Skírnir - 01.08.1918, Blaðsíða 97
Skírnir]
Bréf frá Bjarna amtiii. Thorarensen
28T
yndislegar og ofurhætt við, að maður kunni að hugsa til þeirra
undir sjálfum skylduverkunum og með því tefjast við þau — eg
vona þór fyrirgefiö mór, að eg tala svo bert við yöur — því eg
gjöri það líka fööurlands míns vegna — mór fannst nefnilega á
þessari öld vera nokkurskonar faraldur að þvf, að einmitt þeir
gáfaðri — og það sem allra verst er ■—- þelr betri af yngri löndum
okkar sumum ekki taki »Attestats« — því í staöinn fyrir að ego-
istarnir gleyma aldrei gagni sínu, er einmitt hinum hætt við að
vanrækja það um of. — Nú óskaði eg helzt, að þeir, sem elska
fööurland sitt, kæmust fram, svo fantarnir ekki komist á undan
þeiro, en því er ver, að við höfum föðurlandselskulausa nokkra í
embættum bæði yngri og eldri —. Þegar þór nú þar hjá hugsið
til foreldra yðar, vona eg, að þér ekki reiðist gömlum kunningjá
föður yðar fyrir bermælgina, því só hún um of hjá mér í þetta
sinn, þá er hún betri upp í eyrun enn á bak — en um áform
yðar skal eg iþeigja.
Já,' því er ver að eg get ekki lastaö kveöskap yðar. Aiipa-
skyttan ágæt og útleggingin af Gunnarshólrha-kvæðinu líka. — Eg
sendi yöur nú afskript af Sigrúnarbrag mínum og Islandi, en ef
þór leggiö það fyrra út eða nokkuð af erotiska kveðskapnum mín-
um, vil eg ekki að nafn mitt só nefnt við það, nema ef þór leggið
út Freyjukóttina, því að. þeim vil eg allstaðar vera þekktur, —
en eg hefi valla neitt kveðið sem ekki er prentaö nema Sigrúnar-
braginn. — »Kysstu mig aptur« líkar sjálfum mór bezt af erotiska
kveðskapnum mínum. —
Ef þór viljið gagna föðurlandi yðar, ættuð þór fyrir alla muni
að ná embættisprófinu. — Þegar það væri úti, hygg eg faðir yðar
vildi hjálpa yður til að vera ein tvö ár til í Höfn, og eg skyldl
ekki spilla fyrir yöur í því.
Fyrirgófið nú flýtirinn og illa orðfærið.
Yðar
einlægl. elskandi.
Frú Jakohína Thomsen, ekkja góðskáldsins, hefir leyft mér að birta
bréf þetta. Bréfið er með hendi Bjarna amtmanns, en undirritað nafn
hans liefir verið klipt burt og með því 3 eða 4 orð, sem eg liefi leitast
við að fylla ut innan hornklofa eftir samhandi og stafaleifum. Enginn
vafi leikur á því, að hréfið er frá Bjarna amtmanni og lians eiginhandar
rit, þótt undirskrift hans vanti (shr. Kvæði eftir Bjarna Thórarensen
Kh. 1884 hls. XXIX). Þorleifur II. Bjarnason.