Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1972, Síða 40

Æskan - 01.02.1972, Síða 40
SKÁTAOPNAN Ritstjórn: HREFNA TYNES Vígðu starf þitt landi og lýð, lærðu hið bezta í þinni tíð. Trúðu fast á góðan Guð, það gefur þrek og lífsfögnuð. Lestu að staðaldri bænir þínar og lestu Biblíuna, þá dásamlegu gömlu bók. Lestu einnig aðra dásamlega og gamla bók, sem heitir „Bók náttúrunnar". Veittu henni athygli og lærðu allt sem þú getur um allar þær dásemdir, sem vekja gleði þína i riki náttúrunnar. Hugleiddu svo með sjálfum þér, á hvaða hátt þú bezt getur notað lífið, sem Guð hefur lánað þér — í þjónustu hans. ★ Ef við erum vinir, langar okkur ekki til að eiga í deilum, og með því að leggja rækt við vináttuna, eins og við höfum kostað kapps um á alheimsmótum okkar, undirbúum við jarðveginn til lausnar alþjóðadeilna, með rökræðum f bróðerni. Það mun hafa stórfelld og llfsnauðsynleg áhrif í friðarátt meðal jarðarbúa. Og því skulum við skuldbinda okkur til þess að styrkja sem bezt vináttuna við skáta frá ýmsum löndum, og stuðla að varðveizlu friðarins, hamingju og góðvild meðal mannanna. Það er hugar- farið sjálft, sem mestu máli skiptir. Þegar skátaheitið og skáta- lögin eru í raun og veru komin til framkvæmda, er styrjaldar- og deiluástæðan úr sögunni. ★ Góðverk er það, þegar maður neitar sér um skemmtanir og eigin þægindi til þess að geta rétt öðrum hjálparhönd. Ef þú á hverjum degi reynir að hjálpa öðrum, hvort heldur það er í stóru eða smáu, muntu finna, að þú eykur kærleiksneistann i þinni eigin sál, þannig að þú getur dag hvern glaður og ánægð- ur mætt hinum ýmsu vandamálum daglegs lífs. Þú verður þá langt yfir þau hafinn, þar sem þín heitasta ósk verður sú að láta gott af þér ieiða. Þessi mynd átti að birtast í jólablaðinu, en einhverra orsaka vegna „datt hún upp fyrir." Myndin er af stjórn „Ægisbúa". Tal- ið frá vinstri: Áslaug Guðlaugsdóttir að- stoðarfélagsforingi, Valdimar, Tómas Grét- ar Ólason félagsforingi, Guðmundur. 38

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.