka að taka eitthvað gamalt og nýta það
upp á nýtt. Ég teiknaði ofan í texta bókarinnar
og lét fjölfalda fimmtíu eintök af henni sem eru
til sölu í Gel. Málverkin sem ég sýni eru síðan
svolítið barnaleg abstrakt málverk og inni í
hverju verki eru stuttar setningar eða orð sem
gefa innihaldið í skyn.“
Frekar ósiðlegt en fallegt
Frosti segist löngum hafa haft áhuga á flökku-
sögum. „Það er mjög séríslenskt að þurfa alltaf
að vera að segja þessar mögnuðu sögur af fólki.
Sögurnar snúast um lágmenningarheiminn sem
þykir mjög spennandi á Íslandi, eins og má sjá í
hérlendum bíómyndum og flökkusögum. Eins og
sönnum Íslendingi finnst mér svo sjálfum
skemmtilegra að vinna með eitthvað ósiðlegt
heldur en fallegt.“
Frosti var að ljúka fyrsta ári í grafískri hönn-
um við Listaháskóla Íslands og er þetta hans
fyrsta einkasýning. „Ég hef alltaf haft áhuga á
hönnun og listum yfirhöfuð og áður en ég byrj-
aði í náminu var ég búin að gera heilmikið því
tengt.“
Spurður hvort hann ætli að helga sig listinni
eða grafískri hönnun segir Frosti það auðvitað
fara vel saman en hann hafi meiri áhuga á mynd-
listinni. „Í Bandaríkjunum er hægt að fara í nám
í grafískri myndlist og ég gæti trúað að ég end-
aði á að fara þangað,“ segir þessi ungi og efni-
legi myndlistarmaður að lokum.
Morgunblaðið/Ásdís
Subbuskapur Frosti Örn Gnarr Gunnarsson sýnir verk sín í Gallery Gel. Þörf Íslendinga fyrir að segja lágmenningarsögur er honum hugleikin.
Lágmenningarflökkusögur
Frosti Örn Gnarr Gunnarsson heldur sína fyrstu einkasýningu í Gallery Gel og
fjallar um áhuga Íslendinga á lágmenningarsögum í verkum sínum