Vikan - 21.10.1993, Blaðsíða 10
BARNEIGNIR
ÍOVIKAN 21.TBL. 1993
TEXTI: HJALTIJON SVEINSSON
UÓSM.: BRAGIÞ. JÓSEFSSON
ÁÉG
AD El
RÆTT VIÐ SOLEYJU S.
BENDER, FORAAANN
FRÆÐSLUSAMTAKA UM
KYNLÍF OG BARNEIGNIR
Fyrir ári gerðist sá forvitni-
legi atburður að stofnuð
voru Fræðslusamtök um
kynlíf og barneignir (FKB) og
standa að þeim bæði einstak-
lingar og félög á sviði heil-
brigðis- og félagsmála eða
með sérstakan áhuga á mál-
staðnum. Formaður samtak-
anna er Sóley S. Bender,
lektor við námsbraut í hjúkr-
unarfræði við Háskóla Is-
lands, og varaformaður Ósk
Ingvarsdóttir kvensjúkdóma-
læknir. Á fyrsta aðalfundi var
ákveðið að fimm áhugahópar
yrðu starfandi og gefa þeir
nokkra mynd af því við hvað
samtökin eru að fást. Þessir
hópar eru áhugahópur um
kynfræðslu í skólum, fræðslu
og ráðgjöf um takmörkun
barneigna og fóstureyðingar,
unglingamóttöku, ófrjósemi og
rannsóknir.
Að sögn Sóleyjar voru sam-
tökin stofnuð vegna brýnnar
þarfar á meiri fræðslu og ráð-
gjöf á sviði fjölskylduáætlunar.
Samtök af þessu tagi starfa
víða um heim og er haldið
sameiginlegt þing á hverju ári
undir forystu alþjóðlegrar
deildar.
í lögum samtakanna segir
meðal annars um tilgang
þeirra og markmið:
• Að stuðla að aðgengilegri
og fjölbreyttri þjónustu á
sviði fjölskylduáætlunar.
• Að stuðla að hlutlausri
fræðslu og ráðgjöf um
ábyrgt foreldrahlutverk,
kynlíf, getnaðarvarnir og
barneignir bæði ungs fóks
og eldra, giftra sem ógiftra,
kvenna jafnt sem karla.
• Að stuðla að ábyrgu kynlífi
meðal ungs fólks með því
að vinna að bættri kyn-
fræðslu í skólum og