Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2009, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 20.04.2009, Qupperneq 21
20. APRÍL 2009 Fasteignamarkaðurinn ehf. hefur til sölu nánast algjörlega endurnýjaða 100 fermetra fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi við Grænu- hlíð. Á stigapalli framan við íbúð er fatahengi. Komið er inn í stórt og bjart parkettlagt hol með föstum hillum á heilum vegg. Samliggjandi bjartar og parkettlagðar stofur með útgangi á stórar svalir til suðurs þaðan sem nýtur útsýnis til fjalla og yfir opið leiksvæði sem er aftan við húsið. Eldhúsið, sem er allt endur- nýjað, er opið við stofu. Í eldhúsi eru nýjar og miklar hvítar sprautu- lakkaðar innréttingar með efri skápum úr gleri. Vönduð tæki eru í eldhúsi og uppþvottavél er inn- felld í innréttingu. Svefngangur er parkettlagður. Hjónaherbergið er stórt, parkettlagt og með nýjum hillum, fatahengi og skúffum á heilum vegg. Barnaherbergi er parkettlagt. Baðherbergið er með glugga, mósaíklagt í gólf og veggi og með baðkari með sturtu- aðstöðu. Þvottaherbergið er rúm- gott, dúklagt og með góðum glugga. Miklar innréttingar og skápar eru í þvottaherbergi. Í kjallara hússins er sameigin- legur kyndiklefi sem nýttur hefur verið sem hjólageymsla. Húsið er í góðu ástandi að utan, nýlega við- gert og málað og nýlega var skipt um járn á þaki og þak yfirfarið í leiðinni. Ásett verð er 26,9 milljónir. Stórar svalir til suðurs Húsið er nýlega viðgert og málað að utan. fasteignir heimili@heimili.is Sími 530 6500B o g i P é t u r s s o n l ö g g . f a s t e i g n a s a l iF i n n b o g i H i l m a r s s o n l ö g g . f a s t e i g n a s a l i Sími: 586 8080 • Kjarna • Þverholti 2 • 207 Mosfellsbær • www.fastmos.is 10 ár í Mosfellsbæ Mosfellsbæ Einar Páll Kjærnested,lögg. fasteignasali

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.