Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 12
12 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR Þú færð Michelin dekkin hjá Hjólbarðaþjónustu N1 Það er sama hvort ekið er í slabbi, snjó, slepju eða fljúgandi hálku - gripið í þessum ónegldu dekkjum er alveg undursamlegt.“ Gylfi Guðjónsson, ökukennari „Michelin X ICE eru bestu vetrardekk sem ég hef nokkru sinni kynnst á 40 ára ferli sem ökukennari. FÓLK „Okkur fannst það sniðug hugmynd að vera með fasta við- burði hér í miðrými Nýheima þar sem íbúar geta verið með athafna- semi,“ segir Björk Pálsdóttir, verk- efnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Höfn í Hornafirði. Nýheimar er fræðslu- og þekk- ingarsetur á Höfn og verður það miðpunkturinn þar á Athafnavik- unni sem hefst við hátíðlega athöfn í rúmlega hundrað löndum í dag. Fjölmargt verður gert í vikunni á Höfn. Þar á meðal geta bæjarbú- ar komið með eigið afgangsgarn og prjónað saman kærleikstrefil, sem hengdur verður upp í bóka- safninu á Höfn. Hugmyndin er að sem flestir geti tekið þátt í prjóna- skapnum óháð getu og kunnáttu þátttakenda en Guðný Svavars- dóttir bókasafnsvörður mun verða fólki innanhandar við prjónaskap- inn. „Þar fáum við tækifæri til að vinna að sameiginlegu verkefni sem minnir okkur á samstöðu og kærleik,“ segir Björk. Auk kærleiksríks prjónaskapar geta bæjarbúar málað saman mál- verk í Nýheimum undir handleiðslu Guðrúnar Ingólfs- dóttur listakonu, stigið upp á ræðu- kassa og tjáð sig með frjálsu sniði. Björk segir þátt- töku í Athafnavik- unni á Höfn afar góða miðað við að undirbúningur hennar hafi byrj- að af krafti fyrir hálfum mánuði. Björk segir hafa tekist að hvetja fólk til athafna og það hafi tek- ist vel enda Hornfirðingar mjög athafnasamir. Nú eru skráðir 33 viðburðir á Höfn. Skráning viðburða á Athafnavik- una stóð nær sleitulaust yfir alla síðustu viku. Þegar skráningu lauk á föstudag voru viðburðir víða um land komnir yfir hundraðið. Þeir eru af öllum stærðum og gerðum. Alþjóðlegu athafnavikunni verð- ur formlega ýtt úr vör í Norræna húsinu í Reykjavík klukkan 17 í dag. jonab@frettabladid.is Íbúar prjóna kærleikstrefil Alþjóðlega athafnavikan hefst víða um heim í dag. Rúmlega hundrað viðburðir verða víða um land. Á Höfn í Hornafirði prjóna bæjarbúar saman trefil. ■ 12.00-13.00 Uppbyggilegt hádegi hjá Auði Capital (Borgartúni 29) ■ 12.00-15.00 Menntasmiðjan – Rauðakrosshúsið (Borgartúni 25) ■ 12.00-14.00 Aðstoð við Facebook – Rauðakrosshúsið (Borgartúni 25) ■ 12.15-12.45 Frumkvæði og framkvæmdagleði, Amts-Café (Amtsbókasafninu) ■ 13.00 Kraftganga – Golfleikjaskólinn, Jónshús (við Sjálandshverfi í Garðabæ) ■ 13.00-15.00 Barn og náttúra, Litla kistan (Bergstaðastræti 13) ■ 15.00-16.00 Kvennapúttmót 60 ára og eldri – Golfleikjaskólinn, Íþrótta- og sýningarhöllin í Laugardal (aðalinngangur C) ■ 15.00-17.00 Origami. Japanskt handverk á blaðsneið – Rauðakrosshúsið (Borgartúni 25) ■ 16.00 Raddir barna í Þjórsárskóla – Þjórsárskóli í Árnesi ■ 17.00 Opnunarhátíð Alþjóðlegar athafnaviku á Íslandi – Norræna húsið ■ 17.00-18.00 Göngum lengra, Háskólinn í Reykjavík (stofa 131a) Ótímasettir viðburðir ■ Dagur íslenskrar tungu, Bókasafn Árborgar, Selfossi (Á opnunartíma safnsins) ■ Sýningar í bókasafni Árborgar, Selfossi (Á opnunartíma safnsins alla daga vikunnar) ■ Sýningar í bókasafni Árborgar, Stokkseyri ■ Sýningar í bókasafni Árborgar, Eyrarbakka ■ Ýtt úr vör – Háskólinn í Reykjavík ■ Kærleikstrefill – Nýheimar, Höfn í Hornafirði ■ Málverk – Nýheimar, Höfn í Hornafirði ■ Hljóðfæri og „Speaker’s corner“ – Nýheimar, Höfn í Hornafirði DAGSKRÁIN Í DAG - 16. NÓVEMBER BJÖRK PÁLS- DÓTTIR HÖFN Í HORNAFIRÐI Íbúar Hafnar í Hornafirði láta hendur standa fram úr ermum. Rúmlega þrjátíu viðburðir hafa verið skráðir á Alþjóðlegu athafnavikunni. UMHVERFISMÁL Tillögum Verndar- sjóðs villtra laxastofna (NASF) um framtíðarnýtingu eins víð- áttumesta votlendis Evrópu verð- ur fylgt í þaula af frönskum stjórn- völdum. Þau hafa ákveðið að tvær stíflur á vatnasvæðinu, sem eru nálægt Mont-Saint-Michel, fræg- um ferðamannastað í Normandy, verði fjarlægðar. Í september 2008 fól umhverfis- ráðuneytið í Frakklandi, sérfræð- ingahópi NASF, að gera gagngera úttekt á svæðinu og gera tillög- ur að endurheimt þess. Í byrjun þessa árs skilaði sérfræðingahóp- urinn tillögum sínum sem fela í sér að stíflurnar verði fjarlægð- ar sem hamlað hafa laxagöngum og aðkomu laxins að mikilvæg- um búsvæðum. Tillögurnar gerðu og ráð fyrir endurskipulagningu búsvæða, hógværð í nýtingu stang- veiðimanna, viðskiptaáætlunum og samvinnu hagsmunaaðila við upp- byggingu svæðisins. Jean-Louis Borloo, ráðherra umhverfismála, og Chantal Jou- anno ráðuneytisstjóri, hafa kynnt ákvarðanir sínar sem fela í sér að leyfi til raforkuframleiðslu eru aft- urkölluð og héraðsstjóranum falið að gera ráðstafanir til að fjarlægja stíflurnar. Formaður NASF, Orri Vigfússon, fagnar hugrekki Frakka og segir að hér sé sýnt í verki að unnið sé heils hugar að endurreisn laxa- stofna í Evrópu í Frakklandi. - shá Íslenskum tillögum fylgt í þaula eftir úttekt: Sprengja stíflur til að bjarga laxastofni ORRI VIGFÚSSON Er formaður NASF og hefur barist ötullega fyrir verndun laxa- stofna hér og erlendis á undanförnum árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FRÁ AFHENDINGUNNI Verðlaunahafarnir ásamt fulltrúum Landsbankaleiksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÓLK Sindri Snær Svanbergsson, nemandi í 10. bekk í Snælands- skóla, fór með sigur af hólmi í flokki einstaklinga í Raunveru- leiknum, árlegri keppni á vegum Landsbankans. Alda Kristín Guð- björnsdóttir og Guðmundur Ingi Óskarsson urðu í öðru og þriðja sæti einstaklinga. Litla-Hraun, 10. bekkur Grunnskóla Fáskrúðs- fjarðar, sigraði í keppni bekkj- ardeilda. Úrslitin voru kynnt á föstudag. Raunveruleikurinn er gagn- virkur hermileikur, hannaður sem fjármála- og neytendafræðsla fyrir efstu bekki grunnskóla. Leikurinn hófst í fyrsta sinn árið 2001 og stendur yfir í fjórar vikur. Í ár tóku 1.500 nemendur í tíunda bekk þátt í leiknum. - jab Raunveruleik LÍ lokið: Sindri vann ÍÞRÓTTIR Íslenski PGA-golfkennara- skólinn hlaut formlega viðurkenn- ingu af PGA-samtökunum á árs- þingi PGAs of Europe sem haldið var í Murcia á Spáni á dögunum. Að sögn Arnars Más Ólafssonar, skólastjóra PGA-skólans, er þetta mjög mikilvægur áfangi í sögu golf- íþróttarinnar hér á landi. „Af þeim löndum í Evrópu sem eru aðilar að PGA eru eingöngu nítján lönd sem hafa fengið skólana sína viðurkennda. Þetta er ferli sem er búið að taka okkur tæp fjögur ár og hafa margar hendur lagt mikið á sig til að ná þessum áfanga,“ segir Arnar. Golfkennaraskólinn hefur verið í viðurkenningarferli hjá EPGA síðan skólinn var settur á fót árið 2005. Viðurkenningin felur það í sér að þeir nemendur sem ljúka námi hljóta evrópuréttindi til golf- kennslu. Þetta staðfestir það að skólinn hefur tilætluð gæði og stöð- ugleiki er tryggður. Skólinn hefur útskrifað tuttugu nemendur á síð- ustu þremur árum. PGA á Íslandi, samtök atvinnu- kylfinga, eru aðili af PGAs of Eur- ope sem hefur það meginmarkmið að tryggja hágæða kennslu í golfi. Innan aðildarfélaganna eru um það bil fimmtán þúsund golfkenn- arar og eru nú félagsmenn sextíu á Íslandi. - shá Golfkennaraskóli Golfsambandsins hlýtur alþjóðlega viðurkenningu og réttindi: Stórt skref fyrir íslenskt golf STÓR STUND Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri PGA á Íslandi, Tony Bennett, framkvæmdastjóri hjá PGA, Arnar Már Ólafsson, Leif Ohlson og Ingi Þór Einarsson frá PGA á Íslandi. MYND/GSÍ MENNING Samningar hafa náðst hjá Blindrabókasafni Íslands við sams konar söfn í Svíþjóð, Noregi, Dan- mörku og Finnlandi um millisafna- lán. Með því eykst úrval lánþega safnsins til muna. Samningurinn nýtist náms- mönnum sérstaklega vel, ekki síst í námsefni á framhalds- og háskóla- stigi. Með honum geta söfnin geng- ið í safnkost hvers annars, lánað eintök beint áfram eða afritað og dreift til notenda. Blindrabóka- safn Íslands er minnsta safn sinn- ar tegundar á Norðurlöndunum og því eftir miklu að slægjast fyrir lánþega. Leshamlaðir fá með þessu aðgang að tugþúsundum bóka. - kóp Blindrabókasafn Íslands: Samið við nor- ræn bókasöfn KÖLD LIST Listamaður leggur lokahönd á ísskúlptúr fyrir hollensku ísskúlpt- úrahátíðina sem haldin var í borginni Roermond um helgina. NORDICPHOTOS / AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.