Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 16. nóvember 2009 Bókmenntir ★★★ Lilja Sigurðardóttir Spor Fyllerí og fjöldamorð Spor er fyrsta saga Lilju Sigurðardóttur og skemmst er frá því að segja að ferillinn byrjar vel. Lilja er vel ritfær og tekst að draga upp trúverðugan heim í sögunni, nokkuð sem er engan veginn sjálfgefið miðað við söguefnið. Sagan segir frá röð morða sem á allan hátt tengjast AA-sam- tökunum. Magni er nýkominn úr meðferð og aðstoðar fyrrverandi konu sína, Iðunni lögreglufulltrúa, við rannsókn málsins. Lesandinn fylgir Magna fyrstu skrefin í nýju lífi og hvernig hann tekst á við syndir for- tíðarinnar og sorgir. Helsti galli bókarinnar er fullmikil áhersla sem á köflum er lögð á að koma lesandanum inn í hugarheim AA- samtakanna. Og þó það sé eflaust öllum hollt þá langar mann stundum af fundi og í hasarinn, þó að allt gangi upp í lokin. Lilju tekst vel upp í persónusköpun og vekur áhuga lesanda á afdrifum söguhetjanna og samtölin eru eðlileg; nokkuð sem oft skortir í íslenskum sögum. Textinn er lipur og rennur vel áfram og höfundi tekst að búa til spennu; sem er jú aðalkrafan gagnvart spennusög- um. Kolbeinn Óttarsson Proppé Niðurstaða: Spennandi saga sem gengur upp. Andvari, rit Hins íslenska þjóðvinafélags, er kom- inn út. Aðalgreinin í ár er æviágrip Gylfa Þ. Gíslasonar ráðherra eftir Sigurð E. Guðmundsson. Gylfi var um áratugaskeið einn helstu forustumanna Alþýðuflokks- ins og um skeið formaður flokksins. Hann sat á þingi í þrjá áratugi og var ráðherra mennta- og viðskiptamála í samfleytt fimmtán ár. Annað efni Andvara er sem hér segir: Sveinn Einarsson skrifar um Jörund hundadaga- konung í íslenskum skáldskap; Hannes Björnsson ritar um Hannes Árnason prestaskóla- kennara og sálfræði hans; Dagný Kristjánsdóttir birtir grein um skáldið Stein Stein- arr; Jón Viðar Jónsson fjallar ítarlega um Lárus Pálsson, leikara og leikstjóra, í tilefni af nýrri ævisögu hans . Þá er löng grein eftir Kristmund Bjarna- son um börn Gríms Jónssonar amtmanns. Ritstjóri Andvara er Gunnar Stefánsson. NÝ TÍMARIT TÍMARIT Aðal- grein Andvara er helguð Gylfa Þ. Gíslasyni. Ertu með flensu... ...eða kvef? NF GRÆNMETISBUFF ÞARF AÐEINS AÐ HITA 998 kr. R KJÚKLINGAMOLAR 998 kr. JÓL Ð NÝ FERSK ÝSUFLÖK ROÐ OG BEINL AUS 998 kr.kg. 20% LÆGRA VERÐ I HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Mánudagur 16. nóvember 2009 ➜ Tónleikar 21.00 Bebop-kvöld á Kaffi Cultura við Hverfisgötu. Hljómsveitina skipa Ólaf- ur Stolzenwald, Óskar Guðjónsson, Birkir Freyr Matthíasson og Scott MacLemore. ➜ Sýningar Birgir Guðjónsson, Diðrik Óli Hjör- leifsson og Kristinn Þorbergsson hafa opnað ljósmyndasýningu í Menningar- sal Hrafnistu við Hraunvang í Hafnar- firði. Opið alla daga kl. 13-20. ➜ Síðustu Forvöð Pjetur Stefánsson og Þór Sigmunds- son hafa opnað sýningu á teikningum og lágmyndum á Mokka, Skólavörðustíg 3a. Sýningu lýkur á fimmtudaginn. Opið alla daga kl. 9-18.30. ➜ Kvikmyndir 20.00 Tvær heimildarkvikmyndir, Mongólskir hestamenn og Julia Roberts, og Síberíuhraðlestin - frá Moskvu til Peking verða sýndar hjá MÍR við Hverf- isgötu 105. Aðgangur ókeypis. ➜ Dagskrá 17.00 Í tilefni af 152 ára fæðingaaf- mæli Jóns Stefáns Sveinssonar (Nonna) verður dagskrá í Nonnahúsi við Aðal- stræti 54 á Akureyri. Frummyndir Krist- ins G. Jóhannssonar úr Nonnasögum verða til sýnis og harmónikutónlist hljómar. Allir velkomnir. 17.15 Jónasarvaka í tilefni af degi íslenskrar tungu, fer fram í Þjóð- menningarhúsinu við Hverfisgötu 15. Gerður Kristný og Tryggvi Gíslason flytja erindi og Hamrahlíðarkórinn flytur lög við ljóð Jónasar Hall- grímssonar. Allir velkomnir. 20.00 Í tilefni af degi íslenskrar tungu verður dagskrá með galdramanninum af Ströndum, Sigurði Atlasyni í Menn- ingarmiðstöðinni Edinborg, Aðalstræti 7 á Ísafirði. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.