Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.01.2008, Blaðsíða 20
Ég get ekki neitað því aðég er rosalega hissa ogeiginlega bara klökk yf-ir því að þeir skuli fylgja mér,“ segir Valdís Sigur- þórsdóttir einkaþjálfari sem er nýkomin til starfa í Sporthúsinu en hún hefur verið að kenna í Hreyfingu undanfarin fimm ár. Í öll þau ár hafa þar mætt í palla- tíma hjá henni nokkrir karlar sem halda slíkri tryggð við hana að þó þeir haldi áfram að æfa í Hreyf- ingu þá elta þeir Valdísi í Sport- húsið til að komast í pallatímana hjá henni þrisvar í viku þar fyrir utan. „Ég kynntist þeim fyrst þegar ég sótti sjálf pallatíma hjá öðrum og var við hliðina á þeim aftast í tímum. Síðan fór ég að kenna og þeir hafa ekki klikkað á að mæta hjá mér. Þeir staðna aldrei og kunna vel að meta hvað ég keyri fólkið hart áfram í tímum. Þeir eru í svaka góðri þjálfun og þetta er samheldinn hópur.“ Ekki síður fyrir sálina en kroppinn Einn þeirra játar fúslega að þetta sé löngu orðin fíkn hjá hon- um og þeir segjast verða alveg vængbrotnir ef Valdís fer í frí og tímarnir falla niður. „En við höld- um að hún hafi nú líka viljað hafa okkur áfram. Hún er bara svo frá- bær og langbesti kennari sem við höfum nokkurn tíma haft,“ segja þeir fjórir sem eru í harðasta kjarnanum, Gunnar Sigurðsson, Arnar Sverrisson, Daníel Sigurð- arson og Ólafur Ólafsson. Þeir eru nokkuð góðir með sig og segja Valdísi upphaflega hafa lært af sér. „Allt sem hún kann, hefur hún frá okkur. Nei, nei, það er náttúrulega ekki rétt. Við mæt- um í tíma hjá henni af því við er- um bara svo ánægðir með hana. Við erum í þessu fyrst og fremst fyrir ánægjuna og þetta er ekki síður fyrir sálina en líkamann. Þetta er nefnilega líka andleg út- rás. Það er svo gaman í þessum tímum og við erum endurnærðir á eftir. En við tökum það fram að þetta er svakalegt púl og hún Val- dís sýnir enga miskunn, við erum á fullu í heilan klukkutíma og brennslan mikil og við svitnum duglega. Sumir segja að þetta séu erfiðustu tímar sem hægt er að fara í. Maður þarf líka að hafa sig allan við þegar sporin gerast flók- in hjá henni.“ Þeir Arnar og Ólafur hafa til- einkað sér ögrandi viðbót við sporin sem Valdís kennir. „Þeir láta sér ekki duga einn pall heldur eru þeir með tvo eða þrjá palla fyrir framan sig, til að geta tekið aukasnúninga og gera eitthvað sjúklega flókið en þeir halda samt í við taktinn hjá mér. Ef ég lít á þá augnablik þá ruglast ég bara og dett út úr kennslurútínunni,“ segir Valdís. „Við gerum þessi aukaspor og snúninga til að ögra sjálfum okk- ur. Þetta er spurning um gáfna- far,“ segja þeir Arnar og Ólafur og skellihlæja. Aðspurðir segja þeir palladans ekki vera síður fyr- ir karla en konur en þeir eru þrælánægðir með að vera um- kringdir konum sem eru í meiri- hluta þeirra sem sækja þessa tíma. „Við mætum fyrst og fremst í tímana hjá Valdísi af því að það er gaman. Tónlistin er góð, það er mikið stuð og þetta er krefjandi. Það hefur skapast góð vinátta á milli okkar á þessum langa tíma og við förum meira að segja sam- an út á tjúttið tvisvar á ári.“ khk@mbl.is Árvakur/Árni Sæberg Hamast Það þarf að vera einbeittur til að fylgja sporunum og þeir svitna duglega. Ólafur gerir sér lítið fyrir og tekur aukasnúning. Ekkert gefið eftir Valdís er hörkutól sem rekur fólk miskunarlaust áfram. Kátir F.v Gunnar, Arnar, Ólafur og Daníel eru alsælir eftir púlið. Fylgja Valdísi tryggir hvert sem er Þeir láta sig hafa það að æfa í tveimur líkams- ræktarstöðvum, bara til að geta verið í palladansi hjá ákveðinni konu. Kristín Heiða Kristins- dóttir hitti fjóra sveitta karlmenn í Sporthúsinu. Næsta laugardag, 19. janúar, ætlar Valdís og fyrirtækið hennar Jump Fit að fara af stað með áheit gegn átröskunarsjúkdómum. Þá mæta allir sem vettlingi geta valdið í 300 manna pallatíma, þar sem líka verða sýningar og fjör. Nokkrir þjóðþekktir Íslendingar hafa þegar skráð sig. Ekki er nauðsynlegt að hamast á pöllunum, einnig má horfa á. Tíminn kostar 500 krónur en frjáls framlög eru líka vel þegin. Allur ágóði rennur til er Spegilsins sem eru hagsmuna-. forvarna- og fræðslusamtök. Nánari upplýsingar: www.blog.central.is/jumpfit tómstundir 20 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÍSFIRÐINGAR! 372 heppnir Ísfirðingar fengu vinning í Happdrætti Háskólans í fyrra. Ætli Mick hafi ætlað að kaupa sér miða hérna um árið? – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. TIL HAMINGJU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.