Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 10
10 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR VIÐSKIPTI Tap Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) á sex mánaða tímabili frá september 2008 út febrúar 2009 var 365,1 milljónir króna, sam- kvæmt árshlutareikningi. Þetta jafngildir tveggja milljóna króna tapi dag hvern á tímabilinu. Hagnaður seinni sex mánaða rekstrarársins mun að óbreyttu vega upp tapið og reksturinn verða í jafnvægi á árinu, segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Reksturinn sé því á áætlun. Alls varð 253 milljóna króna hagnaður af rekstri RÚV fyrir afskriftir á sex mánaða tímabilinu, og frá áramótum hefur RÚV verið rekið með hagnaði, segir Páll. Þá fyrst hafi viðamiklar aðhalds- aðgerðir sem farið hafi verið í síð- asta haust skilað sér inn í rekstur félagsins. Hann segir verðbólguskot á síð- asta ári hafa bitnað harkalega á RÚV eins og öðrum fyrirtækjum, en skuldir félagsins á þeim tíma voru um fjórir milljarðar króna. Ákveðið var að breyta 562 millj- óna króna skuld RÚV við ríkissjóð í hlutafé nýverið. Í kjölfarið verður þjónustusamningur félagsins endur skoðaður og er sú endurskoð- un nú að hefjast, segir Katrín Jak- obsdóttir menntamálaráðherra. Hún segir að stjórnarformaður RÚV og útvarpsstjóri muni fara í þá vinnu með fulltrúum mennta- málaráðuneytisins. Erfitt sé að segja til um hvenær niðurstöður úr þeirri vinnu líti dagsins ljós, en það verði vonandi sem fyrst. Katrín segir mikilvægt að fara heildstætt yfir málefni RÚV, og reynsluna af því að breyta félaginu í opinbert hlutafélag. Spurð hvort hún vilji breyta félaginu aftur í ríkisstofnun segir hún það ekki endilega réttu leiðina. Launakostnaður vegna tíu æðstu stjórnenda var um 52,2 milljónir frá september út febrú- ar síðastliðinn. Laun og hlunnindi útvarpsstjóra voru um 1.550 þús- und krónur á mánuði að meðal- tali. Meðallaun níu annarra æðstu stjórnenda RÚV voru tæplega 800 þúsund krónur á mánuði. Páll segir laun starfsmanna með yfir 300 þúsund krónur hafa lækkað á síðasta ári, og laun æðstu stjórnenda mest. Ekki hafi verið rætt að lækka laun stjórnenda frekar nema aðstæður breytist. Katrín segir það sína skoðun að eðlilegt væri að launabil hjá ríkis- fyrirtæki væri minna, útvarps- stjóri sé nú með hærri laun en for- sætisráðherra. Það sé meðal þess sem verði rætt við endurskoðun þjónustusamningsins. brjann@frettabladid.is Segir stefna í halla- lausan rekstur RÚV Útvarpsstjóri spáir viðsnúningi í rekstri RÚV eftir 365 milljóna króna tap á sex mánaða tímabili. 253 milljóna hagnaður varð af rekstri fyrir afskriftir. Launabil innan RÚV verður rætt við endurskoðun þjónustusamnings segir ráðherra. KOSTNAÐUR Útvarpsstjóri var með um 1.550 þúsund krónur í mánaðarlaun að meðaltali á sex mánaða tíma- bili. Níu aðrir æðstu stjórnendur félagsins voru með tæpar 800 þúsund krónur í mánaðarlaun á tímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVAKATRÍN JAKOBSDÓTTIR PÁLL MAGNÚSSON NAUTABANI Í HAM Spænski nauta- baninn Morante de la Puebla víkur sér undan dýrinu, sem hann ætlar svo að murka lífið úr. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest dóm yfir Reyni Traustasyni, ritstjóra DV og fyrrverandi rit- stjóra Mann- lífs, fyrir að birta áfengis- auglýsingu í Mannlífi. Reynir krafð- ist sýknu í mál- inu. Hann sagði að ekki hefði verið um aug- lýsingu að ræða, heldur aðeins umfjöllun um áfengistegundir. Dómurinn kemst að þeirri niður- stöðu að umfjöllunin hafi verið kynning til markaðssetningar. Reynir er dæmdur til að greiða hálfa milljón í sekt, og auk þess 300 þúsund krónur í áfrýjunar- kostnað. - sh Fyrrverandi ritstjóri Mannlífs: Sekt fyrir að fjalla um áfengi REYNIR TRAUSTASON NASARET, AP Múslimar í Nasaret búa sig nú margir hverjir undir komu Benedikts páfa XVI. til borgarinnar um miðjan maí, minnugir þriggja ára gamalla ummæla páfans um ofbeldisfullan boðskap Kóransins. Borðar hafa verið strengdir upp við hlið Boð- unarkirkjunnar, sem páfi hyggst heimsækja, með fordæmingum í garð þeirra sem móðga íslamstrú. Þótt sumir múslimar hugsi páfa þegjandi þörfina ætla aðrir að bjóða hann velkominn og funda með honum. Einhverjir þeirra, til dæmis klerkurinn Taysir Tamimi, hyggjast þó krefja hann um afsökunarbeiðni. - sh Ekki velkominn til Nasaret: Múslimar bíða Benedikts páfa EILÍF PÍNA Á borðanum er vers úr Kór- aninum sem segir að hver sá sem hall- mæli drottni og Múhameð spámanni sé dæmdur til eilífrar og niðurlægjandi pínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Miðaverð á Þjóðhátíðina í Eyjum um næstu verslunarmannahelgi verður óbreytt frá fyrra ári, eða 10.900 krónur í forsölu og 12.900 krónur við innganginn. Eyjar.net vitnar til þjóð- hátíðarnefndar, sem segir þó ekkert verða slegið af í skemmtanahaldi. „Enda Eyjamenn ekki þekktir fyrir annað en gera þetta almennilega eða bara sleppa því.“ VESTMANNAEYJAR Engin verðbólga á Þjóðhátíð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.