Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 36
24 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 1. maí 2009 ➜ Tónleikar 17.00 Ragnheiður Sara Grímsdóttir heldur tónleika í Seltjarnarneskirkju. Á efnisskránni verður blanda af klassískri og nýrri tónlist. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. 20.30 Bubbi Morthens verður á Kaffi Kósý á Reyðarfirði. Á efnisskránni verður nýtt efni í bland við eldra. Húsið opnað kl. 20. 21.00 Gítar- hátíð á Græna Hattinum við Hafnarstræti 96 á Akureyri 30. apríl - 2. maí. Í kvöld koma fram Björn Thoroddsen og hljómsveit, Ómar Guðjónsson og hljómsveit og Halldór Bragason og hljómsveit. Húsið opnað kl. 20. 21.00 Skakkapopp verður með tón- leika á Populus Tremula í Listagilinu við Kaupvangsstræti á Akureyri. Einnig koma fram Létt á bárunni, Prins Póló og Sicbird. 22.00 Högni Lisberg og hljómsveit verða á Grand Rokk við Smiðjuveg. 23.00 10 Steps Away spilar á Dillon Sportbar við Trönuhraun 10 í Hafnar- firði. ➜ Opnanir 14.00 Jón Ingi Sigurmundsson opnar málverkasýningu í Gallerí Gónhól við Eyrargötu á Eyrarbakka. Opið fös.-sun. kl. 13-17. 15.00 Tryggvi Ólafsson og Daði Guð- björnsson opna sýningar í Galleríi Fold við Rauðarárstíg. Allir velkomnir. Opið mán.- fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16 og sun. kl. 13-16. 16.00 Didda Hjartardóttir Leaman opnar sýningu í Gallerí BHM, Borgartúni 6, 3. hæð. Sýningin verður opin alla virka daga kl. 9-16. ➜ Sýningar FÁT, Félag áhuga- manna um tréskurð opnar sýningu í Skurðstofu Sigur- jóns við Hólshraun 5, Hafnarfirði. Opið lau. og sun. kl. 14-17. Aðgangur ókeypis. ➜ Dansleikir Skítamórall verður á Players við Bæjar- lind í Kópavogi. Klúbbakvöld Weirdcore verður haldið á Jakobsen við Austurstræti 9. Fram koma Yagya, Frank Murder, Biogen, Anonymus o.fl. Eyvi þeytir skífum á nýjum skemmtistað við Tryggvagötu 22, London/Reykjavík. Snyrtilegur klæðnaður, aldurstakmark 22 ára. Verkalýðs-Hiphop verður á Sódóma Reykjavíkur við Tryggvagötu. Fram koma m.a. Forgotten Lores, 32C, S.Creezy, G Maris og DJ Kocoon. Húsið opnað kl. 22. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is „Þetta er frábært. Ekki síður gaman að fá að vera nemi í gjörn- ingalist í London í eitt ár í algjöru frelsi. Og fá hjálp við að þróa allar sínar rugluðustu hugmyndir,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari. Hann er að lifa drauminn. Úti í London. Þar sem hann starfar meðal annars með hinum rómaða SHUNT hópi. Guðmundur Ingi er í Masters námi í Gjörningalist í Goldsmiths University í London, fór í sept- ember og verður í það minnsta í ár. Ætlar að vera lengur ef kostur er. Í Goldsmiths kynntist hann leikhús- gúrúinu Mischa Twich- in sem kennir þar öðru hverju. „Besti kennari sem ég hef nokkru sinni haft,“ segir Guðmundur og dregur ekki af sér við lýsingar á hæfileikum Mischa sem hann segir einhvers konar blöndu af heimspekingi og leiklistar- séníi. Kynni þeirra leiddu svo til þess að Mischa setti sig í samband við Guð- mund skömmu eftir að kúrsinum sem hann kenndi lauk og bauð honum hlutverk í verki sem fjallar á afar sérstæðan hátt um síðustu mán- uðina í lífi Franz Kafka. Guð- mundur þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um en sýningin er innan vébanda SHUNT. „Alger forrétt- indi að kynnast þessu liði. Þetta eru miklir snillingar,“ segir Guð- mundur og telur erfitt að lýsa þessu fyrirbæri. Í bogagöngum undir Lond- on Bridge brúnni hefur SHUNT hópurinn þúsund fermetra til umráða. Þessu rými er skipt upp og eru reglulega sýning- ar af ýmsum toga þar sem listgreinar blandast saman. Og sýningarnar breytast dag frá degi. Þarna er alltaf troðið, menn borga fyrir að komast inn en ekki á ein- staka viðburði. SHUNT hópurinn var stofnaður fyrir níu árum, hefur staðið að framúr- stefnulegum sýningum og þykir einn merkilegasti leikhópur Breta um þessar mundir. „Ég tók eftir því þegar ég átti leið um þessa lestarstöð að þarna var alltaf röð. Við venjulega ómerkta hurð. Ég var forvitinn um þetta og þegar ég komst að því hvað þarna var að gerast ákvað ég að þarna vildi ég performera áður en ég færi frá London,“ segir Guðmundur. Hann segir að þetta fyrirkomulag bjóði upp á algert listrænt frelsi. „Snilldarfyrir- komulag. Þetta er aldrei auglýst en alltaf fullt hús.“ Sýningin sem Guðmundur leik- ur í er síbreytileg. Um er að ræða tveggja manna verk ‘The Destruct- ion of Experience: Klamm’s Dream’ sem er samið og leikstýrt af Mischa Twichin sem er einn stofnenda SHUNT. „Mischa skrif- ar ekki texta sjálfur heldur gerir eins konar mósaíkverk. Þessi sýn- ing byggir á dagbókarbrotum Kafka og svo blandast smásögur hans inn í. Verkið fjallar um síð- ustu sex mánuðina í lífi hans. Í grófum dráttum fjallar þetta um hvernig skáld yfirfærir eigin sárs- auka á verk sín. Þetta er gríðarlega erfiður texti og ég er stoltur af að hafa lært hann. Skildi varla bofs í fyrstu,“ segir Guðmundur sem er ekki á leiðinni heim í bráð. - jbg Íslenskur leikari í mekka Talíu GUÐMUNDUR INGI Starfar nú með Mis- cha Twichin og SHUNT- hópunum. Sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu Miðasala í síma 555 2222 og á midi.is 01.05 kl.21 Föstudagur 03.05 kl.21 Sunnudagur 17.05 kl.21 Sunnudagur 24.05 kl.21 Sunnudagur (ath. síðustu sýningar) PBB, Fréttablaðið ,,Ekki missa af þessari fegurð...” ÞES, Víðsjá OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10 - 18 VERIÐ VELKOMIN OG NJÓTIÐ FRÁBÆRS ÚTSÝNIS OG GÓÐRA VEITINGA Í VEITINGASAL PERLUNNAR Sími: 561-4114 Frá 9. apríl til 3. maí G Í F U R L E G T Ú R VA L A F Ö L L U M T E G U N D U M T Ó N L I S TA R R O K K - P O P P - K L A S S Í K - B L Ú S - K Á N T R Ý - S LÖ K U N A R T Ó N L I S T- Þ Ý S K , S K A N D I N AV Í S K O G Í R S K T Ó N L I S T O G A Ð S J Á L F S Ö G Ð U A L L I R N Ý J U S T U T I T L A R N I R Á B ET R A V E R Ð I E N Þ Ú ÁT T A Ð V E N J A S T NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.