Menntamál - 01.06.1939, Side 24
22
MENNTAMÁL
inn hafi í tíð Jóns Þórarinssonar breytt lim sitt um land
allt.
Það var brautryðjandastarf að stofna og starfrækja
Flensborgarskólann. í þá daga þótti barnafræðslan ein fyrir
sig fullhæpin, hvað þá að bæta þar á ofan unglingafræðslu,
sem engin sérstök réttindi gaf. Og ekki þótti það sízt vafa-
samt að taka við stúlkum í skólana jöfnum höndum og
piltum. En þar var markað stórt spor. Flensborgarskólinn
er fyrsti samskólinn í landinu og hefir sú stefna sigrað,
umræðulítið, að almenn unglingafræðsla sé jafnt fyrir
stúlkur sem pilta og gefizt vel að hvorttveggja sæki sama
skóla. Um þessa þróun hefir Jón Þórarinsson valdið upp-
hafinu.
Þegar fræðslulögin nýju voru sett árið 1907,eða ári síðar,
var Jón Þórarinsson settur yfirmaður barnafræðslunnar
í landinu og hinnar almennu unglingafræðslu. Var það að
vonum, því hann hafði snemma kosið sér alþýðufræðsluna
sem æfistarf og alla tíð verið þeirri ákvörðun trúr. Var það
mikið starf að skipuleggja barnafræðsluna í upphafi og
víða stritast á móti. Hin ytri skilyrði voru erfið, húsakostur
slæmur og kennaralaun hörmulega lág. En þar notaðist
Jóni Þórarinssyni vel að samstarfinu við sína gömlu nem-
endur frá Flensborgarskólanum og ár frá ári bættust nýir
menn í hópinn frá hinum nýstofnaða kennaraskóla. Var
jafnan hið bezta samstarf með þeim Jóni Þórarinssyni og
síra Magnúsi Helgasyni, kennaraskólastjóra, og eru þeir
feður barnafræðslunnar á íslandi í þeirri mynd, sem hún
nú er rekin.
Á þessum árum skapaðist íslenzk barnakennarastétt og
náðu samtök í stéttinni þó ekki fullri festu fyrr en launa-
lög voru sett. En stéttin mótaðist á þessum árum, og verður
þar í mörgu vart þeirra áhrifa, sem stafa frá Jóni Þórarins-
syni. Skal ég það eitt til nefna, að Jóni Þórarinssyni var
það ljóst, að barnakennarar yrðu að vera frjálsir í starfi
sínu. Hafði hann meðal annars veitt því athygli í Dan-