Vikan


Vikan - 12.09.2000, Síða 52

Vikan - 12.09.2000, Síða 52
Texti: Guðjón Bergmann Sjálfsvirðingin endurheimt Á mínum yngri árum var ég í byggingarvinnu og heyrði bar sögu sem ég hef oft haft eftir, bá sérstaklega í nám- skeiðahaldi mínu. Sagan er af eldri manni sem vann verkamannavinnu, drakk mikið áfengi og reykti. Einn daginn tóku vinnufélagar hans eftir bví að maðurinn hafði ekki mætt bunnur í vinnuna um nokkurt skeið og ekkert reykt heldur. Þegar beir spurðu hann hverju bað sætti stóð ekki á svarh „Ég fékk sjálfsvirðinguna aftur.“ Afhverju bessi óvirðing? í framhaldi af sögu þessari er rétt að spyrja sig nokkurra spurninga. Af hverju reykir fólk? Ég veit ekki um neinn reyk- ingamann sem ekki veit um hættuna sem fylgir því að reykja og ég tala af nokkurri reynslu. Af hverju drekkur fólk áfengi í óhófi? Nánast . hver einasta fjölskylda á íslandi þekkir alkóhól- isma af eigin raun og enginn þekkir þann sjúkdóm af góðu. Af hverju étur fólk svo óhóflega að styrkur fóta þess dugir varla til þess að halda því uppi? Offita er orðin eitt helsta heilbrigðisvandamál heimsins í dag. Sannarlegt velmegunarvandamál. Við getum haldið áfram. Af hverju notar fólk eiturlyf? Af hverju heldur fólk áfram að vera í niðurrífandi samböndum þar sem það er mögulega beitt andlegu eða líkamlegu ofbeldi? Af hverju leggur fólk sig og aðra í hættu með því að keyra of hratt eða keyra drukkið? Síð- ast en ekki síst er vert að hugsa um spurningu sem hefur verið mikið til tals í fjölmiðlum upp á síðkastið. Af hverju fremur fólk sjálfs- morð? því lífi sem við lifum. Við tókum þær ákvarðanir sem leiddu J okkur að þeim stað sem við * erum á. Við *- brugðumst stæðunum samkvæmt okkar bestu vitund. Ef við viljum ein- hverju breyta þurfum við að endurskipu- leggja okkur. Hefur þú ein- ' hvern tíma sest niður og svarað því hvað það er sem gerir þig hamingju- sama(n)? Hvað getum við gert? Við berum þó nokkra ábyrgð Vikan Hvað er þess virði að lifa fyrir? Ef ekki þá er það vissulega þess virði. Sestu niður, skrifaðu öll þau svör sem koma upp í hugann. Gefðu þér minnst hálftíma. Þeg- ar svörin eru kornin niður á blað getur þú síðan byrjað mark- visst að beina lífi þínu í þá átt sem þú vilt fara. Ef þú vilt verja meiri tíma með fjölskyld- unni er það undir þér komið. Ef þú vilt betra starf eða stærra heimili skaltu sækja þá þekkingu, þær viðurkenningar eða fá þá aðstoð sem þarf til breytinganna. Fólk er misvel statt í lífinu og vissulega ekki fyrir alla að gera slíkar breytingar án aðstoðar en við getum öll gert það sem við getum. Stærsta skrefið í átt að því að endur- heimta sjálfsvirðingu þína gæti verið að setjast niður og svara einfaldri spurn- ingu. Mandela sagði bað best y* Þessi stutta hugleiðing er að- eins ætluð sem hvati að aukinni *''' sjálfsvirðingu. Mig langar að enda hana á tilvitnun í innsetning- arræðu Nelsons Mandela frá árinu 1994 þegar hann tók við forsetaemb- ætti í Suður-Afríku. Orðin eru mér enda- laus hvatning. „Dýpsti ótti okkar er ekki sá að við séum ófullkomin. Dýpsti ótti okkar er sá að við búum yfir ómælanlegum krafti. Það er ljósið í okkur en ekki myrkrið sem hræðir okkur mest. Við spyrjum: Hvaða rétt á ég á því að vera frábær, fallegur, hæfileikaríkur og stórfenglegur? í raun og sannleika: Hvaða rétt áttu á að vera það ekki? ÞÚ ERT BARN GUÐS. Það þjónar ekki heiminum að gera lítið úr sjálfum sér. Það felst engin uppljómun í því að skreppa saman svo aðrir finni ekki til óöryggis í kringum þig. Við fæddumst til að staðfesta mikilfengleik Guðs sem býr innra með okkur. Hann er ekki að- eins í nokkrum okkar; hann er í okkur öllum. Og þegar við leyfum okkar eigin ljósi að skína, veitum við um leið ómeð- vitað öðru fólki leyfi til að gera slíkt hið sama. Um leið og við öðlumst frelsi frá eigin ótta veitir nærvera okkar öðrum sjálfkrafa frelsi.“

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.