Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2009 3híbýli og viðhald ● fréttablaðið ● „Við höfum boðið upp á þessar hurðir í tuttugu ár. Þær eru smíð- aðar hér á landi og eru mjög vin- sælar,“ segir Hlynur Þór Svein- björnsson, sölustjóri hjá húsgagna- og innréttingafyrirtækinu AXIS sem fagnar 75 ára afmæli sínu á næsta ári. AXIS býður upp á rennihurðir í miklu úrvali, sérsmíðaðar fyrir hvern og einn. Hlynur segir mögu- leikana á útliti hurðanna vera nán- ast óteljandi. „Á einum skáp hjá okkur er til dæmis mjög falleg mynd af Skaftafelli, sem ég valdi úr ljósmyndabók eftir íslenskan ljósmyndara. Einnig er hægt að fá hurðirnar spónlagðar í mörg- un viðartegundum, sprautulakk- að gler í öllum litum, spegla eða með álímdum filmum, svo dæmi sé tekið.“ Hlynur segir sveigjanleika vera einn helsta kost fyrirtækis- ins. „Ef fólk er til dæmis með fata- skáp í lofthæðinni 2,83 sentimetr- ar þá sérsmíðum við hurð í þeirri stærð. Við erum stolt af fram- leiðslu okkar og mjög samkeppn- isfær í verði,“ segir Hlynur. Hurðirnar eru hugsaðar á fata- skápa, hvort sem um er að ræða nýja skápa eða endurnýjun hurða á gömlum fataskápum. Við erum einnig að útbúa skrifstofuskápa með þessum hurðum. þannig er hægt að setja rennihurðir á heilu veggina sem eru þaktir bókahill- um og fleira í þeim dúr,“ segir Hlynur. Skaftafell á skápinn Skaftafell í allri sinni dýrð blasir við á þessari rennihurð frá Axis. Mikill drifkraftur er í vinkonun- um Vilborgu Aldísi Ragnarsdótt- ur og Hafdísi Heiðarsdóttur en þær fengu hugmynd að kökudiski í vor, byrjuðu að þróa hann í haust og eru nú komnar með heildstæða línu. Þær hanna undir merkinu ARCA design en línan, sem hefur fengið nafnið Alfa, samanstend- ur af kökudiski á fæti, þrískiptum kökudiski, tertudiski, servíettust- andi, kertastjaka og jólatrjám. Vörurnar eru allar úr plexígleri og þeim eiginleikum gæddar að hægt er að taka þær í sundur en þannig taka þær minna pláss þegar þær eru ekki í notkun. „Þetta byrjaði allt með köku- diskinum en þegar ég var að ferma í vor komst ég að því hversu hand- hægir kökudiskar á fæti eru þegar pláss er af skornum skammti,“ segir Vilborg. Hún fékk Hafdísi vinkonu sína, sem hjálpaði henni mikið með ferminguna, í lið með sér og fóru þær að teikna í lok sumars. Hlutirnir eru framleidd- ir hjá Logoflex en Hafdís segir starfsmenn fyrirtækisins hafa sýnt þeim mikla þolinmæði og þjónustulund. „Við erum í raun að bruna af stað með heila línu og því hefur þurft að hafa hraðar hend- ur.“ Vörurnar eru aðgengar á Face- book auk þess sem til stendur að opna heimasíðuna www.arcade- sign.is innan tveggja vikna. „Við stefnum síðan rakleitt á erlend- an markað og höfum Bretland og Skandínavíu sérstaklega í huga,“ segir Vilborg. Þær Vilborg og Hafdís hafa hvorugar hönnunar- menntun að baki en Vilborg starf- ar sem auglýsingastjóri hjá Vík- ing og Hafdís er snyrtifræðingur. Þær hafa þó auga fyrir hlutunum og hefur Vilborg sótt námskeið í hluta- og módelteikningu. Sem stendur er vörunum pakkað inn í silkipappír og merkta poka en vin- konurnar eru á mikilli siglingu og verða vörurnar komnar í sérhann- aðar umbúðir fyrir jól. - ve Glæný heimilislína Línan samanstend- ur af kökudiski á fæti, þrískiptum kökudiski, tertu- diski, servíettu- standi, kertastjaka og jólatrjám. Kertastjakann má taka í sundur eins og aðrar vörur frá ARCA design. Takmarkað upplag af rauðum jóla- trjám og kerta- stjökum verður fáanlegt fyrir jólum. BYLGJAN Í FYRSTA SÆTI Bylgjan ber af og tryggir að skilaboð auglýsenda komist áleiðis til mikilvægustu markhópanna.* * Samkvæmt mælingum Capacent á hlustun í mínútum í aldurshópnum 18 – 49 ára, vika 40, 2009. Í viku 40 var hlustun á Bylgjuna, Létt Bylgjuna og Gull Bylgjuna 52%. Auglýsing á Bylgjunni birtist samtímis á Létt Bylgjunni og Gull Bylgjunni. BYLGJAN ÞAKKAR HLUSTENDUM SAMFYLGDINA Á HVERJUM DEGI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.