Vikan


Vikan - 12.09.2000, Qupperneq 45

Vikan - 12.09.2000, Qupperneq 45
Þórunn Stefánsdóttir þjddi fréttaþættina. Velgengni Daniels var ástæða þess að Jefferson og Horwich voru að ráða til sín nýtt starfsfólk á sama tíma og aðrir drógu saman seglin. Velgengni hans var ástæða þess að hún stóð fyrir utan skrifstofubygginguna vitandi það að hún ætti að vera Richard Horwich þakklát fyrir að hafa ráðið hana í vinnu. Auð- vitað var hún þakklát. En hún var líka reið og sár og um fram allt var hún þess meðvituð að hafa mistekist allt sem Daniel Jeffer- son hafði tekist svo snilldarlega. Og hann var aðeins þrjátíu og sjö ára, fimm árum eldri en hún. Hann var ógiftur og mjög mynd- arlegur, eftir blaðaljósmyndun- um að dæma. Hún hafði aldrei séð hann í sjónvarpinu. Hún hafði verið of önnum kafin við að reyna að greiða úr skuldaflækj- unni sem eitt sinn hafði verið fyr- irtæki hennar og haft nóg að gera við að reyna að semja um greiðslufrest hjá bankanum, þar til henni tækist að finna kaupend- ur að lögmannsstofunni. í raun og veru átti bankinn meira í skrif- stofunni en hún. Hún þakkaði sínum sæla fyrir að hafa getað selt bæði húsið og reksturinn. Vonandi færi hún að sofa betur á nóttunni. En þetta þýddi að hún átti ekki lengur eigið fyrirtæki. Hún sá sig í anda á nýja vinnustaðnum, í dýru dragtinni, knékrjúpandi fyr- ir eigendunum. Kannski yrði ætl- ast til þess að hún hitaði kaffið ofan í aðstoðarfólkið. Hættu þessu, sagði hún reiðilega við sjálfa sig. Hættu þessari sjálfsvor- kunn. Hún dró djúpt að sér andann og opnaði dyrnar. Hún heyrði karlmann flauta fyrir aftan sig. Sennilega var hann að flauta á eftir einhverri ungri, áhyggju- lausri stúlku. Um leið og hún hvarf inn í hús- ið sneri maðurinn, sem hafði blístrað, sér að vini sínum og brosti: „Þessi er falleg, herra Jeffer- son. Eg hef ekki séð hana áður á þessum slóðum. Er hún nýbyrj- uð?“ „Það lítur út fyrir það,“ svar- aði Daniel Jefferson. Hann beið eftir að sölumaðurinn lyki við að vigta ostinn sem hann var að kaupa. Hann ætlaði að heimsækja Tom Smith síðdegis. Tom hafði áhyggjur af þvíhvað yrði um hús- ið hans og landareignina eftir hans dag. Hann átti enga lögerf- ingja en konan hans sáluga hafði átt einhverja fjarskylda ættingja. Tom vildi ganga þannig frá mál- unum að Larry Barker, unglings- pilti í þorpinu sem hafði verið honum hjálplegur, yrði minnst í erfðaskránni fyrir góðsemina. Tom þótti rjómaosturinn, sem framleiddur var í sveitinni, mesta góðgæti og Daniel hafði ákveð- ið að koma með ostbita handa honum. Svo Charlotte French var sem sagt mætt á svæðið. Hann hafði fengið eftirþanka eftir að Ric- hard bauð henni starfið. Daniel hafði lesið starfsferils- skrána hennar og var alls ekki viss um að hún yrði ánægð hjá þeim. Dragtin hennar... persónu- lega var honum sama hverju fólk klæddist, en því miður voru sum- ir viðskiptavinanna öðruvísi þenkjandi. Flestir þeirra voru íhaldssamir og stuttar dragtir frá tískuhúsunum íLondon voru lík- lega ekki það sem þeir ætluðust til að kvenkyns lögmaður klædd- ist. Að minnsta kosti ekki ef þeir ættu að taka hana alvarlega. Hann stundi þungan þegar hann gekk yfir torgið. Hann vissi að hún var gáfuð og klár, en ... Ritarinn í móttökunni brosti og bauð Charlotte velkomna. Þær höfðu sést áður, þegar Charlotte kom í viðtalið. Ritar- inn bauðst til að sýna henni skrif- stofuna og vísaði henni á fata- hengið. „Máttu skilja afgreiðsluna eft- ir mannlausa?" spurði Charlotte. Stúlkan brosti til hennar. „Auðvitað. Herra Horwich sagði mér að taka á móti þér og leiðbeina þér. Ég heiti Ginny,“ bætti hún við. „Skrifstofa herra Horwich er hérna til vinstri," sagði hún og benti á eina af lokuðu dyrunum á ganginum. „Og þetta er skrif- stofa herra Jeffersons." Charlotte gaut augunum að uðið og horfði á dyrnar lokast á eftir Ginny. Nei, hún þarfnaðist einskis. Einskis nema eigin fyrirtækis, eigin heimilis, sjálfsvirðingar, stolts, framtíðar og kærasta. Hún gerði sér grein fyrir því að Bev- an var neðstur á listanum. Hafði hún alltaf gert sér grein fyrir því að sambandi þeirra myndi ljúka fyrr en síðar? Að hann myndi ékki standa með henni þegar á móti blési, að hann hefði aðeins elskað hana meðan hún naut vel- gengni og hann gat verið stoltur af henni. Hafði hann í rauninni nokkru sinni elskað hana? Það sem meira var, hafði hún elskað hann eins og foreldrar hennar elskuðu hvort annað? Hún gekk að glugganum og leit yfir torgið. Hún sá mann ganga í áttina að skrifstofubygg- ingunni. Hann var hávaxinn og dyrunum. Það var enginn efi í hennar huga hvor eigandinn hefði stærstu og bestu skrifstofuna. „Og þetta er skrifstof- an þín,“ sagði Ginny og stansaði fyrir framan dyrnar við hliðina á skrif- stofu Daníels. Skrifstofan hennar. Charlotte varð stein- hissa. Hún hafði átt von á því að deila skrifstofu með öðrum. Hún hefur sennilega bara tekið svona til orða, hugsaði hún þegar Ginny opnaði dyrnar. En um leið og hún gekk inn í skrifstof- una sá hún að hún var að- eins ætluð einum. Hún horfði hikandi á Ginny. „Ertu viss ...? Ég á við ... ég átti ekki von á því að fá einkaskrifstofu.“ „Nú?“ Ginny virtist al- veg rugluð. „Herra Horwich sagði mér að fara með þig hingað. Já, og vel á minnst, hann bað mig að segja þér að hann yrði ekki við í dag og Jefferson myndi koma þér inn í starfið." Charlotte horfði í kringum sig í rúmgóðri skrifstofunni. Hún var búin þægi- legum húsgögnum og gluggarnir vísuðu að markaðstorginu. Allt í einu var hún ekki lengur reið, hún var viðkvæm og taugaóstyrk. „Ég verð að koma mér fram,“ sagði Ginny. „Mitzi kemur með kaffi um klukkan hálfellefu. Ef þig langar í hressingu áður, þá er kaffivél í starfsmannaherberginu á efstu hæðinni. Herra Jefferson lét útbúa það þannig að við get- um borðað þar í hádeginu ef við viljum. Þar er lítið eldhús og bilj- arðborð sem við notum óspart. í fyrra kepptum við konurnar við karlana og auðvitað unnum við,“ sagði hún og hló. Hún roðnaði þegar Charlotte tók ekki undir hláturinn. „Jæja,“ sagði hún vandræðalega. „Ég er þá farin. Ef þú þarfnast einhvers Charlotte brosti og hristi höf- Vikan 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.