Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 42
26 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR Adidas Glove Women Verð 27.990.- Nú aðeins 22.390.- Puma Vellum jr Verð 8.990.- Nú aðeins 7.190.- Hummel 3.3 Verð 8.990.- Nú aðeins 7.190.- Ármúli 36, s. 588 1560 www.joiutherji.is Handbolta skór 20% afsláttur til 21. nóvember Adisas Court Raw Verð 9.990.- Nú aðeins 7.990.- Adidas court Stabil Verð 19.990.- Nú aðeins 15.990.- Adidas Taipa Verð 13.990.- Nú aðeins 11.190.- Asics Gel Beyond Verð 24.990.- Nú aðeins 19.990.- Evrópukeppni félagsliða: Haukar-Pler KC 26-26 (f. leikur) Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 6 (2), Freyr Brynjarsson 5, Björgvin Hólmgeirsson 4, Pétur Pálsson 4, Einar Örn Jónsson 3, Elías Már Hall- dórsson 2, Guðmundur Árni Ólafsson 1. Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 6, Aron Rafn Edvardsson 6. Haukar-Pler KC 22-21 (s. leikur) Mörk Hauka (skot): Sigurbergur Sveinsson 6/3 (12/4), Freyr Brynjarsson 4 (5), Björgvin Hólm- geirsson 3 (9), Heimir Óli Heimisson 2 (2), Elías Már Halldórsson 2 (4), Guðmundur Árni Ólafsson 2 (4), Pétur Pálsson 1, Stefán Sigmannson 1 (3), Einar Örn Jónsson 1 (4), Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 15/2 N1-deild karla: Valur-Fram 27-21 (13-9) Mörk Vals (skot): Fannar Þór Friðgeirsson 5 (9), Elvar Friðriksson 5 (10), Arnór Þór Gunnarsson 4 (8), Ernir Hrafn Arnarsson 4 (8), Ingvar Árnason 3 (4), Orri Freyr Gíslason 2 (2), Sigfús Páll 1 (2), Gunnar Ingi Jóhansson 1 (4). Varin skot: Hlynur Morthens: 10, Ingvar Guð- mundsson 1. Hraðaupphlaup: 3 (Ingvar, Arnór ). Fiskuð víti: 4 (Gunnar 2, Ingvar, Fannar Þór). Mörk Fram (skot): Stefán Baldvin Stefánsson 5 (7), Arnar Birkir Hálfdánsson 5 (9), Magnús Stefánsson 4 (11), Jóhann Karl Reynisson 2 (3), Halldór Jóhann Sigfússon 2 (3), Andri Berg Haraldsson 1 (6), Ármann Kristjánsson 1 (5). Varin skot: Magnús Erlendsson: 8. Hraðaupphlaup: 4 (Stefán 3, Arnar Birkir). Fiskuð víti: 6 (Magnús 3, Arnar, Stefán, Halldór). Eimskipsbikar karla: Akureyri-FH 22-23 (10-16) Mörk Akureyri: Jónatan Þór Magnússon 6, Heiðar Þór Aðalsteinsson 4, Hörður Fannar Sigþórsson 3, Árni Þór Sigtryggsson 3, Oddur Gretarsson 2, Heimir Örn Árnason 2, Andri Snær Stefánsson 1. Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 7, Bjarni Fritzson 4, Örn Ingi Bjarkason 4, Ólafur Guðmundsson 4, Benedikt Kristinsson 2, Jón Heiðar Gunnarsson 1, Sigurgeir Árni Ægisson 1. Stjarnan-Grótta 26-32 Mörk Stjörnunnar: Þórólfur Nielsen 8, Vilhjálmur Halldórsson 3, Jón Arnar Jónsson 3, Guðmundur Guðmundsson 3, Kristján Kristjánsson 3, Daníel Einarsson 2, Eyþór Magnússon 2, Fannar Krist- mannsson 1, Roland Eradze 1. Mörk Gróttu: Anton Rúnarsson 7, Hjalti Pálmason 7, Finnur Ingi Stefánsson 6, Arnar Freyr Theod- órsson 4, Atli Rúnar Steinþórsson 4, Jón Karl Björnsson 3, Halldór Ingólfsson 1. N1-deild kvenna: Stjarnan-Haukar 36-20 Mörk Stjörnunnar: Alina Tamasan 14, Þorgerður Anna Atladóttir 6, Kristín Jóhanna Clausen 4, Ind- íana Nanna Jóhannsdóttir 2, Esther Ragnarsd. 2. Mörk Hauka: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 6, Ramune Pekarskyte 4, Nína K. Björnsdóttir 3. Fram-FH 32-24 Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 11, Pavla Nevar- ilova 6, Anna María Guðmundsdóttir 5, Hildur Þorgeirsdóttir 3, Karen Knútsdóttir 3. . Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 16. Mörk FH: Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 14, Birna Íris Helgadóttir 3, Berglind Björgvinsd. 2. Varin skot: Sigríður Arnfjörð 7. Víkingur-KA/Þór 22-29 Valur-Fylkir 28-19 Mörk Vals (skot): Rebekka Rut Skúladóttir 4(6), Kristín Guðmundsdóttir 4(8), Hrafnhildur Skúla- dóttir 3(9), Hildigunnur Einarsdóttir 3(6), Íris Ásta Pétursdóttir 3(5), Mörk Fylkis (skot): Sunna Jónsdóttir 7(17), Sunn- ar María Einarsdóttir 3(8), Sigríður Hauksdóttir 3(4), Ela Kowal 3(4), Hildur Harðardóttir 2( 5). IE-deild kvenna: KR-Valur 73-43 Stig KR: Margrét Kara Sturludóttir 25, Guðrún Gróa Þórsteinsdóttir 11, Unnur Tara Jónsdóttir 10, Signý Hermannsdóttir 8, Jóhanna Sveinsdóttir 6. Stig Vals: Berglind Ingvarsdóttir 11, Sakera Young 9, Hanna Hálfdánardóttir 8, Sigríður Viggósdóttir 6, Þórunn Bjarnadóttir 4, Hrund Jóhannsdóttir 2, Birna Eiríksdóttir 1, Ösp Jóhannsdóttir 1. ÚRSLIT HANDBOLTI Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel eru komnir á topp síns riðils eftir 42-24 sigur á Amicitia Zürich sem Kári Kristján Kristjánsson leikur með. „Þetta var léttara en ég bjóst við,“ sagði Aron Pálmarsson, leikmaður Kiel, við Fréttablaðið eftir leikinn. Hann skoraði eitt mark og lagði upp mörg önnur. Kári Kristján skoraði fimm mörk og nýtti öll sín skot í leiknum. „Við vorum einu númeri of stórir fyrir liðið hans Kára en hann stóð sig vel. Það kom aldrei annað til greina en að klára þennan leik eftir að hafa gert jafntefli gegn Kolding. Við erum komnir á toppinn og þar ætlum við að vera,“ sagði Aron. Arnór Atlason og félagar hans í FCK voru einnig á ferðinni í Meistaradeildinni í gær. FCK tapaði þá á heimavelli gegn Croat- ia Osiguranje Zagreb, 28-29. FCK hafði lent sex mörkum undir í leiknum, kom til baka og jafnaði en það dugði ekki til því Zagreb skoraði sigurmarkið fimm sek- úndum fyrir leikslok. - hbg SÁTTUR Aron Pálmarsson var sáttur við leik Kiel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Í gær áttust við Valur og Fram í N1-deild karla í hand- knattleik. Heimamenn unnu örugg- an sigur, 27-21, og sitja nú á toppi deildarinnar. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var góður varn- arleikur og mikil barátta í fyrir- rúmi. Valsmenn tóku yfir höndina eftir um stundarfjórðung og mark- maðurinn Hlynur Morthens ræsti vörnina í gang fyrir framan sig. Heimamenn tóku leikinn í sínar hendur og leiddu leikhlé, 13-9. Gestirnir í Fram reyndu hvað þeir gátu til að komast aftur inn í leikinn. Hinn ungi og efnilegi Arnar Birkir Hálfdánsson var sprækur og lét mikið fyrir sér fara í sókninni. Því miður tóku reynslu- meiri menn liðsins hann sér ekki til fyrirmyndar og það munaði um minna. Það virtist vanta trú á verkefninu og andlega hliðin hrundi þegar út í síðari hálfleik var komið. Heimamenn stjórnuðu leikn- um til loka og sigruðu örugglega. Þeir félagar Arnór Þór Gunnars- son og Fannar Þór Friðgeirsson voru sterkir í sókninni á meðan að Hlynur Morthens varði vel í mark- inu. Vörnin var mjög góð hjá Vals- mönnum og var klárlega lykillinn að sigri þeirra í gær. Valsarar eru sem fyrr segir komnir á topp deildarinnar í bili en mjótt er á munum í efstu sæt- unum. „Mér finnst deildin vera jöfn og virðast ekki vera neinir auðveld- ir leikir. Ég held að við séum með lið sem getur haldið áfram á þess- ari leið og setið fast í toppsætinu,” sagði Fannar Þór, leikmaður Vals, í leikslok. - rog Valsmenn komnir á topp N1-deildar karla eftir frekar auðveldan sigur á Fram í Vodafonehöllinni í gær: Valur á toppnum en Fram í harðri fallbaráttu KOMINN Í GEGN Elvar Friðriksson er hér kominn í gegnum vörn Framara í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HANDBOLTI Haukar voru að mörgu leyti heppnir að ná jafntefli í fyrri leiknum á laugardag 26-26. Einar jafnaði í sömu andrá og leiktíminn rann út en PLER var með fjögurra marka forystu í hálfleiknum. Varnarleikur Haukaliðsins var oft á tíðum sundurtættur og ýmis- legt sem Aron Kristjánsson, þjálf- ari Hauka, gat farið yfir. Í gær var síðan boðið upp á stór- skemmtilegan háspennuleik þar sem mikið jafnræði var með lið- unum en Haukar oftast skrefinu á undan. PLER náði síðan forystunni í fyrsta sinn í leiknum 21-20 og komst í lykilstöðu. Haukar náðu að jafna en jafntefli í leiknum hefði þýtt að ungverska liðið færi áfram á fleiri mörkum á útivelli þar sem leikurinn í gær var skráður heima- leikur þess. En þegar leiktíminn var að renna út náði Einar að tryggja sigurinn á ævintýralegan hátt og Haukamenn fögnuðu vel og innilega. „Einar byrjaði leikinn í dag mjög illa en hann kom heldur betur inn í rest- ina og sýndi sigurhugsun,“ sagði Aron eftir leik. „Það er frábært að hafa náð að landa þessu. Mér fannst við eiga í ýmsum erfiðleikum og vorum ekki að spila okkar besta leik. Við vorum að klikka í ótrúlegum dauðafærum en sýndum gríðar- legan karakter í lokin. Þetta var hörkuleikur, menn voru klárir og lögðu sig alla fram. Þetta ung- verska lið er bara hörkugott svo þetta var virkilega sætt,“ sagði Aron. Hetjan sjálf, Einar Örn, var að vonum ánægður með sitt mark og sigurinn. „Það er gaman að strák- arnir skyldu treysta mér fyrir því að fara þarna inn undir lokin. Svona atvikast þetta stundum en ég hef aldrei áður lent í svona tvo daga í röð.“ Einar segir að það hafi vant- að flæði í sóknarleik Hauka í gær. „Hugarfarið var hins vegar til staðar og menn börðust eins og ljón. Við viljum fá sterkt lið í næstu umferð. Vonandi verður þetta lið sem trekkir að áhorfend- ur á heimaleikinn okkar, ef við neyðumst ekki til að selja hann,“ sagði Einar. - egm Einar Örn hélt Haukum áfram í Evrópukeppninni Haukar eru komnir áfram í EHF-keppninni eftir hreint magnaðan sigur, 22-21, á ungverska liðinu PLER. Einar Örn Jónsson mun seint gleyma þessari helgi en mörk hans í blálokin í báðum leikjum réðu úrslitum í viðureigninni. MAGNAÐUR Einar Örn Jónsson fékk mörg klöpp á bakið um helgina eftir að hafa bjargað Haukum í báðum leikjum gegn ung- verska liðinu PLER. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kiel komið á topp síns riðils eftir stórsigur á svissneska liðinu Amicitia Zürich: Þetta var léttara en ég bjóst við

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.