Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 44

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 44
44 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Hér situr Björgvin við einn af litgrafísku vélarrúmshermunum. Hver afþessum tölvum er sjálfstœður hermir og verðmœt- ið skiptir milljónum. (Ljósm.: Sjómdhl.: AM). sem ég raunar taldi mig vita fyrir, að heildarlengd vélstjóranámsins er mjög áþekk. Ef nokkuð er þá er nám- ið hjá okkur ögn styttra. Nú er pró- fessor í Háskóla Islands að ganga frá skýrslu um þessi mál og þótt ég hafi ekki séð lokaniðurstöðu hans, þá held ég að hún muni staðfesta að námið hér í Vélskóla íslands og námið á Norðurlöndunum er eins og vera ber mjög sambærilegt. Þó held ég að við höfum visst forskot, þar sem upp- bygging námsins byggist á fleiri þrep- um réttinda. Þetta fyrirkomulag stuðl- ar að auki að meiri sveigjanleika, þannig að ef menn af einhverjum ástæðum verða að hætta námi munu þeir geta nýtt sér tiltölulega stóran hluta námsins þegar að réttindunum kemur. Því verður ekki um hreint brottfall að ræða eins og í mörgu skólanámi öðru hér á landi þar sem þetta hefur verið vandmál. Að jafnaði eru um tvö hundruð nemendur í skólanum, stundum nokkru fleiri á haustönn og nokkru færri á vorönn. Á undanförnum árum hefur þessi tala nemenda verið svo til óbreytt. í rauninni eru nemendur úti um allt land byrjaðir í vélstjóranámi. Þeir afla sér verulegs hluta grunn- menntunarinnar í sinni heimabyggð og koma síðan hingað og fá hann met- inn. Þegar menn því ræddu um fækk- un hjá okkur eftir að við tókum upp áfangakerfið, þá láðist þeim að huga að því að við vorum komnir með allt aðra stöðu í skólakerfinu og að nem- endur höfðu þegar hafið vélstjóranám f nánast öllum framhaldsskólum landsins. Svo eru vélstjórnarbrautir víða um land, svo sem á Isafirði, í Vestmannaeyjum, á Akureyri og í Keflavík og stundum á Hornafirði, en á Neskaupstað stefna menn að því að byggja upp góða aðstöðu fyrir vél- stjóranám. Óska ég þeim til hamingju með það.“ Réttindakröfurnar þarf að auka „Einhvern margbrotnasta tækni- búnað sem fyrirfinnst í skipum er að finna um borð í skuttogaraflotanum okkar. Þetta eru gífurlega tæknivædd skip og þarna er ekki bara um hefð- bundinn vélbúnað að ræða, heldur eru þarna heil frystihús og stundum fiski- mjölsverksmiðjur innanborðs. Menn þurfa því að hafa til að bera tækni- og verkþekkingu sem spannar mjög breitt svið, því í langflestum tilfellum er þetta mikið flóknari búnaður en gerist um borð í miklu stærri kaup- skipum, sem oft eru með tiltölulega einfaldan vélbúnað, þótt sjálfar aðal- vélarnar séu stórar og aflmiklar. Þetta minnir á að víða þarf að auka réttinda- kröfurnar en ekki minnka þær. Einnig þarf að hafa í huga að áhafnir frysti- togara eru fjölmennari en kaupskipa og má því ekki slaka á öryggiskröf- um. Samkvæmt kröfum STCW um menntun eru réttindastig skilgreind út frá afli aðalvéla. Má segja að í þessari reglu felist ákveðinn veikleiki, því mörg tæknivædd fiskiskip, eins og frystitogararnir, eru ekki með aflmikl- ar aðalvélar, en krefjast eigi að síður mikillar þekkingar af vélstjórunum, í það minnsta yfirvélstjóra. Þarf hann því að hafa aflað sér fyllstu réttinda,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.