Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 49

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1998, Side 49
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 49 Báturinn lak mikið og þar sem vél- in var stopp gengu engar dælur. Því urðum við skipverjarnir að ausa allan sólarhringinn og það var erfitt verk. Kristján var að vísu afar góður bátur, en sjórinn var bara það mikill að hann „sló úr sér,“ eins og það er kallað. Við jusum með fötum sem handlangaðar voru úr vélarrúminu upp í stýrishúsið þar sem steypt var úr þeim út fyrir dyrnar. Ég reyndi nú aftur að setja vélina í gang, skar strigapoka í lengj- ur og setti þær síðan inn í legurnar ásamt miklu af grænolíu og smurolíu. En þessi tilraun bar ekki árangur frek- ar en hinar.“ I gegnuni briinið „Að morgni þess 1. mars sáum við til lands við Merkines og stefnan var sett á fjöruna. Þeir Hafnarmenn höfðu séð til okkar og skynjað að ekki var allt með felldu. Hins vegar hvarflaði ekki að þeim að þarna væri Kristján á ferð — hann var fullkomlega talinn af. En við ákváðum nú að láta slag standa og sigla í gegnum brimið. Stefnan var sett á svonefnda Skiptivík sem er lítil vík milli Merkiness og Junkaragerðis í Höfnum. Sjálfsagt vorum við orðnir nokkuð sljóir, en við vissum eigi að síður að við höfðum engu að tapa — og við töldum alveg víst að landi mundum við ná. Sigldum við því rakleitt í gegnum brimið og þar kom að bátinn tók niðri og litlu síðar hvolfdi honum í brimgarðinum. Þarna voru björgunarmenn fyrir og komu þeir línu yfir lil okkar og var Haraldur fyrsti maðurinn sem í land komst, en hann hafði náð línunni. Hvað mig varðar þá stökk ég út sjó- megin, þar sem ég hafði heyrt að þeg- ar menn stykkju landmegin úr strönd- uðum bát, þá æltu þeir á hættu að bát- urinn hvolfdist yfir þá. Slóst ég nokkrum sinnum utan í bátinn og festi einnig annan fótinn í skrúfunni. En þá náði ég taki á spotta sem hékk út af bátssíðunni og gat haldið mér meðan ég smeygði mér út stígvélinu. Stðan losnaði ég frá bátnum og bar mig að landi á sömu báru og þá Guðmund skipstjóra og Sigurð Viktor. Guð- mund bar upp í víkina norðanverða og þar óðu björgunarmenn á móti honum °g kipptu honum í land. Einnig tókst Kjartan Guðjónsson: „ Við skip- verjarnir komum meira að segjafram á miðilsfundi hjá Láru miðli... “ (LjósmSjómdbl. AM) þeim að ná til Kjartans og Sigurjóns Viktors áður en útsogið náði að hrífa þá með sér. Sigurður varð síðastur í land. Hafði hann verið kominn lang- leiðina þegar liann festist í línu sem var föst í bátnum og lenti því í útsog- inu sem hreif hann með sér næstum því út að bátnum. Þar tókst honuin að losa sig og skolaði til lands á næstu öldu. Sama aldan og skolaði Sigurði að landi hvolfdi einnig bátnum, þannig að kjölurinn vissi beint upp og siglutrén brotnuðu. Auðvitað vorum við orðnir mjög kaldir og höfðum sopið mikinn sjó í brimsköflunum. Einn af björgunar- mönnunum spurði mig hvaða bátur þetta væri og þegar ég sagði honum að þetta væri Kristján, trúði hann mér víst varla. Ég skalf óskaplega af kulda og tennurnar glömruðu uppi í mér. Okkur Guðmundi skipstjóra var kom- ið fyrir báðum á sama heimili, en það var í Merkinesi hjá Vilhjálmi Hinriks- syni. Þar nutum við afar góðrar að- hlynningar. Annars vorum við skip- verjarnir furðu hressir eftir allt þetta volk og ég veit ekki til að neinum okkar hafi orðið meint af.“ Komu fram á miðilsfundi „Eins og ég sagði var ég nýlega trúlofaður þegar þetta gerðist og var unnusta mín Halldóra Marfasdóttir frá Sútarabúðum í Jökultjörðum og við áttum von á okkar fyrsta barni. Hall- dóra vann iengi hjá séra Jónmundi á Stað, þeim merkismanni. Jónmundur skrifaði henni bréf eftir að ég var „dá- inn.“ Þetta var huggunarbréf til henn- ar og mikið var ég nú góður maður, eins og flestir sem dauðir eru. Ég átti þetta bréf lengi og mikið var það vel skrifað, eins og vænta mátti af séra Jónmundi. Faðir minn var á lífi undir Eyjafjöllum þegar þetta gerðist. Ég bað Valtý Stefánsson, sem þá var blaðamaður á Morgunblaðinu, að til- kynna pabba „afturhvarf mitt til lífs- ins“. En ekki var sími heima hjá pabba, svo stúlka á næsta bæ var send til hans með skilaboðin um að ég væri lifandi. Ekki var hann faðir minn nú allajafna stórorður, en við stúlkuna sagði hann blákalt: „Þú lýgur því!“, enda álti hann ekki von á slíkum tíð- indum fremur en aðrir. Við skip- verjarnir komum meira að segja fram á miðilsfundi hjá Láru miðli og var beðið fyrir þau skilaboð úr öðrum heimi lil ættingja að okkur liði vel í Himnaríki.Yfir þessu var okkur nokk- uð skemrnt. Að vísu segir Lára í bók að hún hafi verið blekkt í þessu tilfelli og síðar heyrði ég að Hafsteinn miðill Björnsson hefði alltaf verið sannfærð- ur urn að við værum lífs. Minningarathöfnin um okkur átti að fara fram daginn eftir að við kom- um að landi, en þess í stað fengum við skipverjarnir heillaskeyti frá prestin- um. Eins og ég sagði var dálítið gaman gert að bruggkunnáttu minni eftir hrakningana og meðal annars var ort- ur bragur sem fluttur var í „revíu“ í Reykjavík. Úr þessum brag kann ég þrjár vísur: Karlarnir á Kristjáni, kunnu það sem með þurfti Brást ei bruggunin besta huggunin. Þá hefði alla lengi þyrst þekkt ef ei hefðu bruggsins list. Hefðu að landi loksins þeir líklega ekki komist meir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.