Samvinnan - 01.12.1967, Blaðsíða 34

Samvinnan - 01.12.1967, Blaðsíða 34
að samræma betur stærðfræði- formúlurnar hinum raunveru- legu aðstæðum á athugunar- tímabilinu og finna með til- raunum beztu ákvörðunarregl- una við val á löndunarstað fyrir síldveiðiskipin á sama tímabili. Jafnframt þarf að líkja eftir aðstæðum á lengra tímabili, þannig að kerfislík- anið fái almennara gildi og verði raunhæfara. Þessi vinna getur tekið nokkuð langan tíma, og þar verður sennilega erfiðast að safna upplýsingum um liðnar síldarvertíðir. Vinn- an í rafreiknunum tekur mjög stuttan tíma og sem dæmi má nefna, að prófun á tveim stærðfræðiformúlum til ákvörð- unar á aflamagni skipanna tók 2,81 mínútu í öðru tilfell- inu og 2,94 mínútur í hinu. Hér er átt við tímann sem það tók IBM-7090-vélina að fram- kvæma alla útreikninga fyrir athugunartímabilið, en út- skriftin tók nokkuð lengri tíma. Að þessu verkefni hafa unn- ið tveir starfshópar, annar í Reykjavík, hinn í Lyngby í Danmörku. í Reykjavíkurhópnum hafa tekið þátt: Már Elísson, hag- fræðingur; Jakob Jakobsson, fiskifræðingur; Helgi Sigvalda- son, lic. tekn.; Þóroddur Th. Sigurðsson, verkfræðingur. í Lyngbyhópnum hafa eftir- farandi aðilar unnið: Dr. Peter Pruzan; dr. J. T. Ross Jackson; Eli Hagerup, verkfræðingur; Jakob Krarup, verkfræðingur. í Reykjavíkurhópnum hafa aðallega verið rædd málefni sem vörðuðu tilgang athugan- anna, upplýsingasöfnun, mögu- leika og takmarkanir á fram- kvæmd verksins, og jafnframt hafa skýrslur hópsins í Lyngby verið ræddar. í Lyngby hefur aftur á móti farið fram upp- bygging kerfislíkansins og það verið reynt á IMB-70-90-raf- reikni í NEUCC-reiknistofnun- inni (Northern Europe Uni- versity Computing Center) við Danmarks Tekniske Hpjskole. Ég vil að lokum þakka öllum þeim aðilum sem gert hafa þessa athugun mögulega, en of langt mál yrði að telja þá alla. Þóroddur Th. Sigurðsson JÓN JÓNSSON: HELZTU FISKSTOFNAR Á ÍSLANDSMIÐUM OG ÁHRIF VEIÐANNA Á ÞÁ Inngangur Árið 1964 nam heildarveiði íslendinga tæplega 970 þúsund tonnum og skiptist veiðin þannig eftir tegundum: síld 544 þúsund tonn (56,2%), þorskur 281 þúsund tonn (30,0%), ýsa 57 þúsund tonn (5,9%), karfi 28 þúsund tonn (2,9%) og ufsi 22 þúsund tonn (2,2%). Alls nam veiði þessara fimm tegunda um 97% heild- araflans, en aðrar tegundir voru helzt steinbítur, skarkoli, langa og keila. Hér á eftir mun gerð laus- leg grein fyrir fimm þýðingar- mestu tegundunum í veiði fs- lendinga og því, sem vitað er um áhrif veiðanna á þær. Síld Síldveiði íslendinga byggist á þremur síldarstofnum og eru tveir þeirra íslenzkrar ættar, en sá þriðji er af norskum uppruna og kemur hingað í ætisleit. Hrygning íslenzku síldar- stofnanna er greinilega aðskil- in: vorgotssíldin hrygnir aðal- lega í marz en sumargotssíld- in í júlí. Aðalhrygningarsvæði vorgotssíldarinnar eru á svæð- inu frá Hornafirði að Reykja- nesi, en hrygning sumargots- síldarinnar nær alla leið að Snæfellsnesi og jafnvel allt norður á Húnaflóa. Þessir stofnar eru allfrábrugðnir í líf- eðlisfræðilegu tilliti. Norska síldin hrygnir við vesturströnd Noregs á líkum tíma og íslenzka vorgotssíld- in, en hrygningarsvæði henn- ar er allbreytilegt frá einu tímabili til annars. Við mat okkar á stærð síld- arstofnanna og áhrifum veið- anna á þá er nauðsynlegt að geta greint á milli hinna ein- stöku stofna og athuga hvern þeirra sérstaklega. Þetta er aðallega gert með athugunum á hreistursgerð, kynþroska og fjölda hryggjarliða. íslenzku síldarstofnarnir eru blandaðir mestan hluta ársins og ein- ungis aðskildir yfir hrygning- artímann. Á 1. mynd er sýnd ársveiði íslendinga í herpinót af hinum einstöku síldarstofnum á ís- landsmiðum síðan 1950. Veiði vorgotssíldar og sumargotssíld- ar var mjög lítil fram til árs- ins 1955, en fór að aukast eft- ir það, sérstaklega veiði vor- gotssíldar, sem komst upp í 230 þúsund tonn árið 1962. Sumargotssíldveiðin náði há- marki árið eftir og fengust þá rúm 100 þúsund tonn. Síðan hefur veiði beggja þessara stofna hrakað mjög. Stærð íslenzku síldarstofn- anna á árunum 1962—64 hefur verið áætluð eftir endurheimt- um á merktri síld. Samkvæmt því nam stærð þeirra beggja 931 þúsund tonnum árið 1962, en var komin niður í 457 þús- und tonn árið 1964. Dánartal- an af völdum veiðanna var nokkuð jöfn öll árin, eða um 33% á ári, og er það mun hærra en hjá norska síldar- stofninum. Er talið að frekari sóknaraukning í þessa stofna muni ekki hafa í för með sér tilsvarandi aukningu í afla. Sú veiði, sem byggist á norska síldarstofninum, var lítil en nokkuð jöfn á árunum 1950—1960 og komst aldrei yf- ir 50 þúsund tonn á ári. Eftir 1960 hefur þessi veiði hins veg- ar aukizt gifurlega og var kom- in yfir 500 þúsund tonn árið 1965 og það ár nam norska síldin 93% af heildarsíldveiði íslendinga norðanlands og austan. Athuganir á stærð hins kyn- þroska hluta norska síldar- stofnsins, sem byggðar eru á endurheimtum úr íslenzku síld- armerkingunum, sýna, að á árunum 1953 til 1959 minnk- aði stofninn úr 13 milljón tonn- um í 5 milljónir tonna. Rann- sóknir sovézkra fiskifræðinga síðan 1958 benda til þess að stofninn hafi komizt í lágmark árið 1961 og hafi þá numið 2,5 milljón tonnum, en síðan farið vaxandi og var stofninn talinn rúmlega 5 milljón tonn að stærð árið 1964. Það er vert að geta þess, að Rússar notuðu athuganir með dýptarmælum og kafbátum við rannsóknir sínar og ber þeim vel saman við árangur merkinganna, því að árið 1958, sem er eina árið þar sem báðar aðferðirnar voru notaðar, sýndu merking- arnar stofn að stærð 6,6 millj- ónir tonna, en athuganir Rússa rúmlega 6 milljón tonn. Heildardánartalan í hinum kynþroska hluta norsku síldar- innar er talin vera um 40% á ári og er áætlað að rúmlega helmingur þess sé af völdum veiðanna. Rýrnun norska síldarstofns- ins á árunum 1953—1959 er að- allega talin afleiðing þess að árgangarnir 1951—1958 voru allir lélegir. Þorskur Þorskveiðin hefur um lang- 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.