Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 1. maí 2009 15 UMRÆÐAN Ragnheiður Jóns- dóttir skrifar um Evrópumál Styrk staða heimila og fyrirtækja í land- inu er undir því komin að nú, eftir kosningar, verði leitað eftir aðildar- viðræðum um inngöngu í ESB. Aðeins með samningsumleitun- um við ESB sést, hvaða skilmál- um innganga Íslands í ESB er bundin. Í þeim samningsumleit- unum kemur ein af grundvallar- reglum ESB, nálægðarreglan (principle of subsidiarity) væntan- lega til með að nýtast Íslandi, því reglan stuðlar að því að smáríki haldi séreinkennum sínum og sérstöðu. Þjóðin verður síðan að fá að kjósa um samningsdrögin í þjóðar atkvæðagreiðslu. Helsti kostur ESB-aðildar er að við fáum nýjan, sterkan gjald- miðil, evruna, sem mun stórauka stöðugleika og stuðla að efna- hagslegu jafnvægi. Verðtrygging verður óþörf, vextir munu lækka vegna bættra lánakjara erlend- is og eins verður unnt að afnema gjaldeyrishöft. Hjól atvinnu- lífsins fara að snúast aftur og ný störf skapast. Fyrirséð er að heilbrigt rekstrarumhverfi laði að erlenda fjárfesta. Samkeppnis- reglur ESB og styrkjakerfi munu auka hag smárra og meðalstórra fyrirtækja. Verð á matvælum og öðrum neysluvörum mun lækka, en útgjöld íslenskra heimila vegna þeirra eru með þeim hæstu í Evrópu í dag. Mikill kostur inngöngu okkar í ESB er tollfrjáls aðgangur að mörkuðum sambandsins og mun hann sérstaklega nýtast íslensk- um sjávarútvegi og landbúnaði. Ísland mun með inngöngu í ESB fá tollfrjálsan aðgang að stærsta markaði heims fyrir sjávarafurðir. Eins munu ný tækifæri skapast fyrir útflutning landbún- aðarvara og aðgangur fást að styrkjakerfi ESB fyrir landbúnað á norðurslóð. Með aðild að ESB verð- um við hluti í sterku banda- lagi þjóða, sem eru líkast- ar okkur að menningu. Allt tal um einhliða upptöku evru er óábyrgt og hefur að meginstefnu verið hafnað af for- svarsmönnum Seðlabanka Evr- ópu (ECB = European Central Bank). Rök sem þau að Andorra, Món- akó, San Marínó og Svartfjalla- land hafi hlotið evru án þess að vera aðilar að ESB skýrast með því að þau lönd höfðu gjaldmiðla sem lagðir voru niður með upp- töku evru. Menn geta séð hversu fjarstæðukennt allt tal um ein- hliða upptöku evru er með því að spyrja sig einfaldra spurn- inga: Hver myndi sjá okkur fyrir evrum? Seðlabanki Evrópu, sem hefir lýst yfir að „ríki, sem vilja taka upp mynt ESB verða að koma inn um aðaldyrnar en ekki bakdyrnar“? Ljóst er að Seðla- banki Íslands gæti ekki prentað evrur. Einhliða upptaka evru yrði kostnaðarsöm og er óráðleg ríkj- um sem ekki búa við efnahags- legan stöðugleika, auk þess sem upptaka evru í óþökk ESB gæti leitt til efnahagslegrar einangr- unar ef ekki ísaldar. Því hljótum við að vilja ábyrga, gagnsæja og lýðræðis- lega afgreiðslu Evrópumála, sem lætur reyna á samningaleiðina við ESB með eftirfarandi þjóðar- atkvæðagreiðslu. Höfundur er lögfræðingur og skipaði sæti á lista Samfylkingar- innar í Suðvesturkjördæmi. Nokkrir kostir ESB-aðildar RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR ALP er stærsta bílaleiga landsins og býður upp á bíla erlendis á yfir 6300 leigustöðum Avis og Budget. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að vinna með framsæknu fyrirtæki og ná hámarksárangri. Umsóknir skulu sendar á atvinna@alp.is merktar „Þjónustuver“ fyrir 8. maí 2009. Starfsmaður í þjónustuveri Starf í þjónustuveri sem felur í sér kynningu og sölu á þjónustu fyrirtækisins ásamt öflun og viðhaldi viðskiptasambanda. Við leitum að jákvæðum, skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í ört vaxandi fyrirtæki. HÆFNISKRÖFUR • Lipurð í mannlegum samskiptum • Þjónustulund og nákvæmni í vinnubrögðum • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði • Góð tölvukunnátta Fulltrú aráð v erkalý ðsféla ganna í Reyk javík BSRB Banda lag há skólam anna Kenna rasam band Í slands Samba nd ísle nskra framh aldssk ólanem a Tónlist Lúðrasv eit verka lýðsins o g 200.00 0 Naglb ítar taka lagið Ávarp f undarst jóra Súsann a Vilhjál msdóttir , formað ur Félag s hársny rtisveina Ræða Gylfi Arn björnsso n, forset i ASÍ Tónlist 200.000 Naglbít ar og Lú ðrasveit verkalý ðsins Ræða Þórveig Þormóð sdóttir, formaðu r Félags starfsm anna stj órnarráð sins Tónlist Sigtrygg ur Baldu rsson og Parabó lurnar Ávarp Stefán R afn Sigu rbjörnss on, formaðu r Samba nds ísle nskra fra mhaldss kólanem a Tónlist 200.000 Naglbít ar og Lú ðrasveit verkalý ðsins Fundars tjóri slítu r fundi, “ Internat ionalen” sunginn Lúðrasv eit verka lýðsins o g Lúðra sveitin S vanur le ika undi r Dagskrá Safnast sama n á Hlemmi k l. 13.00 Sigtryggur Ba ldursson og P arabólurnar Gangan legg ur af stað kl. 13.30 Gengið niður Laugaveg, B ankastræti, A usturstræti og inn á Austurv öll Lúðrasveit ve rkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu Ræðumenn f lytja örræður meðan ganga stendur yfir Útifundur á A usturvelli hefs t kl. 14.10 Kakó í boði o g leiktæki fyri r börn Útifundi lýkur kl. 15.00 in gu nn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.