Rauðir pennar - 01.01.1938, Blaðsíða 108
hin skynsamlega liugsun, sem leitar sannleikans í öll-
um hlutum, sem prófar venjuna, eyðir hleypidómunum,
upprætir lijátrúna, yfirslígur heimskuna, finnur veg út
úr torfærunum, sigrar náttúrukraftana, dæmir fortíð og.
nútíð og hýr í haginn fyrir framtíð“ (bls. 211).
VII. Hinn sanni kornskerumaður.
Svona mætti lengi halda áfram tilvitnunum, sem sýna,
hvílíkur afhurðamaður séra Páll hefir verið að víðsýni,
frjálslyndi og dirfsku, krafti hugsunar og orðsnilldar.
Hann er einn af sannleikspostulum hinnar horgaralegu
menningar, og ég hygg það einsdæmi, ekki aðeins hér
á landi, heldur þótt víðar væri leitað, að í einu prédik-
anasafni finnist allar nýjustu og djörfustu kröfur sam-
tíðarinnar í hinum glæsilegasta einfaldleik alþýðuspá-
mannsins. Það hefir verið furðu ldjótt um nafn lians
og á það fyrst og fremst rætur sinar í því, að hann er
prestur í friðsömum sveitarsöfnuði; jafnvel hinir skörp-
ustu stormar geta ekki vakið stórar öldur á litlum stöðu-
vötnum. Og þólt út kæmu prédikanir hans, þá hafa
hinir frjálslyndu andans menn þjóðarinnar leitað ann-
að sér til uppörvunar og stuðnings en til prédikana kirkj-
unnar og því hefir séra Páll farið fram lijá þeim, sem
helzt hafa haft skilyrði til að skilja liann og meta. —
En þótt ekki verði sagt, að séra Páll hafi markað stór
spor í þróunarsögu þjóðarinnar, vegna þess að liann
starfaði innan stofnunar, sem hefir verið gróflega mikið
utangátta í lifinu á þeim breytingatimum, er siðan liafa
verið hér á landi, þá dylst ekki, að persónuleiki Páls
hefir verið með þeim afbrigðum, að nafn hans lilýlui-
uppi að verða, meðan íslenzk þjóð kann að meta orð-
snilld, sannleiksást og hugdirfsku. Það dylst engum, að
séra Páll hefir verið gæddur gáfum brautryðjandans í
mjög ríkum mæli, enda hefi ég hvergi séð glæsilegri og
snjallari lýsingu á þvi, hvernig einum brautryðjanda
beri að vera, heldur en séra Páll setur frarn í einni
108