Andvari

Ukioqatigiit

Andvari - 01.06.1959, Qupperneq 105

Andvari - 01.06.1959, Qupperneq 105
ANDVARI ÚTILEGUMANNASLÓÐIR Á REYKJANESFJALLGARÐI 103 í Grímsstaðaannál er frásögnin á þessa leið: „Það ár var náð í Hengli suður þremur útileguþjófum. Sagt var, að Gísli Bjarnason, sem lengi var á Arnarstapa síðar, búðarmaður í Bjarnabúð, væri cinn af þeim“. í alþingisbókinni 1703 er einnig getið um refsingu þriggja útileguþjófa, og voru tveir bengdir, en einn aðeins látinn taka út stórfellda húðláts refsingu, og hét sá Gísli Oddsson. Hér er ekkert, sem milli ber, annað en föðurnafn Gísla þess, er sleppt var fyrir æsku sakir, og dvalar- staður ritileguþjófanna í Reykjanesfjall- garði, sem var ekki í Hengli, heldur hjá Selsvöllum og við Hverinn eina rniklu vestar í fjallgarðinum. En áður en vikið er nánar að þeim útilegumönnum og stöðvum þeirra, þykir rétt að hirta tvær stuttar frásagnir um þjófa í Reykjanesfjallgarði, aðra frá 1703, en hina frá 1706: „Tveir þjófar höfðu teknir verið fyrr um haustið á Þingvelli, hét annar Bjarni S(igurðsson), annar Ingimundur E(inarsson). Þeir höfðu stolið kviku og dauðu af Mosfellsheiði og í Olfusi, einkum frá Andrési Finn- bogasyni á Kröggólfsstöðum og haft soðn- ing og athvarf á Skálabrekku . . . En þeir sluppu frá þeim, er þá skyldi færa sýslumanni og hlupu vestur til Borgar- fjarðar. Varð Ingimundur tekinn í Eundarreykjadal, en Bjarni strauk áfram. Var Ingimundur fluttur í Einarsnes, og síðan suður á Seltjarnarnes, því hann hafði stolið úr Kjósarsýslu". (Vallaannáll 1703). „Varð vart við tvo útileguþjófa fvrir sunnan Hellisheiði, hverjir að veg- farandi menn fötum og mat rændu og einn mann, er rak tvær landsskuldarkýr frá Hjalla í Ölvesi og að Álftanesi í Borgarfirði til Guðmundar Sigurðssonar. Maður þessi sleppti kúnurn, fundust þó síðar“. (Setbergsannáll 1706). Hér liafa verið raktar þjóðsögur og frá- sagnir annála um útileguþjófa í grennd við Hengladali, en þær varpa engu ljósi á útilegumannabyggðina þar. Það er að- eins hellirinn sjálfur, sem skýrir frá því á sínu þögla máli, að þar hafi sakamaður (eða sakamenn) leitað athvarfs um stundarsakir. Selsvellir og Hverinn eini. Nokkru vestar en Sveifluháls eða Austurháls við Kleifarvatn er annar háls samhliða hon- um, sem heitir Núpshlíðarháls eða Vesturháls. Vestan við Núpshlíðarháls miðjan er víðáttumikið graslendi, sem heitir Selsvellir. Þar voru áður sel frá Grindavík, og sjást þar enn nokkrar sel- tóttir. Norðan við Selsvelli nær hraunið á kafla alveg upp að hálsinum. Þar cr Elverinn eini úti í hrauninu. Ilann er í botninum á kringlóttri skál, sem cr alþakin hraunbjörgum, og koma gufur alls staðar upp á milli steinanna, en vatn er þar ekkert. Nú er hverinn ekki heitari en svo, að hægt er að koma alveg að honum án allra óþæginda og gufan úr honum sést ekki nema skamman spöl. En til skamms tíma hefur hann verið miklu heitari. Þorvaldur Thoroddsen lýsir honum sem sjóðandi leirhver, þegar hann kom þangað 1883, og segir, að þar sjóði og orgi í jörðinni, þegar gufu- mekkirnir þjóta upp um leðjuna. Og lýsingunni á hvernum lýkur hann með þessum orðum: „Ur Hvernum eina leggur stækustu brennisteinsfýlu, svo að mér ætlaði að verða óglatt, er ég stóð að barmi hans. í góðu veðri sést gufu- strókurinn úr þessum hver langt í burtu, t. d. glögglega frá Reykjavík".1) Fyrir sunnan Selsvelli og við Hverinn eina var athvarf þriggja útilcguþjófa vorið 1703. í alþingisbókinni það ár cr skýrt frá dóminum yfir þeim, og talið upp það, sem þeir höfðu stolið og brotið 1) Þorvaldur Tlioroddsen: Ferðabók ]. bls. 178.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Andvari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.