Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 4
AL Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkj- anna, bauð fyrir skömmu nokkrum gest- um til fundar við sig í New York þar sem fjallað var um umhverf- is- og orkumál með áherslu á hreina orku og skipta tækifæri í jarðhitaiðnaði þar veru- legu máli. Skv. heim- ildum Morgunblaðsins var Ásgeir Margeirs- son, forstjóri Geysir Green Energy, á meðal þeirra sem hittu Gore að máli. Mun Ásgeir hafa verið beðinn að sitja þennan fund með Gore og greina frá stöðu og horfum í jarð- hitamálum og fjalla um möguleika jarðhitaiðnaðar til að draga úr mengun. Tók hann jafnfram þátt í um- ræðum á fundinum. Gore er mjög áhuga- samur um þessi mál og mun hann einnig skv. upplýsingum Morgunblaðsins hafa lýst áhuga á að sækja Ísland heim. Bandaríkjamenn sýna síaukinn áhuga á samstarfi við Íslandi á sviði jarðvarma. Kom fram í Morgunblaðinu um helgina að Ísland er meðal landa sem tilgreind eru sem hugsanlegir samstarfsaðilar í laga- bálki sem Bandaríkjaþing afgreiddi ný- lega um auknar rannsóknir og þróun á sviði náttúrulegra orkuauðlinda, orku- sparnað o.fl. Ásgeir átti fund með Al Gore Ásgeir Margeirsson Al Gore 4 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ENGINN áþreifanlegur árangur varð af sáttafundi í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og Starfs- greinasambandsins og Flóafélag- anna svonefndu hjá ríkissáttasemj- ara í gær. Undirhópar munu funda í dag og er næsti samningafundur svo boðaður á morgun, miðviku- dag. Ekki er enn orðið ljóst hvaða stefnu kjaraviðræðurnar taka eftir kaflaskilin sem urðu í síðustu viku, þegar ríkið hafnaði einni megin- kröfu verkalýðshreyfingarinnar í skattamálum, sem átti að greiða fyrir gerð kjarasamninga. Á fundinum í gær var rætt um ýmsar leiðir sem taldar eru koma til greina við endurnýjun samninga og mikil umræða fór fram um til hversu langs tíma skuli semja. Inn- an Starfsgreinasambandsins vex þeirri skoðun fiskur um hrygg að semja aðeins til skamms tíma, þ.e. ekki lengur en til eins árs vegna þeirrar óvissu sem uppi er um þró- un efnahagsmála og verðbólgu- horfur. ,,Tíminn fór mest í að skiptast á skoðunum um aðferðafræði og hugsanlega tímalengd samninga en ekki var komist að neinni nið- urstöðu hvað það varðar,“ sagði Kristján Gunnarsson, formaður SGS, eftir viðræðurnar í gær. „Af hálfu vinnuveitenda er allt undir, hvort sem menn vilja ræða skamm- tímasamning eða langtímasamning og allt þar á milli. Við lögðum á sín- um tíma upp með það í kröfugerð- inni að gerður yrði samningur til tveggja ára. Við höfum viðrað þá skoðun okkar að það komi alveg eins til greina að skoða styttra tímabil, vegna þeirrar óvissu sem uppi er, m.a. í efnahagsmálum. Við höfum ekki útilokað það,“ segir Kristján. Kjarasamningar fjölmennra starfsstétta hjá ríki og sveitar- félögum, s.s. kennara og hjúkrun- arfræðinga, renna út 30. apríl næstkomandi og samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins hafa sumir verkalýðsforingjar bent á að e.t.v sé réttast að semja um launa- hækkanir til skamms tíma og sjá hvaða launastefna verður mörkuð í samningum ríkisins við þessar stéttir. Munu þegar vera hafin ein- hver óformleg samtöl við forsvars- menn opinberra starfsmanna um áherslur þeirra í komandi kjaravið- ræðum. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, segir að auk við- ræðna við SGS og Flóafélögin muni vinnuveitendur á næstunni ræða við landssambönd iðnaðar- manna og verslunarmenn. Mikil fundahöld séu fyrirhuguð í þessari og næstu viku. Vilhjálmur segir að á fundinum í gær hafi menn farið yfir stöðuna og reynt að átta sig á hvernig þeim verði haldið áfram. Hann segir að tímalengd samninga sé mikið til umræðu og allt undir hvað það varðar. SA hefur lagt ríka áherslu á að fá að vita hvaða stefnu ríkið og sveit- arfélögin muni taka í launamálum sinna starfsmanna og spurður um þetta segist Vilhjálmur óttast þetta mjög „því það virðist vera eins og stjórnmálamennirnir séu í allt of mörgum tilfellum ekki færir um að gegna sínu vinnuveitenda- hlutverki“. Áhugi á samningi til eins árs Vilja sjá launastefnu hins opinbera Árvakur/Golli Kaflaskil Forysta ASÍ greindi forsvarsmönnum SA frá því í seinustu viku að viðræður um launamál væru ekki lengur á sameiginlegu borði. Í HNOTSKURN »Kjarasamningar á al-menna vinnumarkaðinum runnu út um síðustu áramót. »Starfsgreinasambandið ogFlóafélögin svonefndu hafa vísað kjaradeilunni til sáttameðferðar hjá rík- issáttasemjara. Er næsti fund- ur boðaður á morgun. »Landssamböndin og þaufélög, sem eru með beina aðild að ASÍ, fara nú hvert fyrir sig með launakröfur sín- ar í viðræðunum við atvinnu- rekendur. KNÁIR piltar úr 6. bekk Mennta- skólans í Reykjavík léku sér í knattspyrnu á ísilagðri Tjörninni í gær. Það er gömul saga og ný að nemendur Menntaskólans og ann- arra menntastofnana sem verið hafa við Tjörnina í aldanna rás bregði á leik þegar Tjörnina legg- ur. Á árum áður voru það þó aðrar íþróttir en knattspyrna sem helst voru stundaðar á tjarnarísnum. Þannig eru fyrstu heimildir um sögu Skautafélags Reykjavíkur frá miðri 19. öld þegar nemar í Latínu- skólanum, forvera Menntaskólans í Reykjavík, stunduðu skautahlaup á Tjörninni. Skautafélagið var fyrst stofnað 1873 af menntaskólanem- um og er því eitt af elstu íþrótta- félögum Reykjavíkur. Mörgum er í fersku minni þegar tjarnarísinn var fægður, upplýstur og leikin tónlist fyrir borgarbúa sem brugðu sér á skauta á Tjörn- inni. Árvakur/Golli Leikið á köldum klaka Ísinn á Tjörninni hefur löngum verið leikvangur Reykvíkinga FYRIR skömmu fannst net í neðanverðri Korpu/Úlfarsá. Það voru laganna verðir sem komu auga á netið og í því voru tveir laxar og var leigutaka gert viðvart um at- hæfið. „Með ólíkindum verður að teljast að menn geti ekki látið laxveiðiárnar í friði yfir dimmustu vetrarmánuðina,“ segir á heimasíðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur, svfr.is Þar segir ennfremur: „Í haust bar á óvenju svæsnum veiðiþjófnaði í Elliða- ánum og nokkuð ljóst að óprúttnir aðilar beina spjótum sínum ekki síður að hinum Reykjavíkuránum. Það er nýlunda að veiðiþjófnaður sé stundaður yfir vetr- armánuðina enda laxinn nánast óætur með öllu og illa haldinn. Hins vegar er gæsla með ánum mun minni á þessum árs- tíma og þær liggja betur við höggi í skammdeginu.“ Veiðiþjófnaður í Korpu að vetri Árvakur/Einar Falur VEGNA viðtals í Morgunblaðinu í gær við Nikulás Úlfar Másson, for- mann húsafriðunarnefndar og fyrr- verandi starfsmann Borgarskipu- lags Reykjavíkur, vill Jóhannes Sigurðsson í Kaupangi koma eft- irfarandi á framfæri: „Nikulás Úlfar Másson tók virk- an þátt í lokafrágangi og útliti húsanna á Laugavegi 4-6. Þetta getur m.a. skipulagsstjóri Reykja- víkur staðfest. Hvergi kemur fram í viðtalinu við mig [í Morgunblaðinu sl. sunnu- dag] að hann hafi komið að gerð deiliskipulags lóðarinnar – að minnsta kosti vildi ég ekki að orð mín skildust þannig. Við, eigendur Kaupangs, ásamt arkitekt húsanna, Guðna Pálssyni, áttum marga fundi og símtöl við Nikulás vegna Laugavegar 4-6, meðal annars þegar Jóhannes Kjarval, hverfisarkitekt miðbæjar- ins, var fjarverandi. Ég veit ekki betur en að formað- ur skipulagsráðs og skipulagsstjóri Reykjavíkur hafi í sameiningu stungið upp á því að fá tvær arki- tektastofur til að koma með tillög- ur að útliti húsanna en ekki Niku- lás Úlfar Másson eins og hann vill nú eigna sér í fjölmiðlum. Það eru hrein ósannindi að Nikulás hafi átt aðeins einn fund með eigendum og arkitekt húsanna vegna þessa máls. Annars hefur stjórnsýslan í þessu máli verið svo ótrúleg að við viljum helst ekki eyða kröftum okkar í að skattyrðast við einstaka embættismenn.“ Athugasemd frá Jóhannesi í Kaupangi Nikulás tók virkan þátt NORÐFIRÐ- INGAR! Það hefur eflaust verið neistaflug hjá þeim 221 Norðfirðingi sem fékk vinning í Happdrætti Háskólans í fyrra. – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. TIL HAMINGJU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.