Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 6
6 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL „Svínainflúensan mun koma,“ segir Sigurður Árna- son, yfirlæknir og sóttvarna- læknir á Heilbrigðisstofnun Suð- urnesja. Hann segir aðsókn ferðafólks að inflúensumóttökunni í Leifs- stöð hafa verið mjög litla, enn sem komið er. Móttakan sem var opnuð í gær í fullbúinni mynd, er samvinnuverkefni Heilbrigð- isstofnunar Suðurnesja, Land- spítala og sóttvarnalæknis landlæknis embættisins. „Hversu fáir leita til hennar þýðir að við erum alveg á réttum tíma,“ segir Sigurður. „Aðsóknin á eftir að aukast þegar á líður.“ Sigurður segir talsvert um að fólk hafi hringt til að afla sér upplýsinga um svínainflúensuna. Þá hafi verið tekin sýni úr tíu til fimmtán manns sem leitað hafi til HS og ástæða hafi þótt til að athuga nánar. Enginn grunur sé um að flensan sé þegar komin, þó hún muni koma. „En það er um að gera að líta á þetta eins og hverja aðra flensu sem kemur og fer, en ekki eins og einhverja drepsótt,“ undirstrik- ar hann. Hinu megi ekki gleyma að þessi fyrirhugaða pest dynji á landsmönnum ofan í raunveruleg meiðsl sem séu kreppan er skollið hafi á þeim. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin jók viðbúnaðarstig sitt í fimm í fyrrakvöld. Þetta þýðir meðal annars að aðildarþjóðir WHO eru beðnar um að virkja viðbún- aðaráætlanir sínar vegna svína- inflúensunnar. Þessi breyting af hálfu WHO hefur engin áhrif hér á landi, enda viðbúnaðaráætlun þegar virk, og hér er enn unnið á hættustigi. Í allan gærdag funduðu sótt- varnalæknir og ful ltrúar almannavarna Ríkislögreglu- stjóra með viðbragðsaðilum þar sem farið var yfir verkefni sem tilteknum aðilum var falið að leysa á hættustigi. Þá hafa heilbrigðisstarfsmenn verið hvattir til þess að senda sýni frá sjúklingum með inflú- ensulík einkenni til greiningar og leiðbeiningum um notkun veiru- lyfja hefur verið dreift. Búið er að koma á sambandi við þá flug- rekstraraðila sem koma að því að flytja fólk til landsins. Ætlunin er að afhenda þeim upplýsingablöð um inflúensuna sem dreift verð- ur til flugfarþega. Enginn hafði greinst með smit hér á landi síðdegis í gær og sýk- ingar utan Mexíkó eru vægar enn sem komið er. jss@frettabladid.is Flensan mun koma Svínainflúensan mun koma, segir sóttvarna- og yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Líta eigi á hana eins og hverja aðra inflúensu en ekki eins og drep- sótt. Inflúensumóttaka var opnuð í fullbúinni mynd í Leifsstöð í gær. INFLÚENSUMÓTTAKAN Fullbúin inflúensumóttaka var opnuð í Leifsstöð í gær. Hún er miðlæg og fólk hefur því góðan aðgang að henni. Þar eru hjúkrunarfræðingar á vakt allan sólarhringinn. Svarað er í síma allan sólarhringinn í 422 0600. MYND/VÍKURFRÉTTIR STAÐFEST TILFELLI - SVÍNAINFLÚENSU Land Fjöldi Spánn 10 Þýskaland 3 Bretland 5 Frakkland 2 Kanada 19 Kosta Ríka 2 Ísrael 2 Mexíkó 26 Perú 1 Nýja-Sjáland 14 Bandaríkin 91 Samtals 155 Nánari upplýsingar í síma 525 4444 og á endurmenntun.is LEIÐSÖGUNÁM Á HÁSKÓLASTIGI Framúrskarandi kennarar Hægt að stunda í staðnámi og fjarnámi Lotubundin kennsla – hentar með vinnu Veitir inngöngu í fagdeild Félags leiðsögumanna Umsóknarfrestur til 11. maí 1. MAÍHÁTÍÐ Í IÐNÓ OPIÐ HÚS KL. 1517 - Ávörp, tónlist, kaffi og kleinur - - KK mætir með gítarinn og syngur nokkur lög - - Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar taka á móti gestum - Dagskrá hefst að loknum útifundi verkalýðsfélaganna ALLIR VELKOMNIR! Samfylkingarfélagið í Reykjavík & Hallveig - ungir jafnaðarmenn í Reykjavík Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingkona og fyrrv. hagfræðingur hjá ASÍ Þorgerður Laufey Diðriksdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur Sigurrós Kristinsdóttir varaformaður Efl ingar STJÓRNMÁL Árni Johnsen, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, seg- ist hafa heimildir fyrir því að samflokksmenn hans í Suður- kjördæmi hafi verið í skipulagðri herferð gegn honum. Jafnframt hafi hann heyrt frá fjölda fólks að sömu menn hafi hvatt kjósendur annarra flokka en Sjálfstæðis- flokks til að strika samt yfir nafn hans – og ógilda þannig kjörseðil sinn. „Það voru tugir einstaklinga á Árborgarsvæðinu sem hringdu í mig og sögðu að það hefði verið hringt í þá í nafni sjálfstæðis- manna og þeir beðnir að strika mig út, jafnvel þótt þeir ætluðu að kjósa ein- hvern annan,“ seg i r Á r ni . Hann segist þó ekkert vita hver stóð á bak við það. „En það eru varla tugir einstaklinga að hringja í mig að gamni sínu. Þeim var mikið niðri fyrir því þeim ofbauð.“ Sé rétt að kjósendur hafi verið blekktir til að ógilda kjörseðla sína er það brot gegn ákvæði almennra hegningarlaga og getur varðað sektum og allt að tveggja ára fangelsi. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segist aðeins hafa heyrt af málinu í fjöl- miðlum en vill ekki tjá sig um það að öðru leyti. Ólafur Hafsteinn Jónsson, for- maður fulltrúaráðs Sjálfstæðis- flokksins í Árborg, sagði í yfir- lýsingu í gær að fullyrðingar Árna um að sjálfstæðismenn í Áborg hefðu skipulega unnið gegn honum væru fásinna. Það væri umhugsunarefni hvort hann, sem formaður fulltrúaráðsins gæti lagt heiður sinn að veði til að vinna fyrir „slíka menn.“ - sh Það varðar við hegningarlög að blekkja kjósendur til að ógilda kjörseðla sína: Sakar samflokksmenn um lögbrot ÁRNI JOHNSEN VARÐAR VIÐ FANGELSIVIST Í 103. grein almennra hegningar- laga segir að þeir skuli sæta fangelsi allt að tveimur árum, eða sektum ef sök er smáfelld, sem koma „því til leiðar með sviksam- legu atferli, að maður greiðir ekki atkvæði, þó að hann hafi ætlað sér það, eða að atkvæði hans ónýtist eða hefur önnur áhrif en kjósandinn ætlaðist til.“ Auglýsingasími ÍÞRÓTTIR Golfvellir hér á landi koma vel undan vetri og verða margir opnaðir fyrr en á undanförnum árum. Nokkuð er síðan iðkendum golfíþróttarinnar var gert kleift að spila velli á Suðurlandi án nauðsynlegra tak- markana eftir veturinn. Margir verða opnaðir í dag og næstu daga. Ólafur Þór Ágústsson, vallarstjóri hjá Keili í Hafnar firði, segir Hvaleyrarvöllinn verða opnaðan aðeins seinna en í fyrra en völlurinn líti engu að síður mjög vel út. „Þetta lítur afar vel út og útlit fyrir langt og gott golfsumar fram undan.“ Keilismenn hafa sett forgjafamörk fyrir aðalvöllinn í sumar. Verða kylf- ingar að hafa 34 í forgjöf til að fá að spila. Ólafur segir að vellirnir á Suðurnesjum, í Vest- mannaeyjum, Þorlákshöfn, á Hellu og víðar hafi verið opnaðir fyrstir eins og undanfarin ár. Næstir í röð- inni séu Hvaleyrin, GKG og Korpa. Urriðadalsvöllur þeirra Oddfellowmanna og Grafarholtið verði opnað- ur um næstu helgi. Steindór Ragnarsson, vallarstjóri hjá Golfklúbbi Akureyrar, segir Jaðarsvöll líta vel út, hann sé ekki eins blautur og oft á þessum árstíma og áætlað sé að opna völlinn um miðjan maí, eins og í fyrra. Steindór minnir á að vellir líti almennt betur út eftir veturinn nú en fyrir nokkrum árum, þar sem kunnátta þeirra sem sjá um vellina hafi aukist mikið á stuttum tíma. Uppskeran sé lengra golfsumar. - shá Margir af stærstu golfklúbbunum opna velli sína fyrir iðkendum í dag: Vellirnir koma vel undan vetri KORPÚLFSSTAÐAVÖLLUR Nokkrir kylfingar voru að æfa sveifluna á Korpu í gær en völlurinn verður opnaður í dag og Grafarholtsvöllurinn eftir viku. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kaupir þú vatn í flöskum? Já 17,5% Nei 82,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Hefur þú áhyggjur af fyrirsjá- anlegri fækkun lögreglumanna? Segðu skoðun þína á Vísir.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.