Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1972, Side 9

Æskan - 01.02.1972, Side 9
Þar, sem umferSarljós eru, verSur þú aS biSa eftir grænu Ijósi. ÞaS er brot á umferSarlögunum og getur kostaS þig líf eSa limi aS fara yfir götu á móti rauSu Ijósi. OFURLÍTIL REIKNINGSÞRAUT Jónsi var beztur af öllum bekknum i reikningi, en þarna fékk hann samt dæmi, sem stóð í honum. Kennarinn hafði skrifað tölurnar frá 1 til 9 á töfl- una og spurt Jónsa, hvort hann gæti sett reikningsmerki (plús, minus eða önnur merki) inn á milli talnanna, svo að útkoman yrði 100! Það eru fleiri en ein ráðning á þessari þraut, en það er um að gera að finna þá, sem þarfnast fæstra merkjanna. Maður má nota tveggja eða þriggja stafa tölu ef vill, en ekki breyta röðinni á tölunum. — Getið þið hjálpað Jónsa? 001. = 68+Z9-^9t'-^e3l. :J3 BtZ)Ajs ns ug 00t = (6X8) +Z+9+S+V+B+3+I. :|ssecj ja juugnejcj e umsnei e)se>|æ)jæN ROTTAN SEM VILDI VERA ÖÐRUVÍSI EN AÐRAR inu sinni var rotta, sem hafði eins og allar aðrar rottur langt og mjótt skott. Hún var hrædd um, að enginn mundi veita henni eftirtekt af því að hún var nákvæmlega eins og allar aðrar rottur. Einn góðan veðurdag ákvað hún þess vegna að leita aðstoðar hjá vini sínum og biðja hann að naga skottið af sér. Hún var svo fákæn, vesalingurinn, að hún hélt að hún yrði ánægðari, ef hún væri öðruvísi en aðrlr. „Auðvitað finnst öllum vænt um sitt eigið skott," sagði hún við vininn, ,,en ég vil endilega losna við mitt.“ Vinurinn, sem þekkti rottuna betur en nokkur annar, þóttist viss um, að rottan mundi siðar sjá eftir skottinu. Þess vegna batt hann aðeins hnút á skottið og lét rottuna vera í þeirrl sælu trú, að hann hefði bitið það af. Rottan, sem hélt að nú væri hún orðin öðruvísi en allar kynsystur hennar, var hin ánægðasta. Hún labbaði til félaga sinna Ijómandi á svip, rétt eins og hún væri einhver tízkudrottning. Þegar hinar rotturnar sáu hana, ráku þær upp stór augu og fóru að skelli- hlæja. Þær hlógu og hlógu og stríddu vesalings rófulausu rottunni. Loksins var henni nóg boðið og hún hljóp I burtu eins hratt og fætur toguðu. í örvænt- ingu sinni fór hún aftur á fund vinar síns, sagði honum sínar farir ekki sléttar og bað hann að gefa sér góð ráð til að fá sitt gamla góða skott aftur. „Ó,“ sagði hún, „ég er svo óhamingjusöm. Allir hlæja að mér og stríða mér. Nú treysti ég þér til að hjálpa mér. Veizt þú ekki um eitthvert gott ráð, svo að mér auðnist að fá rófuna mína aftur. Að öðrum kosti verð ég annað tveggja að fremja sjálfsmorð eða ganga í klaustur.“ Til allrar hamingju gat vinurinn leyst hnútinn á skottinu, svo að það fékk aftur sína réttu lögun. Nú varð rottan hin hreyknasta af því að hafa skott eins og allar aðrar rottur. 7 L

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.