Rauðir pennar - 01.01.1938, Blaðsíða 234
Hvergi í heiminum liafa aðrir eins árangrar náðzt
á sviði læknisfræði og heilbrigðisliátta og i Sovétríkj-
unum. Fræðimenn kunna að nefna menn eins og Pavl-
off og fleiri slík stórmenni, en þó talar heilbrigðis-
ástandið og fólksfjölgunin skýrustu máli.
Þjóðir hins forna keisaraveldis voru löngum taldar
óþrifnar, og voru það sannarlega. En með bættum húsa-
kosti komu hreinlætistækin og heilsuverndin til sögunn-
ar. Árið 1926 fór fram allsherjar manntal í Sovétríkj-
unum. Þá voru ibúarnir 148 milljónir. Síðan hefir þeim
fjölgað að meðaltali um 3 milljónir á ári, og eru þeir
nú rúml. 180 milljónir. Þetta táknar það, að ungbarna-
dauðinn er að hverfa með öllu.
Ég liefi slultlega drepið á helztu þættina í uppljygg-
ingarstarfi Sovélrikjanna. Ég vék að því í upphafi,
hvernig landi og þjóð alþýðan tók við. Fyrstu þrjú
árin fóru til varnar gegn innrásarherjum auðvaldsins.
Næstu fimm árin til þess að rétta við atvinnuvegina
eftir hörmungar borgarastyrjaldarinnar. Síðustu tíu,
tólf árin hefir alþýðan gelað gefið sig óskipt við upp-
byggingu hins sósíalistiska þjóðfélags. Sá árangur, sem
náðzt hefir, er: Fullkomnasti iðnaður i Evrópu, allir
bændur í samyrkjubúum, sem ráða yfir fullkomnasta
vélakosti í heimi, bezta flugvélatækni á jörðinni. Sovét-
ríkin eru orðin auðugasta gullnámuland jarðarinnar,
auðugasta oliulandið, auðugasta járnlandið, næstmesta
kolaland í heimi; auk þessa liafa fundizt þar, og eru
hagnýtt, ógrynni annarra dýrra málma. Baðmullarrækt-
in hefir margfaldazt, kvikfjárrækt og alifugla stórauk-
izt. — En það, sem stórfenglegast er: Alþýðan, sem
áður var lijátrúarfull og menntunarsnauð, er nú orð-
in frjálsasta og menntaðasta alþýða á jörðinni. Þjóð-
irnar, sem áður voru kúgaðar og þraulpíndar, eru nú
sjálfstæðar menningarþjóðir. Engin fátækt, ekkert at-
234