Andvari - 01.01.1985, Blaðsíða 31
ANDVARI
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON
29
ágætra manna, einkum Magnúsar Más Lárussonar og Jakobs
Benediktssonar.2/
íslenzkar heimildir var auðvitað fyrst og fremst að finna á bókasöfn-
um í Kaupmannahöfn. Sigurður sat í Svíþjóð yfir doktorsritgerð sinni,
en Þjóðverjar löttu mjög til ferðalaga yfir sundið. Þó komst hann a. m.
k. einu sinni til Hafnar í heimildaleit og hafði með sér úr þeirri för
mörg kort í mælikvarða 1:100 000 af hálendi íslands, sem unnin voru
af danska herforingjaráðinu á stríðsárunum. Mun Bandamönnum
hafa þótt þetta góður fengur en Þjóðverjar vart hafa sleppt kortunum
ef þeir hefðu vitað af farangri Sigurðar. Jakob Benediktsson, sem var
í Kaupmannahöfn stríðsárin, sendi honum einnig upplýsingar sem
hann vantaði. Stríðið varð þannig til þess að binda Sigurð yfir doktors-
ritgerð sinni, og óbeint til þess að beina honum inn á brautir heimilda-
könnunar, en á þeim þætti hafa öskulagarannsóknir hans ekki sízt
byggzt. Jafnframt var hann í ritstjórn alfræðibókar Bonniers eins og fyrr
sagði, og taldi sig æ síðan hafa búið að þeim vinnubrögðum sem hann
lærði þar.
Tefrokronologiska studier pá Island er mikið rit, 217 prentaðar síður.
Orðið „tefrókrónólógia“ bjó Sigurður til og þakkaði því orði síðar, e. t.
v. af óþörfu lítillæti, alþjóðlega frægð gjóskulagafræðinnar og sína eig-
in. I áðurnefndu viðtali í Tímariti Máls og menningar 1969 segir hann:
Það er ofmikið sagt, að ég sé höfundur nýrrar fræðigreinar, en e.
t. v. má segja, að ég hafi átt verulegan þátt í tilurð hennar. Ég hefi
þegar nefnt að við Hákon Bjarnason hófum þessar rannsóknir í
sameiningu. Brennandi áhuga hans á ég mikið að þakka og án að-
stoðar hans hefði ég ekki getað ferðazt utn landið eins mikið og
ég gerði. Þess skal og getið, að um það leyti sem við Hákon hófum
rannsóknir tók gagnfræðaskólakennari, Shinohu Yamada, austur
í Hokkaídó í Japan, að vinna að hliðstæðum rannsóknum. En fáir
verða spámenn í föðurlandi sínu. Rannsóknir Yamada vöktu litla
athygli og það var ekki fyrr en upp úr styrjaldarárunum sem
öskulagarannsóknir hófust fyrir alvöru í Japan, og þá fyrir áhrif
frá íslandi. En ég verð að segja, að ég hálf fyrirvarð mig er ég var
kynntur fyrir Yamada á heimaey hans, Hokkaídó, fyrir nokkrum
árum, og þessi fágaði, fíngerði maður, nokkru eldri en ég, kastaði
sér fram á hendurnar og snart góliið með enninu til að votta mér
virðingu sína. Ég hefði átt að gera hið sama. Ég hygg, að það hafi
ráðið nokkru um frama þessarar fræðigreinar og tengt henni