Skírnir - 01.08.1918, Blaðsíða 22
212
Siðbót Lúthers
[Sktrnir
báskólann í Wittenberg. Það eitt þótti konum að, að
Lúther vantaði. En þegar fram í sótti, gerðust þau tíð-
indi í Wittenberg, sem gerðu fjarveru Lúthers tilfinnanlegri.
Þar hófst ný hreyfing. Hún var í því fólgin að koma
ýmsum kenningum Lúthers verklega í framkvæmd.
Prestarnir fóru að gifta sig. Einn samverkamaður Lúthers,
prófessor Carlstadt, hvatti munka og nunnur til að yfir-
gefa klaustrin og gifta sig. Hann prédikaði móti dýrkun
helgra manna og mynda og vildi í ýmsum efnum
taka upp nýja siði. — Fólkið vildi uppvægt fá breyt-
ingarnar þegar í stað. Yfirvöldin létu sér hægt og voru
treg til að breyta. Varð þá uppreist í bænum: Myndir
voru rifnar úr kirkjunum, ölturu brotin niður, árásir
gerðar á presta og munka, kirkjusiðum breytt o. fl.
Kjörfuretinn gerði tilraunir til að sefa þetta uppþot. En
þær tilraunir hepnuðust ekki. Hann lét sér líka hægt,
þvi Carlstadt hugðist koma á nýju skipulagi, sem kjörfursta
leizt ekki illaá. Enþærskipulagstilraunirfóruí handaskolum.
Lúther frjetti alt til Wartborgar. Þó margt af þessu
væri samkvæmt kenningum hans og honum ekki i raun
og veru móti skapi, þá þótti honum of geist á stað farið
í þessum efnum og breytingarnar ganga of langt að svo
stöddu. — Hann varð að fara heim, til að taka í taumana.
Kjörfurstinn var á móti því. í Wartborg var Lúther
óhætt. En að koma opinberlega fram í Wittenberg var
mikil áhætta. Því varð hann að vera kyr. En Lúther
vildi það ekki. Hann skrifaði kjörfursta bréf; kvaðst hann
afbiðja með öllu vernd hans, svo að hann ætti ekkert á
hættu sín vegna. Hann sagðist fara upp á eigin ábyrgð
og treysta vernd guðs eins. — Það er trúarhetjan Lúther,
sem nú vill láta til sín taka — ekki til að berjast móti
óvinunura, heldur til að stjórna vinunum, sem honum
virðast vera að stofna málefni þeirra í hættu.
Sunnudaginn 9. marz 1522 var hann kominn aftur í
prédikunarstólinn í Wittenberg, klæddur sem munkur.
Hann prédikaði fyrst átta daga í röð. Hann prédikaði
trú og kærleika. Taldi hann gott, að tilheyrendurnir