Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 31

Andvari - 01.06.1959, Page 31
ANDVAIU BIBLÍAN, KIRKJAN OG VÍSINDIN 29 XI. Heimsmynd vísindanna cr nú orðin slík, að enginn maður gctur gcrt scr raunverulega grein í’yrir henni. Það er orðið óbotnandi djúp inilli þcirrar myndar af heiminum, sem skynfærin tjá, og hinnar, sem vísindin stafa að. Raunvísindaleg mynd af heiminum verður aðeins dregin upp með stærðfræði- legum formúlum og hver vísindamaður veit það, að þær formúlur eru aðeins táknrænar myndir, ófullkomið og bamalegt riss af staðreyndum, sem eru of stórar og dularfullar til þess að mannlegur hugur geti gert sér grein fyrir þeirn öðruvísi en með fjarlægum táknum. í hók, sem fjallar um heimsmynd Alberts Einsteins og Einstein sjálfur ritar formála að, segir svo: „Maðurinn leitar veruleikans, en það hlálega er, að þegar náttúran hefur verið svipt hjúpi sínum . . . verður sú mynd, sem fram kemur, sífellt ólíkari reynslunni — miklu fjær licnni og ólíkindalegri cn það andlit yrði, sem allt í einu væri flett hörundi og holdi, svo að við blasti kúpan ber. . . . Eini heimurinn, sem maðurinn raunvemlega þekkir, er sá, sem skynfæri hans skapa. Sá heimur, sem vísindin og heimspekin kalla sýndar- heim, ]l e. heimur Ijóss og lita, blár himinn og grænt gras, goluþytur og straumniður, heimurinn, sem skynfærin skapa, er sú veröld, sem vér erum bundin við, vér erum þannig gerð. Og það, sem vísindin og heimspekin kalla hinn virkilega heim, hinn litlausi og óskynjanlegi alheimur, sem marir eins og hafísjaki í kafi undir því yfirborði, sem manninum er unnt að skynja, sá heimur er aðeins beinagrind af táknum". Síðar í sömu bók segir á þessa leið: Hin óyfirstíganlega hindrun á vegi mannsins er sú, að hann er sjálfur hluti af þeirri veröld, sem hann er að reyna að rannsaka. Og sennilega kom- umst vér aldrei lengra en að nema staðar í lotningu fyrir undri alheimsins og segja með höfundi Hebreabréfsins: Fyrir trú skiljum vér heimana gjörða vera með Guðs orði á þann hátt, að hið sýnilega hefur ekki orðið til af því, sem séð varð. Albert Einstein, sem á mestan þátt í þeirri byltingu, sem heimsmynd visindanna hefur gengizt undir á síðustu áratugum, segir: „Mín trú er fólgin 1 auðmjúkri lotningu frammi fyrir þeim óendanlega háleita anda, sem birtist í þeim einföldu smámunum, sem vér getum numið með vorum veiku og ófull komnu skynfærum. Þessi djúpa sannfæring innstu kenndar um nánd æðsta, hugsandi máttar, sem opinberi sig í hinum óskiljanlega alheimi, cr mín hug- niynd um Guð“. „Ég trúi á persónulegan Guð og get með góðri samvizku sagt, að ég hafi aldrei á neinni stundu lífs míns aðhyllzt guðsafneitun". Hinn annar mikli brautryðjandi í vísindum, sem ég hef líka nefnt áður,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.