Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 17
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég veit ekki hvaðan amma fékk þessa könnu en hitt veit ég að hún er forn. Hún er orðin svolítið lúin en hefur aldrei brotnað,“ segir Ingibjörg þegar hún er beðin að sýna lesendum Fréttablaðsins einhvern heimilislegan hlut. Um leið teygir hún sig eftir könnu sem stendur uppi í hillu þar sem lítil hætta er á að hún verði fyrir hnjaski. Framleiðsluártalið vantar á hana en hún er búin til í Toskan Decoropottery. „Ég man eftir þessari könnu heima hjá ömmu frá því ég var lítil og var alltaf svo hrifin af henni. Amma hafði hana upp á punt og það geri ég líka. Ég ber aldrei neina drykki fram í henni en hef stöku sinnum notað hana undir blóm.“ Ingibjörg segir ömmu sína hafa átt heima hér í Reykjavík þegar hún kynntist henni. „Hún var fátæk kona í borginni. Varð ung ekkja og átti fjóra syni. Pabbi var elstur af þeim. Þeir fæddust vest- ur á Skarðsströnd bræðurnir og voru þar krakkar, pabbi þeirra var smiður og smíðaði meðal ann- ars kirkjuna á Kvennabrekku í Dölum.“ Sem betur fór tókst ömmunni að varðveita könnuna fyrir sonum sínum en það fór ekki eins vel fyrir harmónikunni sem hún átti. Afdrifum hennar lýsir Ingibjörg svo: „Pabbi minn var svo forvit- inn krakki að hann reif harmónik- una alla í sundur og eyðilagði, svo amma gat ekki spilað á hana á böll- um eins og hún hafði gert.“ Ingibjörg situr ekki auðum höndum. Þó að hún sé nýbúin að gefa út ljóðasafn sitt er hún strax farin að huga að útgáfu næsta árs. Það er rússneskur doðrantur sem þarf þýðingar við. „Já, ég er með skáldsögu eldgamla,“ segir hún brosandi. „Þýði helst ekki annað en nítjándu aldar menn eða þaðan af eldri en ég keppi að því að þessi bók komi út á næsta ári.“ gun@frettabladid.is Amma hafði könnuna upp á punt eins og ég Ingibjörg Haraldsdóttir rithöfundur á erfðagrip eftir ömmu sína og alnöfnu, Ingibjörgu Haraldsdóttur. Það er ævagömul ítölsk kanna sem henni þykir mikið til koma, enda er hún með krúsidúllum. „Ég ber aldrei neina drykki fram í henni en hef stöku sinnum notað hana undir blóm,“ segir Ingibjörg um könnuna frá ömmu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SPRENGJUSPILIÐ er nýtt íslenskt orðaspil sem kemur form- lega út í dag, á degi íslenskrar tungu. Í spilinu hangir líf leikmanna á bláþræði meðan hættuleg sprengja tifar og leikmenn berjast við að finna viðeigandi orð út úr stafarunum sem þeir draga af spjöldum. Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 Opið virka daga kl. 12.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00 6 mán. vaxtalausar greiðslur Fyrst og fremst í heilsudýnum Viðhaldsfríar ÞAKRENNUR Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is Varmaskiptasamstæður loftræstistokkar og tengistykki Hágæða Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur. Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar. A u g l. Þ ó rh il d a r 1 4 6 0 .2 4 Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.