Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 40
24 16. nóvember 2009 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Dagur íslenskrar tungu Sprengjuspilið er æsispennandi orðaleikur þar sem orð-af-orði íslenskunnar skiptir öllu máli. Ég ætla að spara í ár! PI PAPA PI P PIPI RRR \\\\\ W A TB W A TB W A W A TBTT •• A • A •• SÍ A SÍ A S ÍASÍ A SÍ AÍ 939333 9 93 9 9 1991 9 9 19 HM-umspil: Rússland-Slóvenía 2-1 1-0 Diniyar Bilyaletdinov (40.), 2-0 Diniar Bilya- letdinov (51.), 2-1 Nejc Pecnik (88.). Írland-Frakkland 0-1 0-1 Nicolas Anelka (72.). Portúgal-Bosnía 1-0 1-0 Bruno Alves (31.) Grikkland-Úkraína 0-0 Vináttulandsleikir: Wales-Skotland 3-0 1-0 David Edwards (17.), 2-0 Simon Church (32.), 3-0 Aaron Ramsey (35.). Ítalía-Holland 0-0 Sviss-Noregur 0-1 0-1 John Carew, víti (48.). England-Brasilía 0-1 0-1 Nilmar (47.) Danmörk-Suður Kórea 0-0 Spánn-Argentína 2-1 1-0 Xabi Alonso (16.), 1-1 Lionel Messi, víti (62.), 2-1 Xabi Alonso, víti (86.). Lúxemborg-Ísland 1-1 0-1 Garðar Jóhannsson (63.), 1-1 Kintziger (75.). ÚRSLIT FÓTBOLTI Ísland og Lúxemborg skildu jöfn, 1-1, í vináttulandsleik í Lúxemborg um helgina. Það var Garðar Jóhannsson sem skoraði mark Íslands í síðari hálfleik. Sóknarleikur íslenska lands- liðsins hefur ekki verið burðugur undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Vissulega er ekki alltaf auðvelt að sækja á fáum mönnum gegn sterk- ari þjóðum en í leik gegn veiku liði eins og Lúxemborg gerir maður þá kröfu að landsliðið sýni að það geti sótt að marki andstæðinganna. Ólafur hefur eflaust verið ánægður með að fá þennan leik til þess að æfa sóknarleikinn en svör- in sem hann fékk í leiknum hljóta að hafa valdið honum vonbrigð- um. Íslenska liðið tók stjórnina á leiknum nánast frá upphafi, stýrði umferðinni á meðan heimamenn reyndu að sækja hratt. Þó svo íslenska liðið hefði verið meira með boltann í fyrri hálf- leik kom nákvæmlega ekkert út úr því sem það var að gera. Það var einfaldlega ekki heil brú í leik sóknarleik liðsins og sú staðreynd að liðið hafi ekki skapað sér svo mikið sem eitt færi á 45 mínútum gegn þessu slaka liði segir meira en mörg orð. Um leið og liðið komst á síð- asta þriðjung vallarins rak hver klaufaskapurinn annan. Sérstak- lega áberandi voru sendingafeil- arnir en hvað eftir annað voru menn að gefa glórulausar stungu- sendingar eða sparka boltanum út af vellinum. Með tilkomu Garðars Jóhanns- sonar, sem kom af bekknum í hálf- leik, snarbatnaði leikur liðsins. Ólafur hafði greinilega látið sína menn heyra það því þeir voru mun beittari í öllum aðgerðum og fóru loksins að búa eitthvað til. Engin afgerandi færi litu þó dagsins ljós fyrr en Garðar stangaði auka- spyrnu Emils í netið. Fram að því hafði Ísland fengið nokkrar auka- spyrnur á vænlegum stöðum sem voru illa nýttar. Íslenska liðið hefði í kjölfar marksins átt að klára leikinn. Bæði Garðar og Eiður Smári fengu fín dauðafæri en brást báðum boga- listin. Vörnin klikkaði svo illilega þegar Kintziger jafnaði leikinn stundarfjórðungi fyrir leikslok. Hreinsun og dekkun brást illilega og Árni Gautur hefði líklega getað gert betur í markinu. Íslenska liðið gerði ekki mikið það sem eftir lifði af leiknum, jafn- tefli staðreynd sem er niðurstaða sem veldur vonbrigðum. Það er ekki bara útkoma leiksins sem olli vonbrigðum því frammistaðan í heild var döpur. Veikleikar sóknar- innar voru enn frekar opinberað- ir og ljóst að það er verk að vinna fyrir landsliðsþjálfarana. henry@frettabladid.is Hvar er sóknarleikurinn? Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu féll á prófinu gegn Lúxemborg um helg- ina. Leikurinn var kjörið tækifæri til þess að slípa sóknarleik liðsins en það opinberaðist í leiknum hversu slakur sóknarleikurinn er í raun og veru. MARKASKORARINN Innkoma Garðars Jóhannssonar hafði afar jákvæð áhrif á íslenska liðið og hann skoraði mark Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Nilmar tryggði Brasilíu- mönnum 1-0 sigur á Englending- um í vináttuleik sem fram fór í Doha. England tefldi fram hálf- gerðu B-liði í leiknum enda vant- aði flesta bestu leikmenn liðsins í leikinn. Mörk Brasilíumanna hefðu getað orðið fleiri en þeir klúðr- uðu meðal annars vítaspyrnu í leiknum. „Við vorum að spila við besta lið heims,“ sagði Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, eftir leikinn en hann reyndi að líta á jákvæðu hliðarnar í leikslok. „Ég lærði ýmislegt af þessum leik. Ég skil núna betur hvernig sumir þessara leikmanna nýtast best gegn sterkari þjóðum. Ég mun samt ekki nefna nein nöfn.“ Wayne Rooney var fyrirliði Englands í leiknum og var stolt- ur af því. „Það er augljóslega mikill heið- ur að vera fyrirliði enska lands- liðsins. Fyrst og síðast er ég samt svekktur yfir úrslitunum í þess- um leik,“ sagði Rooney. „Þetta var erfiður leikur fyrir okkur. Við sköpuðum nokkur færi en Brassarnir voru betri og áttu skilið að vinna. Við erum samt betri en sást í kvöld. Við erum að vinna í okkar leik og sem betur fer var þetta bara vináttulands- leikur,“ sagði Rooney. - hbg Brasilía lagði England: Capello samt jákvæður NILMAR Fagnar hér sigurmarkinu gegn Englendingum. NORDIC PHOTOS/AFP Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari var allt annað en sáttur við lið sitt eftir að það gerði 1-1 jafntefli gegn veiku liði Lúxemborgar á laugardag. „Þetta var ekki góður leikur. Það er ekki hægt að segja neitt annað. Þetta var mjög lélegur leikur af okkar hálfu og þetta er ábyggilega lélegasti leikur landsliðsins síðan við Pétur tókum við liðinu,“ sagði Ólafur og reyndi ekki að afsaka dapran frammistöðuna. „Það hefur lengi loðað við landsliðið að vanmeta and- stæðinginn þegar hann á fyrirfram að vera lakari. Það gerist oftar en ekki, því miður. Ég vissi að við myndum stjórna leiknum sem við og gerðum. Við ógnuðum marki þeirra nánast ekki neitt. Ég var að reyna að fara vel yfir vanmatið fyrir leikinn en það skilaði sér greinilega ekki. Ég held að vanmatið hafi verið okkar versti óvinur í þessum leik,“ sagði Ólafur en fyrri hálfleikur er líklega einn sá lélegasti sem landsliðið hefur sýnt. „Hann var arfaslakur. Það var pínulítið líf í okkar fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik. Eftir jöfnunarmarkið vorum við ekki líklegir til þess að gera nokkurn skapaðan hlut,“ sagði Ólafur hálfdapur. „Leikmenn verða aldrei sakaðir um að leggja ekki á sig. Þeir ætla að gera það sem þeir geta er þeir labba á völlinn. Svo er það spurning um hugarfarið og ef það er ekki í lagi þá verða hlutirnir ekki eins og þeir eiga að vera. Hugarfarið verður alltaf að vera rétt.“ Sóknarleikurinn var afar dapur og það virðist ekki fara íslenska liðinu sérstaklega vel að vera sterkari aðilinn á vellinum. „Við höfum hugsað þetta fram og til baka, fyrir og eftir leik. Kannski var þetta gott að einhverju leyti. Við sáum ákveðna hluti í þessum leik sem verður að laga. Ég hef ekki stórar áhyggjur af sókninni en það hefur allt- af verið akkilesarhæll landsliðsins að skora mörk og það verður þannig um ókomin ár,“ sagði Ólafur sem saknaði Heiðars Helgusonar en hann meiddist daginn fyrir leik. „Það munar ótrúlega mikið um hann. Það er stórt skarð höggvið í liðið.“ ÓLAFUR JÓHANNESSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI: AFAR ÓÁNÆGÐUR MEÐ LEIKINN GEGN LÚXEMBORG Lélegasti leikur landsliðsins undir okkar stjórn FÓTBOLTI Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur líklega rifið hár sitt um helgina er hann sá Robin Van Persie meiðast illa í vin- áttulandsleik með Hollandi gegn Ítalíu. Van Persie var borinn af velli eftir aðeins tíu mínútna leik. Hann meiddist á ökkla og er ótt- ast að liðbönd hafi skaddast. Meiðslin litu alvarlega út eftir leikinn og er óttast að Van Persie spili ekki næstu mánuði. - hbg Robin Van Persie: Líklega frá í langan tíma VAN PERSIE Var sárþjáður eftir tækling- una ljótu. NORDIC PHOTOS/AFP > Góður sigur hjá Löwen Rhein-Neckar Löwen vann góðan útisigur á Minden í gær, 27-31, í gær. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir Löwen í leiknum, Snorri Steinn Guðjónsson 3 og Ólafur Stefánsson tvö, þar af eitt úr víti. Gylfi Gylfason skoraði 5 mörk fyrir Minden. Löwen komst með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinn- ar, er jafnt Lemgo að stigum. Löwen mætir einmitt Lemgo á þriðjudag en sá leikur verður í beinni útsend- ingu á Stöð 2 Sport.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.