Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 46

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 46
46 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ „Þar reyndum við hve þorstinn kvelur menn óskaplega“ Frásögn Kjartans Guðjónssonar vélstjóra af hrakningum vélbátsins Kristjáns RE- 90 árið 1940, en þeir eru einir hinir mestu sem sögur fara af hér við land Varla munu nokkrir hrakningar á sjó hér við land verða mönnum eftirminnilegri en hrakningar vél- bátsins Kristjáns RE-90 árið 1940, en þá hrakti bátinn í illviðri, vélar- vana og sambandslausan við um- heiminn, úti af Reykjanesi í tólf daga. Hann var talinn af og minn- ingarathöfn um skipverjana fimrn stóð fyrir dyrum þegar bátinn bar loks inn í brimskaflinn í Skiptivík í Höfnum. Einn áhafnarmanna var Kjartan Guðjónsson vélstjóri. Þótt Kjartan sé nú orðinn 91 árs að aldri man hann þessa hrakninga vel og kveðst minnast hins 1. mars ár hvert sérstaklega, en þann dag náði Kristján RE-90 loks landi. „Mér finnst ég alltaf vera 33 árum yngri en ég er,“ segir hann, „vegna þess að þarna fékk ég lífið aftur, löngu eftir að ég var talinn dauður.“ Kjartan býr nú á Hrafnistu í Hafnarfirði í stóru og rúmgóðu herbergi og á góðviðrisdögum sér hann til sjö kirkna út um gluggann. Auðvelt er að sjá að hann hefur ver- ið mikið hraustmenni. Hendurnar eru stórar og vinnulúnar og bera merki athafnasamrar ævi. „Nú fyrst hefur maður það verulega gott,“ segir hann, „maður þarf ekki einu sinni að hugsa. Ég bjó lengi einn með yngstu börnunum mínum eftir að konan mín lést 1970. En eft- ir að þau fóru að heiman hef ég far- ið í sólarlandaferðir og átt ágæta ævi. Á Hrafnistu er gott að vera og ég lifi eins og blómi í eggi.“ Hér á eftir fer frásögn Kjartans af þess- um atburðum, eins og hann rifjaði þá upp fyrir ritstjóra Sjómanna- dagsblaðsins, og við byrjum á að spyrja hann um ætt og uppruna. „Eg er fæddur í Hlíð undir Austur- Eyjafjöllum 29. mars 1907, annar í röð þriggja systkina, og foreldrar Guðmundur Ó. Bœringsson skipstjóri mínir voru þau Guðjón Sigurðsson og Vilborg Tómasdóttir,“ segir Kjartan. „í foreldrahúsum í Hlíð ólst ég upp allt fram að tvítugu og það voru góð ár, þótt snemma værum við látin fara að vinna, til dæmis var ég farinn að standa við slátt daglangt tíu ára gam- all. En alltaf höfðum við nóg að bíta og brenna og skorti ekkert. Ég byrjaði að róa úti á Austur- Eyjatjallasandi, eða „Sandi“, eins og við kölluðum það, þegar ég var á fimmtánda árinu. Ég var þarna á átt- æringi sem Lovísa hét og var þá vita- skuld aðeins hálfdrættingur. En 1926- 1927 fór ég á vertíð í Vestmannaeyj- um og þaðan sótti ég vertíð í ein 17 ár. Ég var þó aðeins á vetrum í Eyjum en heima í Hlíð að sumrinu. í þau ár sem ég sótti sjó frá Vestmannaeyjum var ég á ýmsum bátum en þó mest á ein- um báti sem hét Lundinn, var þar hjá afbragðsskipstjóra, Þorgeiri Jóels- syni. I Eyjum tók ég vélstjórapróf árið 1929 og var yfirleitt vélstjóri eftir það.“ í skipspláss á Kristjáni „Tildrög þess að ég réði mig á Kristján voru þau að ég var þá nýtrú- lofaður og hafði farið með unnustuna austur undir Fjöll að kynna hana. En þegar ég kom til Reykjavíkur að nýju rakst ég á mann sem ég þekkti og kvaðst hann vita um bát sem vantaði vélamann á. Tók ég að spyrja hann nánar um þetta og kvað hann víst að ég fengi pláss á þessum báti. Báturinn reyndist vera Kristján RE-90, 15 lesta bátur og sagður prvðilegur í alla staði, sem og reyndist. Utgerðarmaður hans var Lúðvík Guðmundsson. Báturinn hafði áður heitið Jón Finnson og ver- ið smíðaður í Reykjavík 1923, svo hann var 17 ára þegar hér var komið sögu. í honum var45 ha. Bolindervél. Fór ég nú og fann að máli skip- stjórann, Guðmund Bæringsson. Hann var mjög hægur maður og stillt- ur svo mér leist þegar vel á hann og var fastmælum bundið að ég tæki plássið. Við vorum á línu og fiskirí reyndist í meðallagi þarna þegar við byrjuðum og man ég að ekki höfðum við farið marga túra þegar þessi ósköp dundu yfir okkur. Við vorum fimm a
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.