Vikan - 21.10.1993, Page 21
ríkt líf sem Auðar á jafnstutt-
um tíma og við gerðum fyrir
þessa bók. Það var líka
óhemju skemmtilegt og lær-
dómsríkt - en nei, önnur bók
er ekki alveg á dagskránni
strax.“
ÞRJÚ KRÍLI
OG PRÓFESSOR
„Það er alveg rétt, ég hef lík-
lega farið í gegnum alla fjöl-
miðlaflóruna. Nú vinn ég við
sjónvarp hjá Stöð 2 og ef þú
spyrð mig hvað heilli mig
mest í þessum fjölmiðla-
bransa þá svara ég því til að
hafi maður auga fyrir mynd,
eyra fyrir hljóði og þyki gaman
að vinna með texta þá gerir
maður ekkert skemmtilegra
en að vinna við sjónvarp. Allt
sem gerist fer á einn eða ann-
an hátt í gegnum hendur okk-
ar samdægurs. Þegar við för-
um heim að kveldi er dags-
verkinu örugglega lokið og við
fáum engu þar um breytt. Á
morgun er nýr dagur, ný verk-
efni. Hraðinn og spennan
verður ffkn. Þetta er baktería
sem ég og fleiri losnum ekki
við þó frétta- og fjölmiðla-
heimurinn sé harður og
óvæginn," segir Edda og ætl-
ar greinilega ekkert að ræða
það frekar.
Við stökkvum því úr tali um
harðan og óvæginn heim yfir í
hjal um annan, miklu mýkri og
yndisríkari. Það er fjölskyldan,
samlífið við hana og sú stað-
reynd að þegar þriðja krílið
kom í október fyrir ári voru
átján ár síðan fyrsta krílið kom
í heiminn og fimm ár frá því
annað krílið fæddist. Allt eru
þetta strákar, Jóhann heitir sá
elsti, Andri er fimm ára og
Sindri eins árs. Fjórði dreng-
urinn á heimilinu heitir Stefán
Ólafsson. Hann er á fimm-
tugsaldri, ekkert krili lengur,
prófessor í félagsvísindum við
Háskóla íslands. „Miklu eldri
en ég, að verða fjörutíu og
þriggja,” segir Edda og það
birtir yfir annars björtu yfir-
bragði hennar þegar fjölskyld-
an berst í tal. Það hlýtur að
vera nokkur munur á því að
eignast barn tæplega fertug
eða rúmlega tvítug? „Já,
manni finnst sjálfsagðara að
eignast barn 23 heldur en 39
ára og þá held ég að maður
geri sér grein fyrir því að þau
verða ekki fleiri. Börnin eru
náttúrlega alveg jafnkærkom-
in, þessu fylgir bara önnur til-
finning,“ segir Edda og hlær.
JÚÚÚ-JAAA-NEEII
Blaðamaður tekur nú upp
þriggja ára gamla Viku þar
sem samskiptakort þeirra
hjóna, Eddu og Stefáns, er
birt og þar getur að líta ýmsar
lyndiseinkunnir sem gaman
væri að bera undir Eddu
núna. Þar segir að hún sé
steingeit, rísandi bogmaður
með Venus í vatnsbera. Hún
só samkvæmt því léttlynd og
metnaðarfull fjölskyldukona.
„Já, það hefur ekkert breyst,
allt af þessu,“ svarar Edda
fjálglega og næstu atriði í
stjörnulýsingunni segja að
hún taki hlutina stundum of
nærri sér, leggi mikið upp úr
veraldlegum gæðum og að
hún sé ekki alltaf nægilega
raunsæ. „Já, já, ég skrifa al-
veg upp á þetta. Stefán kem-
ur mér yfirleitt á réttan kjöl og
segir mér gjarnan að halda
mínu striki. Ég skammast mín
heldur ekkert fyrir að leggja
nokkuð upp úr veraldlegum
gæðum, mig langar til dæmis
í góðan, flottan jeppa.“
Þarna segir einnig að þú
eigir erfitt með að festa þig við
veraldlegar áhyggjur? „Júúú,
jaaa, neeei, ég held að það
hafi eitthvað breyst líka. Það
er bara svo leiðinlegt að hafa
áhyggjur en maður verður
yfirvegaðri með árunum þó
þau séu ekki nema þrjú frá
því þetta var,“ segir Edda og
veraldarvafstur og búsetu ber
á góma.
Til nokkurra ára bjó fjöl-
skyldan í Kollafirði, við Esju-
rætur. Nú eru þau flutt í
bæinn og búa í einbýlishúsi í
Fossvogi. Edda segist vissu-
lega kunna vel við sig í borg-
inni miðri en ræturnar í Kolla-
firði hafi legið dýpra ,en hún
hugði. „En það hentaði okkur
ekki lengur að búa þarna upp
frá. Þjónusta var fjarri og að
auki eru veður válynd á Kjal-
arnesinu. Breytingin var mikil
að flytja inn í miðja borg en ég
er mjög sátt. Ég var nokkra
mánuði að flytja ræturnar
endanlega og þurfti stundum
að aka upp eftir til að horfa á
húsið úr fjarlægð. En við erum
í góðu sambandi við konuna
sem keypti af okkur og getum
kannski rekið inn nefið stöku
sinnum! Nú er ég farin að
skjóta rótum í Fossvogi, dal-
urinn er paradís að búa í,“
segir Edda og glampinn í aug-
um hennar sýnir skýrt og
skorinort að þar fer hamingju-
söm kona. Eða hvað?
„Jú, ég skal skrifa undir
það. Ég starfa við það sem
mér þykir skemmtilegt, ég á
góða fjölskyldu; yndislega
stráka. Ég er þakklát fyrir það
sem ég hef og á. Er hægt að
biðja um eitthvað meira?“ □
ETUR '93
NONAME
----COSMETICS--
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVIK: Snyrtivöruversl. Cher, Laugavegi 76
Spes, Háaleitisbraut 58-60 • Snyrtihús Heiöars, Vesturgötu 19
Saloon Ritz, Laugavegi 66 • Snyrtistofa Kristínar, Ásvallagötu 77
Hárgreibslust. Hótel Loftleiöum, Reykj'avíkurflugvelli • Ingólfsapótek,
Kringlunni 8-12 • Verslunin 17, Laugavegi 91 • Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi 82
Snyrtistofan Fegrun, • Búbargeröi 10 ■ Hár og förbun, Faxafeni 8 ■ Snyrtist. Halldóru,
Fannafold 217a • Sápuhúsiö Laugavegi 17 • Hárþing Pósthússtræti 13
Salon Á París, Skúlagötu 40 ■ Snyrtistofan Ásýnd, Starmýri 2 ■ KÓPAVOGUR: Gott útlit,
Nýbýlavegi 14 • GARÐABÆR: Snyrtihöllin, Garbatorgi ■ HAFNARFJÖRÐUR: Versl. Dísella,
Miðvangi • Studio Hár og húb, Reykjavíkurvegi 16
MOSFELLSBÆR: Hárgreibslustofan Absalon, Uröarholti 4
KEFLAVÍK: Snyrtivöruversl. Smart • AKRANES: Versl. Perla
BORGARNES: Apótek Borgarness ■ ÍSAFJÖRÐUR: Snyrtistofan Sóley
Versl. Krisma PATREKSFJÖRÐUR: Patreksapótek
SAUÐÁRKRÓKUR: Skagfirbingabúb • Snyrtistofan Táin • AKUREYRI: Vörusalan
Betri líban ■ Snyrtistofan Eva ■ Verslunin Ynja ■ DALVÍK: Snyrtist. Tanja ■
HÚSAVÍK: Snyrtistofan Hilma
VOPNAFJÖRÐUR: Lyfsalan • HÖFN: Snyrtistofa Ólafar
HVERAGERÐI: Ölfusapótek • Snyrtistofa Löllu, Heilsustofnun NLFl'
VESTMANNAEYJAR: Mibbær.
SELFOSS: Snyrtistofa Ólafar Austurvegi 9
r:
21.TBL. 1993 VIKAN 21
VIÐTAL