Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 34
18 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is MERKISATBURÐIR 1624 Hin 230 ára dómkirkja á Hólum í Hjaltadal fýkur af grunni og gjöreyðileggst í aftakaveðri. 1632 Svíar vinna sigur á keis- arahernum í orrustunni við Lützen en konungur- inn, Gústaf II. Adolf, fellur. 1907 Stytta af Jónasi Hallgríms- syni eftir Einar Jónsson myndhöggvara er afhjúp- uð við Amtmannsstíg í Reykjavík. 1938 Minnisvarði eftir Ríkarð Jónsson myndhöggvara var afhjúpaður í Fossvogs- kirkjugarði á leiði óþekkta sjómannsins. 1957 Nonnahús á Akureyri er opnað sem minjasafn þegar öld er liðin frá fæð- ingu Jóns Sveinssonar rit- höfundar. Í dag eru liðin 152 ár frá fæð- ingu barnabókarithöfundar- ins Jóns Stefáns Sveinssonar – Nonna. Af því tilefni verð- ur afmælisveisla í Nonna- húsi á Akureyri milli klukk- an 17 og 19. Frummyndir Kristins G. Jóhannssonar úr Nonna- sögunum í endursögn Bryn- hildar Pétursdóttur verða til sýnis í húsinu. Ljúf harmon- ikutónlist mun óma um húsið milli 17 og 18. Haukur Ingi- marsson spilar á hnappa- harmoniku svipaða þeirri sem Nonni sjálfur spilaði á. Nonni var á sínum tíma einn þekktasti rihöfundur þjóðarinnar en með skrif- um sínum og fyrirlestrum kynnti hann Ísland. Bækur hans voru gefnar út á yfir þrjátíu tungumálum en færri vita að Nonni þótti einstak- lega skemmtilegur fyrirles- ari og hélt um fimm þúsund fyrirlestra, flesta í Evrópu, Bandaríkjunum og í Japan. Hið nýstofnaða Nonna- vinafélag mun hittast í Zontahúsinu í Aðalstrætinu klukkan 16 og eiga notalega stund saman. Nýir félagar eru velkomnir. Afmælisveisla í Nonnahúsi NONNI 152 ár eru liðin frá fæð- ingu Jóns Stefáns Sveinssonar. „Við verðum með ruggustól og opinn hljóðnema og hér verður upplestur í allan dag, frá klukkan 11 til 19.“ segir Jónína Óskarsdóttir, bókavörður í Árs- afni í Hraunbæ 119 í Reykjavík. Til- efnið er dagur íslenskrar tungu sem er haldinn hátíðlegur um allt land á afmæli listaskáldsins góða, Jónasar Hallgrímssonar. Tvær konur úr röðum bókavarða Ársafns verða í þjóðbúning- um og boðið verður upp á kaffi og djús með ástarpungum og kleinum. Enda var fyrirsögn fréttatilkynningar safns- ins: Ástarorð og ástarpungar. Jónína segir starfsfólk Ársafns hafa farið út úr húsi að lesa upp undanfarin ár og stillt sér upp í stofnunum og fyr- irtækjum í hverfinu. Hún nefnir Bónus, Vífilfell, félagsmiðstöð eldri borgara, Orkuveituna og verslun ÁTVR. „Eitt árið vorum við í Árbæjarkirkju með lestur ásamt fleirum en nú ætlum við að fá fólk til okkar. Við höfum talað við nokkra fastagesti og erum búin að hringja í nágranna og fyrirtæki. Við vitum ekkert hvaða heimtur verða en starfsfólkið hér fylgist með stólnum og sest í hann ef eitthvert lát virðist ætla að verða á lestri. Þetta er nefni- lega maraþon.“ Ást og vinátta er þema dagsins og Jónína segir upplesarana geta komið með texta með sér ef þeir vilji. „En við verðum líka með bækur við stól- inn með völdum textum,“ tekur hún fram. Skyldi starfsfólkið vera búið að grúska mikið í ástarsögum á safn- inu? „Já, já, við höfum lagt í hugmynd- apúkk,“ svarar Jónína glaðlega. „Um ást og vináttu af öllu tagi er að ræða, meira að segja matarást, þannig að eft- irlætisuppskriftir koma til greina sem upplestrarefni.“ Hver og einn les með sínu nefi, hátt eða lágt eftir hentugleikum að sögn Jónínu. En á hún von á mörgum hlust- endum? „Ekkert frekar. Það verða trú- lega bara gestir safnsins sem koma og fara eins og aðra daga. En hingað eru vissulega allir hjartanlega velkomnir til að hlusta, lesa og njóta.“ Ástæða þess að orðið ást varð fyrir valinu er sú að fyrir nokkrum árum var settur upp kassi í Ársafni á degi íslenskrar tungu og í hann lagði fólk fallegasta íslenska orðið að sínu mati. „Hlutskarpast varð orðið ást og þess vegna leggjum við út af því núna í ótelj- andi myndum,“ segir Jónína að lokum. gun@frettabladid.is ÁRSAFN: VERÐUR MEÐ MARAÞONUPPLESTUR Á DEGI ÍSLENSKRAR TUNGU Þemað er ást og vinátta í öllum hugsanlegum myndum JÓNÍNA ÓSKARSDÓTTIR BÓKAVÖRÐUR „Hingað eru allir hjartanlega velkomnir til að hlusta, lesa og njóta,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MILTON FRIEDMAN ANDAÐIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 2006. „Stjórnmálamennirnir leysa ekki vandann, þeir eru vandinn.“ Milton Friedman var banda- rískur Nóbelsverðlauna- hafi í hagfræði, meðal ann- ars þekktur sem eindreginn stuðningsmaður frjálshyggju. Höfnin í Reykjavík var tekin í notkun þennan dag árið 1917. Smíði fyrstu hafskipabryggjunnar var þó lokið tveimur árum fyrr. Hafist var handa við þessa miklu mannvirkja- gerð árið 1913. Áður höfðu verið uppi hugmyndir um höfn í Nauthólsvík eða bætta hafnaraðstöðu í Viðey, sem var aðalhöfn Reykjavíkur á þess- um tíma. Verslunareigendur í Kvosinni í Reykjavík vildu hins vegar eindregið fá höfn í grennd við miðbæinn þar sem mesta þéttbýli og atvinnu- starfsemi borgarinnar var. Náttúruleg hafnaraðstaða austan Örfiriseyjar var fyrir hendi en fór versnandi því sjór gekk þar yfir eftir að brotnað hafði úr grandanum sem lá út í eyjuna árið 1902. Ofsaveður árið 1910 bætti ekki úr skák, þá slitnuðu mörg skip upp og skemmd- ust. Lögð var járnbraut frá Öskjuhlíð niður að ströndinni til að flytja þangað grjót til hafnar- gerðarinnar. Fyrstu framkvæmdir fólust í að hlaða Grandagarð og gera síðan brimgarð til austurs frá Örfirisey. Hinum megin frá var síðan Ingólfsgarð- ur hlaðinn og hafnarsvæðið þannig afmarkað. ÞETTA GERÐIST: 16. NÓVEMBER 1917 Reykjavíkurhöfn opnuð formlega Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Guðbjörn N. Jensson Fannafold 183, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 7. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjúkrunarþjónustu Karitasar. Guðrún R. Pálsdóttir Ása Linda Guðbjörnsdóttir Ragnar H. Ragnarsson Gunnar Páll Guðbjörnsson Björgvin Jens Guðbjörnsson Steinunn Jónsdóttir Rafnar Þór Guðbjörnsson Guðrún Á. Eðvarðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Erika Anna Einarsson Hraunvangi 1, Hafnarfirði, andaðist á heimili sínu þann 10. nóvember. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 16. nóvember kl. 13.00. Ingvar G. Snæbjörnsson Ingigerður Guðmundsdóttir Einar F. Snæbjörnsson Ólafía Agnarsdóttir Fannlaug S. Snæbjörnsdóttir Guðjón S. Snæbjörnsson Soffía Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Halldór Guðnason Kóngsbakka 10, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 10. nóvember. Útförin fer fram frá Breiðholtskirkju miðvikudaginn 18. nóvember kl. 15.00. Guðný Hjartardóttir Guðrún Halldórsdóttir Pétur Haraldsson Kristín Halldórsdóttir Haukur Sigurðsson Guðni Halldórsson Hildur Mikkaelsdóttir Sæmundur Halldórsson Henný Bára Gestsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Jóns Sveinssonar fyrrverandi skipstjóra frá Siglufirði, fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 17. nóvember klukkan 13.00. Anna Jóna Ingólfsdóttir Ingólfur Jónsson Ragna Halldórsdóttir Guðrún Jónsdóttir afabörn og langafabörn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.