Rauðir pennar - 01.01.1938, Blaðsíða 28
mikilsverðustu sigurvinningar hans síðan i orustunum
við Guadalajara í vor. Sendiboðarnir sýndu, við mikil
fagnaðarlæti fundarmanna, fánaslitur, er tekin liöfðu
verið af fasistum.
Síðar um kvöldið, að fundinum loknum, hauð spánska
ritliöfundasambandið okkur til kvöldverðar á gistiliús-
inu, þar sem við dvöldum. Þar var selið til miðnættis,
og var þarna saman komið margt manna, auk fulltrú-
anna, einkum liermenn, sem komnir voru frá vigstöðv-
unum. Mér þykir þetta í frásögur færandi, af því að
þá um kvöldið hófu fasistar einhverja hina stói’kost-
legustu fallbyssuhríð sína á Madrid, vafalausl til að
hefna sín á vopnlausum íbúum fyrir lirakfarir þær,
sem þeir höfðu þá um daginn farið fyrir liersveitum
lýðveldisins. Sumir sögðu, að þetta væri kveðja þeirra
til liinna erlendu ritliöfunda og menntamanna, sem
staddir voru í Madrid, og iná vel vera, að nokkuð
hafi verið hæft i því. En þrátt fyrir þennan djöful-
gang úti fyrir, liefi ég sjaldan séð meira fjör og áhyggju-
leysi en i framkomu Spánverjanna og mannanna úr
útlendingahersveitinni þetta kvöld. Þessir léttlyndu
menn hlógu og gerðu að gamni sínu, eins og ekkert
væri óvenjulegt um að vera. Þeir mynduðu söngflokk
og áungu þessa söngva á ólíkustu tungumálum, sem
skapazt liafa í skotgröfunum á undangengnu ári. Glað-
værð þeirra smitaði okkur hina, og áhyggjusvipurinn,
sem sjá mátti á andlitum sumra hinna erlendu full-
trúa, er óvanir voru slikri skothríð, hvarf eins og dögg
fyrir sólu.
Um nóttina förum við nokkrir saman upp á þak
gistihússins, sem er ein mesta og hæsta byggingin þarna
i nágrenninu. Við fikum okkur í dimmunni upp marg-
undna krákustiga. Af liinu flata þaki gistihússins er
viðsýnt yfir borgina og umliverfi hennar. Yfir henni
grúfir næturmyrkrið biksvart, og hvergi sést glæta,
nema á torginu Puerta del Sol, i svo sem tvö hundr-
28