Andvari - 01.01.1985, Blaðsíða 97
ANDVARI
JÓNAS JÓNSSON OG MENNINGARSJÓÐUR
95
I aldi |ónas, að Sigurður hefði samið ákæruskjalið á hendur Menntamála-
ráði, sem sent var Alþingi.
Athygli vakti, að Valtýr Stefánsson ritstjóri Morgunblaðsins gekk fram
fyrir skjöldu í þessu máli og gagnrýndi harðlega Menntamálaráð, og þó
lyrst og fremst formann þess. Fordæntdi hann það hátterni „að efna til list-
sýningar í ófrægingarskyni." Um málverkin í sýningarglugganum kemst
hann svo að orðí, að „hver sem hefur listrænt auga og almenna athyglis-
gáfu, getur séð bæði fegurð og listrænt gildi allra þessara mynda.“
Um þriggja ára skeið, 1940-1942, var úthlutun listamannalauna í hönd-
nm Menntamálaráðs og sætti jafnan mikilli gagnrýni. Við afgreiðslu fjár-
laga fyrir árið 1943 var samþykkt að freista nýrra leiða. Nú skyldi Mennta-
málaráð einungis skipta heildarfjárhæðinni milli deilda Bandalags ís-
lenskra listamanna, sem voru fjórar, en nefnd kosin af hverri deild úthluta
styrkjum til einstaklinga.
Hafi menn gert sér vonir um að öldur óánægju nteðal listamanna lægði
við þessa ráðstöfun, rættist það ekki nema að takmörkuðu leyti. Þegar að
lokinni fyrstu úthlutun sagði Gunnar Gunnarsson sig úr Rithöfundafélag-
inu, og nokkru síðar áttu úthlutunarmál stærstan þátt í því, að rithöfunda-
samtökin klofnuðu. Ýmsir voru óánægðir, eins og löngum hefur viljað við
brenna.
Árið 1945 var síðan við samþykkt fjárlaga fyrir 1946 enn gerð breyting
á þessum málum á þann veg, að Alþingi kysi ár hvert sérstaka úthlutunar-
nefnd listamanna. Hefur sú skipan haldist síðan.
í febrúarmánuði 1943 var kjörið nýtt Menntamálaráð. í framhaldi af
deilurn ráðsins og listamanna liafði innan Sjálfstæðisflokksins myndast
meirihluti fyrir því, að flokkurinn skipti um fulltrúa sína í ráðinu. Hlutu af
hálfu flokksins kosningu nýir menn, Valtýr Stefánsson og Vilhjálmur Þ.
Gíslason. Af hálfu Sósíalistaflokksins hlaut og maður í fyrsta sinn kosningu
í ráðið. Var það Kristinn E. Andrésson, framkvæmdastjóri Máls og
menningar. Jónas Jónsson og Barði Guðmundsson voru einir endurkjörnir
í Menntamálaráð.
Á fyrsta fundi nýkjörins Menntamálaráðs var Valtýr Stefánsson kosinn
formaður þess. Lauk þar með ferli Jónasar Jónssonar sem formanns
ráðsins. Hann átti þar að vísu sæti til ársins 1946. Bera fundargerðabækur
Menntamálaráðs þess merki. að viðhorf Jónasar til myndlistarkaupa lutu nu
mjög í lægra haldi. Enn lét hann allmikið til sín taka innan ráðsins, einkuni
varðandi bókaútgáfuna. Átti hann m. a. frumkvæði að því, að efnt var til
vandaðrar endurútgáfu á þýðingum Sveinbjarnar Egilssonar á Hónters-
kviðunt, og hinir færustu menn, Jón Gíslason og Kristinn Árntannsson,
fengnir til að annast útgáfuna.
Þess má og geta hér, að árið 1944 var Halldór Laxness kosinn í stjórn
hjóðvinafélagsins og átti þar sæli í fulla tvo áratugi. Um útgáfumál var