Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 4
4 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR SKIPULAGSMÁL Umhverfis- og skipu- lagsnefnd Fjarðabyggðar sam- þykkti í síðustu viku umsókn Atl- antic Tank Storage (ATS) um lóð fyrir tæplega 195 þúsund tonna olíubirgðastöð við Mjóeyrarhöfn sem er við álverið á Reyðarfirði. Bæjarstjórn mun einungis sam- þykkja hana standist áætlanir þessar umhverfismat. Það tekur allt upp í eitt og hálft ár að reisa slíka stöð, segir Eiður Ragnarsson, formaður nefndar- innar, og að um 200 starfsmenn þurfi til. Eftir að byggingu sé lokið muni hins vegar þrír til fimm starfsmenn vinna við stöðina. Hann segir enn fremur að sveitar- félagið fengi um 200 milljón krón- ur í tekjur af stöðinni á ári. „Okkar fyrstu viðbrögð eru þau að okkur sýnist þetta falla vel að þeirri starfsemi sem við höfðum í huga fyrir þetta svæði,“ segir Helga Jónsdóttir, bæjarstýra Fjarðabyggðar. Hún segir að sveitar félagið vilji hins vegar vita hve mikil áhættan sé og hvernig mótvægisaðgerðum yrði háttað. „Mér skilst að í raun sé tiltölulega lítil áhætta í þessum fólgin en við fáum væntanlega svör við því þegar umhverfismat liggur fyrir,“ bætir hún við. „Ég tel að við megum búast við því að önnur sveitarfélög fari að fá slíkar umsóknir í nánustu framtíð,“ segir Þuríður Back- man, þingmaður Vinstri grænna í Norðaustur kjördæmi. „Sérstak- lega í ljósi þess að menn telja að skipaleið fari að opnast í gegn- um norður heimsskautið og þá teldi ég eðlilegt að Íslendingar hýstu slíkar birgðastöðvar. Þetta verður bara að skoða í víðu sam- hengi,“ segir hún en vill ekki taka afstöðu til þessarar umsóknar að svo stöddu. Ef farið yrði í olíu- vinnslu á Drekasvæðinu myndi það einnig verða til þess að menn fengju aukinn áhuga á birgða- stöðvum sem þessum. Reynir A. Guðlaugsson, fram- kvæmdastjóri ATS, og Haukur Óskarsson, verkefnastjóri hjá verkfræðistofunni Mannviti, sem sækir um lóðina fyrir hönd ATS, segja enn sem komið er ekki hægt að segja til um það hversu mikil skipaumferð myndi fylgja birgða- stöðinni. „Þessar hugmyndir eru alveg óháðar fyrirhugaðri olíu- vinnslu á Drekasvæðinu,“ segir Haukur. „En ef af þeim yrði væri það aðeins til þess að styrkja þessa viðskiptahugmynd,“ bætir hann við. ATS rekur nú þegar tvær olíubirgðastöðvar í Hvalfirði og eina í Helguvík. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu sænska fyrirtæk- isins Scandinavian Tank Storage sem rekur slíkar stöðvar á Norður- löndunum og þjónar mörgum af stærstu olíufyrirtækjum Evrópu. jse@frettabladid.is Vilja olíubirgðastöð við hlið álversins Fyrirtæki hefur sótt um að reisa 195 þúsund tonna olíubirgðastöð á Reyðarfirði. Bæjarstjórnin jákvæð gagnvart umsókninni. Þingmaður VG segir þetta líklega vera byrjun á þróun. Hugmyndirnar eru ótengdar olíuvinnslu á Drekasvæðinu. EIÐUR RAGNARSSON VIÐ MJÓEYRARHÖFN „Ég hef enn ekki hitt þann mann á Reyðar- firði sem líst illa á þessar hugmyndir,“ segir Eiður, sem hér stendur við Mjóeyrarhöfn. Hún er dýpsta höfn landsins og hentar því vel fyrir birgðastöðvar. MYND/HELGI GARÐARSSON LANDSKJÖRSTJÓRN Fundur um úthlutun þingsæta Landskjörstjórn kemur saman til fundar mánudaginn 4. maí 2009, kl. 17 til að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir almennar alþingiskosn- ingar sem fram fóru hinn 25. apríl sl. Hér með er umboðsmönnum þeirra stjórnmálasamtaka sem buðu fram við alþingiskosningarnar gefi nn kostur á að koma til fundarins, sem haldinn verður á 2. hæð í Aust- urstræti 8—10, Reykjavík, húsnæði nefndasviðs Alþingis. Gengið er inn frá Vallarstræti. Reykjavík, 30. apríl 2009. Landskjörstjórn. VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 20° 19° 20° 23° 20° 22° 27° 20° 21° 15° 22° 17° 23° 31° 19° 20° 21° 14° 4 13 11 8 9 7 6 6 5 8 7 9 8 10 6 9 6 7 7 HLEGARHORFUR Almennt má segja að nokkur vindur einkenni veðurkortin. Á morgun verður til- tölulega stíf vestanátt með vætu allvíða en eftir hádegi ætti að stytta mikið til upp suðvestan til auk þess sem þurrt verður að mestu suðaustan- og austan til. Á sunnudag kemur lægð upp að landinu og frá henni fer að rigna síðdegis á landinu sunnan- og vestanverðu með nokkrum vindi. 6 83 10 12 Á MORGUN 8-15 m/s. SUNNUDAGUR 5-10 m/s. 6 12 9 4 8 6 1010 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest hálfs árs skilorðsbund- inn fangelsisdóm yfir erlendum manni á miðjum aldri fyrir kyn- ferðisbrot gegn átta stúlkum. Brotin áttu sér stað í sundlaug í Keflavík. Maðurinn synti á sömu brautum og stúlkurnar þótt aðrar væru lausar, rak hendurnar vilj- andi í rass þeirra og klof á sundi og fróaði sér fyrir framan þær. Manninum, sem stúlkurnar lýstu sem feitum, loðnum og rauð- um í framan í mjög smárri sund- skýlu, er gert að greiða stúlkunum 100 til 150 þúsund krónur í bætur. Hann þarf einnig að greiða um 1.600 þúsund í málskostnað. - sh Leitaði á stúlkur og fróaði sér: Sunddóni á hálfs árs skilorð STJÓRNMÁL Ísland er á tímabund- inni undanþágu frá EES-samn- ingnum, þar sem hér gilda ekki reglur um frjálsan flutning fjár- magns. Þetta sýnir ríka velvild ESB-ríkjanna gagnvart Íslandi. Þetta kom fram í máli Árna Páls Árnasonar alþingismanns á fundi Alþjóðamálastofnunar í gær um aðild Íslands að ESB. Hann sagði óvíst hvort og þá hvenær Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart EES. Þessi stoð í íslenskri utanríkisstefnu standi afar veikum fótum. Nokkuð var deilt um hagsmuni Íslands og hvar þeir lægju, yrði sótt um aðild. Friðrik Jón Arn- grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, sagði það mat sjávarútvegsins að ekki kæmi til greina að sækja um aðild, og að forræði yfir sjávar- auðlindum Íslands færi til Brussel. Reynslan sýndi að ekki væri hægt að fá undanþágur sem einhverju máli skiptu varðandi sameiginlega sjávar útvegsstefnu ESB. Bjarni Már Gylfason, hagfræð- ingur Samtaka iðnaðarins, bað fólk hins vegar að hafa heildarhags- muni þjóðarinnar í huga. Samtök iðnaðar, verslunar og ferðaþjón- ustu hafi öll kallað eftir aðild að ESB og upptöku evru. Árið 2007 hafi þessir aðilar staðið á bak við 41,5 prósent verðmætasköpunar og 70,7 prósent gjaldeyrisöflunar. Á sama tíma hafi sjávarútvegur og landbúnaður staðið á bak við átta prósent verðmætasköpunar og 29,4 prósent verðmætasköpunar. - ss Fundur Alþjóðamálastofnunar um aðild að Evrópusambandinu: Óvíst hvort við getum staðið við EES ÖGMUNDUR, ÁRNI PÁLL, ILLUGI OG BIRKIR JÓN Fulltrúar stjórnmálaflokk- anna svöruðu spurningum um stefnu í ESB-málum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VINNUMARKAÐUR Laun unglinga í Vinnuskóla sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu haldast yfir- leitt óbreytt frá því í fyrra. Laun sautján ára og eldri eru hins vegar í samræmi við kjarasamn- inga og hækka í samræmi við þá. Laun unglinga í Vinnuskólanum í Reykjanesbæ hækka um fjögur prósent frá því í fyrra. Nemandi í áttunda bekk fær 387 krónur á tímann, nemandi í níunda bekk 447 krónur og nemandi í tíunda bekk fær 538 krónur á tímann. Orlof er innifalið. - ghs Vinnumarkaður: Laun unglinga oftast óbreytt DÓMSMÁL Ekki er víst að hægt verði að kyrrsetja eignir Magn- úsar Þorsteinssonar eins og lögmaður Straums- Burðar áss hefur farið fram á. Magn- ús flutti lög- heimili sitt til Rússlands örskömmu áður en gjaldþrota- mál á hendur honum var tekið fyrir í héraðs- dómi. Þetta kom fram við aðal- meðferð málsins á Akureyri í gær. Lögmaður Straums segir Magn- ús skulda 930 milljónir þar sem hann hafi gengist í ábyrgð fyrir skuld eigin eignarhaldsfélags. Lögmaður Magnúsar telur sjálf- skuldarábyrgðina ógilda. Magn- ús keypti Landsbankann á sínum tíma ásamt Björgólfsfeðgum. - sh Forðast kyrrsetningu eigna: Magnús flúði til Rússlands MAGNÚS ÞORSTEINSSON GENGIÐ 30.04.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 207,6007 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,95 127,55 188,33 189,25 168,92 169,86 22,676 22,808 19,321 19,435 15,769 15,861 1,2929 1,3005 190,21 191,35 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR ÖRYGGISMÁL Nýtt fjölnota varð- skip Landhelgisgæslunnar var sjósett í ASMAR skipasmíðastöð- inni í Chile á miðvikudag. Skip- inu var gefið nafnið Þór og verð- ur afhent fyrri hluta næsta árs. „Það var ólýsanleg tilfinning og meiri upplifun en ég hefði getað ímyndað mér“, segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgis- gæslunnar. Hann segir tilkomu nýja varðskipsins vera sögulega stund fyrir íslenska þjóð og með þeim stærri í rúmlega áttatíu ára sögu Landhelgisgæslunnar. „Aðstæður okkar í björgunar- og öryggismálum almennt séð umbyltast við komu þessa nýja skips sem er það fullkomnasta sinnar tegundar á Norður- Atlantshafi.“ - shá Þór sjósettur í Chile: Nýtt varðskip táknar byltingu ÞÓR KOMINN Á FLOT Skipið er talið eitt það fullkomnasta í heimi. MYND/LHG DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs- aldri hefur verið ákærður fyrir að stofna lífi annars manns í aug- ljósan háska með því að leggja hníf að hálsi hans. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Norður- lands vestra á miðvikudag. Maðurinn var gestkomandi í samkvæmi á Ísafirði þegar átök brutust út. Hann greip hníf og lagði að hálsi þess sem hann átti í átökum við. Lögregla kom skömmu síðar á vettvang og handtók manninn. Ákærði var viðstaddur þing- festinguna en óskaði eftir fresti til að taka afstöðu til sakarefnis- ins. - sh Stofnaði lífi manns í háska: Lagði hníf að hálsi manns

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.