Vikan - 21.10.1993, Side 37
I
I
ingur frá félögum er sterkt afl
sem foreldrar mega ekki van-
meta. Það þarf sterkan ein-
stakling til að standast áskor-
anir félaganna og ákveða að
fara aðra leið en þeir. Það er
erfitt að vera sá eini eða sú
eina í partíinu sem ekki fær
sér smók eða sjúss.
Til að öðlast sjálfstraust
þarf að vinna sigra og foreldr-
ar geta hjálpað börnum sínum
að gera einmitt það. Setja
þarf raunhæf markmið sem
líklegt er að barnið nái, gleðj-
ast með því og hrósa því ef
markmiðin nást. Annars þarf
að hughreysta það og hvetja
til annarrar atlögu.
SETJIÐ REGLUR
Reglur eru börnum og ung-
lingum nauðsynlegar. Þær
veita þeim öryggistilfinningu
og eru sönnun um væntum-
þykju foreldranna. Reglurnar
þurfa að vera skýrar og á-
kveðnar en jafnframt sann-
gjarnar og sveigjanlegar. For-
eldrarnir verða líka að vera
samtaka um að framfylgja
þeim.
Sjálfsöruggir krakkar geta í
fullvissu um eigið ágæti og
væntumþykju foreldranna
feimnislaust staðið frammi fyr-
ir félögunum og sagt „ég get
það ekki af því ég má það
ekki“ og félagarnir virða það.
LÁTIÐ BÖRN
TAKA AFLEIÐINGUM
GERÐA SINNA
Það er vafasöm góðmennska
að ætla að hlífa börnum við
afleiðingum óskynsamlegrar
breytni. Líkt og fullorðnir þurfa
börn að læra að taka ábyrgð
á sjálfum sér og breytni sinni.
Ef barnið nennir ekki að
læra undir enskuprófið, sem
er á morgun, skaltu ekki
hringja í kennarann með ein-
hverja falska skýringu á undir-
búningsleysinu. Láttu barnið
koma heim með lágu ein-
kunnina sem það á skilið og
leyfðu því að skammast sín
svolítið.
VIRÐIÐ
TILFINNINGAR ÞEIRRA
Líttu á það sem eðlilegan hlut
ef barnið þitt hræðist eitthvað,
hversu barnalegt sem þér
kann að þykja það. Hlustaðu
á barnið þitt þegar það trúir
þér fyrir því að það sé hrætt,
hvort heldur það er við hunda,
vatn, jólasveina eða myrkur.
Sýndu skilning og samúð,
vertu uppörvandi og gerðu
umfram allt aldrei grín að því.
Ef barnið neitar að kyssa
ömmu í kveðjuskyni eða
borða soðinn fisk skaltu ekki
neyða það til þess. Börn hafa
sinn rétt og hann ber að virða.
KYNNIST
VINUM ÞEIRRA
Veistu hverjir eru vinir barn-
anna þinna? Veistu hvernig
þeir eru eða hvað þeir hafast
að? Það er vissulega fyrir-
hafnarinnar virði að komast
að því og ekki sakar að
þekkja einnig foreldra þeirra.
Þekkir þú foreldrana geturðu
til að mynda auðveidlega
kannað sannleiksgildi þessar-
ar vinsælu röksemdafærslu:
„Já, en Gunna má það. Má ég
það þá ekki líka?“
GETUR BARNIÐ
TREYST ÞÉR?
Vertu vinur barnsins þíns.
Gefðu þér tíma til að hlusta á
það og ræða við það. Það er
hvorki sjálfsagt né sjálfgefið
að börn treysti foreldrum sín-
um. Foreldrarnir verða að á-
vinna sér traustið og þegar
þeir hafa náð þvl verða þeir
að standa undir því. Sýndu
skilning og sanngirni, virtu
skoðanir barnsins og reyndu
að bregðast aldrei of hastar-
lega við.
Þér er mikil virðing sýnd ef
barnið þitt, unglingurinn, trúir
þér fyrir fyrstu kynlífsreynsl-
unni, að hann hafi tekið fyrsta
smókinn eða fengið sér I glas
með félögunum. Andaðu
djúpt, teldu í hljóði upp að tíu
og minnstu þess að viðbrögð
þín hafa afgerandi áhrif á
framtíðarsamband þitt við
barnið þitt, unglinginn sem nú
er ekki barn lengur. □
Mikið úrval
aftísku-
efnum.
Erum líka
með efni í
gardínur og
bútasaum,
jólaefni og
jólafóndur.
Dömu- & Herrabúðin
LAUGAVEGI 55 REYKJAVÍK SÍMI: 91-18890
Nýjung!
Nú getur þú skreytt
þín eigin fót. Auðvelt og
skemmtilegt.
21.TBL. 1993 VIKAN 37
UPPELDI